Birtist í Fréttablaðinu

Gaddar og ólar í stað glimmers
Gera má ráð fyrir mikilli partístemningu víða um land á morgun, þegar Hatari stígur á svið fyrir Íslands hönd í Eurovision-keppninni. Ísland hefur ekki komist upp úr undanúrslitum síðan árið 2014 svo búast má við miklu partíhaldi um land allt.

Óheppilegt að álitið hafi ekki legið fyrir
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins telur afar óheppilegt að álitsgerð Trausta Fannars Valssonar, sérfræðings í sveitarstjórnarlögum, hafi ekki verið birt fyrir undirritun ársreiknings borgarinnar á þriðjudaginn.

Sjúkrahús allra landsmanna
Ársfundur Landspítalans verður haldinn í dag.

May útskýrir leiðtogaval í júní
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hét því í gær að leggja fram áætlun um val á arftaka, það er nýjum formanni Íhaldsflokksins, þegar næsta atkvæðagreiðsla um Brexit-samning hennar er að baki.

Hulda nýr formaður FKA
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands, hefur verið kjörin nýr formaður Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA).

Á móti sól og GRL PWR á Þjóðhátíð
Í dag verður tilkynnt um fimm ný atriði á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á móti sól spilar í sitt tíunda skipti á hátíðinni.

Hóta hefndum vegna Huawei-banns
Bandaríkjaforseti mun setja bann við viðskiptum við kínverska tæknirisann Huawei með nýrri forsetatilskipun. Utanríkisráðuneyti Kína kveðst undirbúa gagnaðgerðir.

Fermingarpeningunum stolið
Langþráð þriggja vikna frí Sigurðar Geirs Geirssonar og fjölskyldu til Torrevieja á Spáni fór heldur betur illa af stað. Strax á flugvellinum var tösku sem í voru meðal annars fermingarpeningar sonar hans stolið.

Fyrirtæki í eigu eiginmanns þingkonu vill veiða hrefnu á nýjan leik
Þrjú fyrirtæki hafa óskað eftir því við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að fá leyfi til hvalveiða til ársins 2023. Eitt fyrirtækið er í eigu eiginmanns þingmanns Framsóknarflokksins.

Attestor selur í Arion fyrir fjóra milljarða
Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital seldi í gær hátt í þriggja prósenta hlut í Arion banka fyrir um fjóra milljarða króna, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir söluna fer sjóðurinn með um 2,8 prósenta hlut í bankanum.

Þórhildur Sunna brotleg að mati siðanefndar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir braut siðareglur þingsins að mati siðanefndar. Brotið er vegna ummæla um Ásmund Friðriksson og akstur hans.

Bæjarstarfsmenn fá gjafabréf fyrir aðhald
Um 240 starfsmenn Grindavíkurbæjar fá 10 þúsund króna gjafabréf frá bænum. Verðlaun fyrir góða afkomu bæjarins og að sviðsstjórum tókst almennt vel að halda fjárhagsáætlun. Hógvær þakklætisvottur, segir bæjarstjóri.

Við viljum vanda okkur
Hátt í 50 sýrlenskir flóttamenn eru að flytja til Íslands þessa dagana. Þeir koma í þremur hópum, tveir eru lentir og flestir þeirra fá ný heimkynni norður í Húnavatnssýslu.

Góð endurkoma Camry
Toyota Camry hefur snúið aftur eftir 15 ára fjarveru og leysir af Avensis sem Toyota hættir að framleiða.

Fékk strax góða tilfinningu fyrir bænum
Liljana Milankoska er hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri Húnaþings vestra í málefnum flóttamanna. Hún er búin að heimsækja nýju íbúana fyrsta dag þeirra á Hvammstanga.

Ætla þingmenn að breyta tilskipun ESB fyrir Símann?
Nú liggur fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að innleiða tilskipun ESB um „ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta“.

Sæmd Alþingis: Eitt faxið enn?
Það var í stjórnarmyndunarviðræðum fyrir allmörgum árum að það byrjaði skyndilega að braka í faxtækinu í fundarherberginu. Faxið reyndist geyma fyrirmæli um ákvæði sem standa skyldu í stjórnarsáttmálanum. Faxið var sent úr Eimskipafélagshúsinu.

Alltaf segja nei nema það sé JÁ!
Derek Sivers er maður að mínu skapi en hann seldi fyrirtæki sitt fyrir tugi milljónir dollara og gaf hagnaðinn til mannúðarmála.

40 – 18
Þingmenn í Alabama í Bandaríkjunum hafa samþykkt nýtt frumvarp sem bannar þungunarrof nema þegar þarf að bjarga lífi konunnar. Á ferðinni er strangasta löggjöf í landinu í þessum efnum.

Landráðamaður, þjóðernissinni eða hálfviti?
Af umræðunni að dæma er ég sennilega aðallega það síðastnefnda og líka fyrir að blanda mér í umræðuna um þriðja orkupakkann.

Vandamálið við þriðja orkulagabálk Evrópusambandsins útskýrt á tveimur mínútum
Óljóst er hvers vegna Ísland ætti að gangast undir orkulöggjöf Evrópusambandsins. Í því sambandi hefur tvennt einkum verið nefnt. Í fyrsta lagi gæti slíkt bætt orkumarkaðinn og í öðru lagi mundi óhlýðni við Evrópusambandið í þessu máli spilla EES-samningnum.

Förum vel með almannafé
Þessa dagana er unnið hörðum höndum við nýtt skipulag Reykjavíkurborgar, vegferð sem við lögðum upp í fyrr á árinu.

Af dýrum, hundum og fuglum
Gott hundafólk, hafið þið hundana í bandi á varptíma fugla á þeim stöðum sem vitað er að margir fuglar hafa hreiðrið sitt.

Hatari skálaði í kampavíni í sundlaugargarðinum
Liðsmenn Hatara fengu verðskuldaðan frídag í gær og nutu lífsins í Tel Avív.

Samtök iðnaðarins segja innistæðu fyrir vaxtalækkun
Á stuttum tíma hefur slaki tekið við af spennu í efnahagslífinu, sem lýsir sér meðal annars í því að atvinnuleysi mældist í apríl 3,7 prósent borið saman við 2,3 prósent á sama tíma fyrir ári, og sterk rök eru þess vegna fyrir því að stýrivextir verði lækkaðir þegar vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt miðvikudaginn 22. maí næstkomandi.

Bálkakeðjur gjörbreyta landslaginu
Seðlabankar og stórfyrirtæki skoða hagnýtingu á bálkakeðjutækni með því að gefa út rafmyntir bundnar við lögeyri. Framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs segir tæknina geta breytt fjármálakerfinu.

Ársreikningur veldur harðvítugum deilum
Borgarfulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins skrifuðu undir ársreikning Reykjavíkurborgar með fyrirvara. Forseti borgarstjórnar sakar fulltrúana um lélega niðurrifspólitík.

Hallast að nýrri fjármálaáætlun
Fram kom í svari Bjarna við fyrirspurn Oddnýjar Harðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær að forsendur hefðu breyst verulega frá síðustu fjármálaáætlun.

Tæplega 600 fullorðnir bíða eftir greiningu á ADHD
Langur biðlisti er eftir þjónustu ADHD-teymis Landspítalans sem sinnir greiningu og meðferð hjá fullorðnum einstaklingum. Teymisstjóri segir þá sem séu í mestri þörf fyrir greiningu setta í forgang.

Kæra áform um gistiskýli
Nokkrir eigendur fasteigna á Grandanum freista þess nú að koma í veg fyrir starfrækslu gistiskýlis fyrir heimilislausa á svæðinu með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.