Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Maðurinn sem leitaði á bráðamóttöku í gær eftir að hafa verið stunginn í brjóstkassa er enn á sjúkrahúsi. Að öðru leyti liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins en málið er í rannsókn. 29.9.2024 12:16
„Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Fólk bíður í örvæntingu, íbúðir standa tómar og húsnæðisverð hækkar á meðan beðið er eftir því að afgreiðsla hlutdeildarlána hefjist að nýju að sögn fasteignasala. Fjölskylda sem hefur beðið í næstum hálft ár með undirritaðan kaupsamning kallar eftir svörum og telja sig heppin að hafa húsnæði á meðan. 28.9.2024 21:31
Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Hægrimenn ættu ekki að splundrast í sundur í marga flokka á hægri væng stjórnmálanna að mati ráðherra Sjálfstæðisflokks. Sögulegt uppgjör er að eiga sér stað á hægri vængnum að sögn prófessors í stjórnmálafræði. 28.9.2024 19:35
Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Það gengur ekki upp til lengdar að meðferðarúrræðið á Stuðlum sé nýtt sem gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga sem fremja afbrot. Þetta segir dómsmálaráðherra sem telur alveg ljóst að betri úrræði skorti og gera þurfi úrbætur. 28.9.2024 11:22
Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Nýliðar í Viðreisn og Samfylkingunni gera ekki kröfu um að leiða lista en hlakka til að láta að sér kveða í landsmálunum ef eftirspurn er eftir þeim. Nýr formaður ungliðahreyfingar hjá Miðflokknum segir of snemmt að segja til um hvort hann vilji láta að sér kveða í landsmálunum en útilokar þó ekkert. 27.9.2024 21:02
„Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Kona sem þurfti að bíða í næstum ár eftir NPA-þjónustu segir brotið á mannréttindum fatlaðs fólks, barna þeirra og fjölskyldu. Biðin bitnaði illa á manni hennar og dóttur og hún finnur til með þeim sem hafa þurft að bíða enn lengur. Hún er þakklát fyrir þá þjónustu sem hún fær nú, sem þó dugar ekki til. 24.9.2024 21:01
Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Garðabæ var óheimilt að skerða NPA-þjónustu við ellefu ára stúlku á þeim forsendum að foreldrar hennar beri umönnunar- og forsjárskyldu sem slíkir. Faðir stúlkunnar og lögmaður fjölskyldunnar vona að sveitarfélög fari að lögum og málið verði fordæmisgefandi fyrir önnur fötluð börn og fjölskyldur þeirra. 24.9.2024 13:06
Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Tregða Bandaríkjanna og annarra ríkja til að leyfa Úkraínumönnum að nota vopn frá þeim innan landamæra Rússlands er mikil vonbrigði. Þetta segir formaður utanríkismálanefndar Eistlands sem telur afstöðuna hættulega og merki um veikleika. Mikið sé í húfi fyrir allsherjaröryggi í Evrópu. 23.9.2024 20:02
Íslendingur í Ísrael óskaði eftir aðstoð utanríkisráðuneytisins Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur nýlega borist ein beiðni um aðstoð frá íslenskum ríkisborgara í Ísrael. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa íslensk stjórnvöld áhyggjur af stigmögnun átaka á svæðinu og hvetja til stillingar. 23.9.2024 15:56
Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Bræðurnir sem saman fagna hundrað ára starfsafmæli hjá sama fyrirtæki segja samstarfið hafa verið einfalt, þægilegt og laust við keppni í þá hálfu öld sem þeir hafa verið samstarfsfélagar. Það hafi sjaldan eða aldrei hvarflað að þeim að skipta um vinnu. 20.9.2024 20:30