Fyrrverandi fréttastjóri og fleiri til Betri samgangna Betri samgöngur ohf., sem hafa umsjón með framkvæmdum á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, hafa ráðið þrjá nýja starfsmenn og forstöðumaður þróunar hefur verið gerður að aðstoðarframkvæmdastjóri. Meðal nýrra starfsmanna er Rakel Þorbergsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Starfsmannafjöldi félagsins tvöfaldast. 10.10.2024 14:26
Efast um að málinu verði áfrýjað Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar, segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um sýkna Albert af ákæru um nauðgun vera lögfræðilega rétta niðurstöðu. 10.10.2024 14:15
Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga „Þessi niðurstaða auðvitað lítur að sakamáli og hvort ströng skilyrði séu uppfyllt til þess að dæma mann til fangelsisrefsingar, og breytir í rauninni engu um upplifun brotaþola af þessu kvöldi eða af samskiptum við ákærða,“ segir Eva B. Helgadóttir, réttargæslumaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson. 10.10.2024 13:54
Albert sýknaður Albert Guðmundsson knattspyrnumaður var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun. Hann var ákærður fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir klukkan eitt í dag. 10.10.2024 12:02
Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Útleysing varð á öllum vélum í Nesjavallavirkjun í morgun. Orsök bilunarinnar er óljós en unnið er að greiningu. 9.10.2024 12:44
Ökumaðurinn liðlega tvítugur Karlmaður fæddur árið 2003 hefur réttarstöðu sakbornings vegna banaslyssins á Sæbraut um þarsíðustu helgi. Ökumenn sem aka á gangandi vegfarendur sem látast fá alltaf réttarstöðu sakbornings á meðan á rannsókn stendur. Búast má við því að rannsókn taki langan tíma. 9.10.2024 11:28
Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða sem búnar eru nagladekkjum. 9.10.2024 08:55
Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Heitavatnslaust verður í stórum hluta Vesturbæjar Reykjavíkur sunnan Hringbrautar milli klukkan 08 og 16 í dag. 9.10.2024 07:29
Kennarar greiða atkvæði um verkfall Félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla greiða atkvæði um verkföll sem hefjast eiga í lok mánaðar. Atkvæðagreiðslurnar hófust á hádegi í dag en ekki er greint frá í hvaða skólum er greitt atkvæði um verkföll. 8.10.2024 14:08
„Þetta er bara órætt okkar á milli“ Forsætisráðherra segist ekkert hafa rætt hugsanlegar kosningar í vor við hina formenn ríkisstjórnarflokkanna. Landsfundur Vinstri grænna ályktaði um helgina að ganga verði til kosninga næsta vor. 8.10.2024 12:20