„Tímabil sem byrjaði vel og endaði vel“ Aðalsteinn Eyjólfsson segist hafa lært mikið af þarsíðasta tímabili en hann stýrði liði sínu Kadetten til sigurs í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta í ár. Aðalsteinn hefur þjálfað liðið frá 2020 en hann hefur verið þjálfari erlendis frá árinu 2008. 21.6.2022 13:00
Hafa aldrei unnið Evrópuleik en ætla að breyta því í kvöld Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa ekki unnið Evrópuleik. Víkingur mætir Levadia Tallinn í kvöld og stefnir á að breyta þeirri staðreynd. 21.6.2022 12:31
Nítján dagar í EM: Finnst sveppir ógeðslegir, elskar að prjóna og er sprenglærð Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United, er þriðja í röðinni. 21.6.2022 11:01
Markasúpa á nýjum heimavelli Fram, Ísak Snær sneri aftur og Atli bjargaði KR Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í gærkvöldi. Fram vígði nýjan heimavöll og bauð til veislu er ÍBV kom í heimsókn. Stjarnan tók á móti KR og Breiðablik skoraði fjögur gegn KA. 21.6.2022 10:30
Neitar að framlengja við Man Utd þar sem launin eru of lág Alessia Russo, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, neitar að skrifa undir nýjan samning þar sem hún vill launahækkun. Hvort félagið verði við ósk hennar er óvitað en Man Utd er ekki meðal launahæstu liða úrvalsdeildar kvenna. 21.6.2022 09:31
Draymond með skýr skilaboð: „Sigurvegarar sigra og þegið þið svo“ Draymond Green, leikmaður NBA meistara Golden State Warriors, er ekki allra. Hann er með munninn fyrir neðan nefið og elskar að láta gamminn geisa. Gerði hann nákvæmlega það er Warriors fögnuðu titlinum með stuðningsfólki sínu á mánudag. 21.6.2022 08:31
Fyrrverandi stórstjarna Barcelona og Inter Milan fékk 22 mánaða dóm Samuel Eto'o, fyrrverandi sóknarmaður Barcelona, Inter Milan og mun fleiri liða, hefur verið dæmdur í 22 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Eto'o játaði að hafa svikið 3,2 milljónir evra undan skatti er hann spilaði fyrir Barcelona. 21.6.2022 07:30
Sofia Sóley og Rafn Kumar vörðu Íslandsmeistaratitla sína Sofia Sóley Jónasdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur vörðu Íslandsmeistaratitla sína í einliðaleik í tennis á sunnudag. 20.6.2022 16:00
Evrópumeistararnir frá 2017 og 2019 að öllum líkindum ekki með á næsta ári Það virðist sem stórliðið Vardar Skopje frá Norður-Makedóníu, Evrópumeistarar 2017 og 2019, verði ekki með í Meistaradeild Evrópu í handbolta á næsta ári vegna fjárhagsvandræða. 20.6.2022 15:00
Blikar missa einn sinn besta leikmann í glænýtt lið Hildur Antonsdóttir hefur samið við hollenska félagið Fortuna Sittard. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Fortuna sem og Breiðabliks en hollenska félagið kaupir Hildi af Blikum. 20.6.2022 14:31