KSÍ

Fréttamynd

Orri hélt liðsfund án að­komu Arnars

Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, fær mikið hrós frá landsliðsþjálfaranum fyrir það hvernig hann tæklaði krefjandi aðstæður í verkefni liðsins eftir að upp komst um agabrot nokkurra leikmanna. 

Fótbolti
Fréttamynd

Skömmin sé nægi­leg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættan­legt“

Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.

Fótbolti
Fréttamynd

KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA

Búist er við því að FIFA leggi fram til­lögu sem sér til þess að hvert aðildar­sam­band Alþjóðaknatt­spyrnu­sam­bandsins fái því sem nemur rúmum þremur milljörðum króna.

Fótbolti
Fréttamynd

Strákarnir sitja fastir

U21 landslið karla í fótbolta situr fast hér á landi vegna þoku í Færeyjum. Liðið á að mæta heimamönnum á þriðjudag og vonast er til að komast út á morgun.

Fótbolti
Fréttamynd

Af­mælis­barnið dregur sig úr lands­liðinu

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur neyðst til að gera breytingar á landsliðshópnum fyrir mikilvæga leiki í umspili fyrir HM í Brasilíu í einvígi gegn Króatíu. 

Fótbolti
Fréttamynd

Albert ekki meira með ís­lenska lands­liðinu

Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni liðsins í Þjóðadeild UEFA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í gær. Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Landsliðin flúðu haustlægðina

Karlalandslið Íslands flúði fyrstu haustlægð ársins og æfði innanhúss í Miðgarði í Garðabæ í morgun. U21 landsliðið gerði slíkt hið sama.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“

Þor­valdur Ör­lygs­son, for­maður KSÍ, segir það ekki undir sér komið að segja til um það hvort Gianni Infantino sé stætt í em­bætti sem for­seti FIFA. KSÍ er eitt af aðildar­sam­böndum UEFA sem vill fá utan­aðkomandi aðila til þess að fara yfir stjórnar­hætti í ný­legu hneykslis­máli.

Fótbolti
Fréttamynd

FIFA heldur settri stefnu

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem því er lofað að mjög svo umdeildum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar verði fylgt eftir. Ekki sé verið að selja fótboltann frá sambandinu. Fjölmiðlar hafi truflað kynningarferlið.

Fótbolti
Fréttamynd

Gylfi ó­sáttur: „Ó­trú­leg á­kvörðun hjá KSÍ“

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var ánægður með frammistöðu liðsins lengst af í markalausu jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabæ. Honum fannst þó þreyta hafa sett svip sinn á lokakafla leiksins eftir þétt leikjaprógramm.

Sport