Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum

Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hefði verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segist ætla að greiða atkvæði gegn framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Ýmsum málum í sjávarútvegi þurfi að ganga frá innanlands áður en sótt er um aðild að ESB og ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands. 

Rúm­lega þrjá­tíu bjargað úr rústunum en tug­þúsunda enn saknað

Forseti Venesúela segir 33 hafa verið dregna á lífi upp úr rústum bygginga sem hrundu í tveimur stórum jarðskjálftum sem lögðu þjóðina í rúst. Um 800 byggingar eru taldar hafa hrunið í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. Enn er talið að margir Venesúelabúar séu fastir undir rústum þeirra.

Ellefu létust í flug­slysi í Frakk­landi

Ellefu létust eftir að flugvél í notkun fallhlífarstökkvaraskóla hrapaði í bænum Tomblaine í austurhluta Frakklands í dag. Fimm farþeganna um borð voru nemendur sem undirbjuggu sig fyrir sitt fyrsta fallhlífastökk, hinir fimm hafi verið leiðbeinendur í skólanum.

Fræsa og mal­bika Reykja­nes­braut í kvöld

Í kvöld, sunnudagskvöldið 28. júní og aðfaranótt miðvikudags 29. júní, milli kl. 20:00 og 06:00, er unnið við fræsingu og malbikun á Reykjanesbraut við Sprengisand. 

Sér­sveitar­menn um borð í Þór

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu.

Fleiri en 1300 látnir vegna hita­bylgju í Evrópu

Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. 

Einn fluttur á spítala eftir líkams­á­rás

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í dag. Einn hafi verið fluttur til aðhlynningar og sagður „nokkuð slasaður“. Greint er frá málinu í tilkynningu frá lögreglu en atvikinu er ekki lýst nánar.

Sjá meira