Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Íslenska landsliðið í fótbolta verður án Söndru Maríu Jessen þegar það mætir Króatíu í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu í næsta mánuði, eftir að hún meiddist alvarlega. 20.9.2026 23:00
Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Hin ellefu ára gamla Día Karen Fjölvarsdóttir fékk að vaka aðeins lengur til þess að styðja Ríkarð Eyberg Árnason áfram til sigurs í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk í kvöld. Hún stal senunni í beinni útsendingu Vísis frá hlaupinu. 20.9.2026 22:40
Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Manchester City festi sig í sessi á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool vann góðan útisigur gegn Bournemouth en Manchester United náði aðeins jafntefli við botnlið Fulham. Allt það helsta úr leikjum dagsins má sjá á Vísi. 20.9.2026 21:38
Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Sparkspekingurinn Gary Neville talaði hreint út varðandi frammistöðu Manchester United í dag eftir að liðið var stálheppið að ná í 1-1 jafntefli við botnlið Fulham, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 20.9.2026 20:31
Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason skoruðu mörk Brann í kvöld þegar liðið vann frábæran 2-1 sigur gegn Meistaradeildarliði Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Kristall fékk hins vegar líka rautt spjald í leiknum. 20.9.2026 19:23
Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson náði sér í gult spjald og svo rautt seint í uppbótartíma, þegar Real Sociedad vann sætan 3-2 útisigur gegn Valencia á Spáni í kvöld. 20.9.2026 18:32
Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Elías Rafn Ólafsson, sem verið hefur aðalmarkvörður íslenska landsliðsins síðustu misseri, missir af komandi landsleikjum vegna meiðsla. 20.9.2026 18:18
Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Eftir að hafa aðeins tapað einum deildarleik á allri síðustu leiktíð hefur Íslendingaliðið Magdeburg nú þegar mátt þola sitt fyrsta tap í vetur, í þýsku 1. deildinni í handbolta. 20.9.2026 18:05
Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Fulham komst af botni ensku úrvalsdeildarinnar og var afar nálægt fyrsta sigrinum, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Manchester United í 5. umferð í dag. 20.9.2026 15:01
Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað Á meðal nýrra liða sem hægt er að velja í nýjustu útgáfu FC-tölvuleiksins, vinsælasta fótboltatölvuleiks heims, eru núverandi Íslandsmeistarar kvenna, Blikakonur. 20.9.2026 09:00