
MeToo

Rekinn eftir áreitni og ráðinn hjá öðru félagi
Fyrrverandi handboltakona sem var áreitt kynferðislega af þjálfara sínum er óánægð með framgöngu HSÍ í málinu. Þjálfarinn var rekinn eftir að upp komst um brot gegn annarri konu en var síðar ráðinn hjá öðru liði.

Steven Seagal sakaður um nauðgun
Hasarleikarinn Steven Seagal hefur verið sakaður um að hafa nauðgað aukaleikara við tökur á kvikmyndinni On Deadly Ground árið 1993.

Fimm reknir frá KR
Fimm menn hafa verið látnir fara frá KR undanfarin ár vegna ósæmilegrar framkomu. Alvarlegustu dæmin sem íþróttakonur nefna um kynferðislegt ofbeldi eru mál sem eiga heima hjá lögreglu, segir formaður FH.

Jónína segist skapi næst að hvetja „strákana okkar“ til að nafngreina stelpur
Þakka ég þér fyrir að kasta rýrð á frásögn mína um það ömurlega ofbeldi sem ég mátti þola 16 ára gömul, segir Hafdís Inga Hinriksdóttir.

Boða aðgerðir vegna áreitni og ofbeldis í íþróttum
Mennta- og menningarmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp sem mun vinna aðgerðaráætlun vegna kynferðislegrar áreitni og brota innan íþróttahreyfingarinnar. Fyrrverandi framkvæmdastjóri íþróttafélaga segir nauðsynlegt að viðbrögð félaga við þessum málum séu samræmd.

Áfall að lesa frásagnir íþróttakvenna
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að allir verði að geta treyst því að íþróttastarf sé öruggur vettvangur

Yfirlýsing frá ÍSÍ: Ofbeldi verður ekki liðið!
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á því að íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna.

Stofna starfshóp um áreitni í íþróttum: „Þetta er fyrsta skrefið“
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði í dag með forseta ÍSÍ, framkvæmdastjóra UMFÍ og íþróttakonum í tengslum við MeToo yfirlýsingu íþróttakvenna.

Formaður UMFÍ: Hryggir mig hversu lengi einstaklingar hafa borið þessar sáru sögur innra með sér
Ungmennafélag Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess að margar íþróttakonur hafa nú stigið fram og greint frá hræðilegum brotum gegn sér innan ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar undir myllumerkinu #metoo.

Frásögn Hólmfríðar orðin að fréttamáli í Noregi
Íslenska landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir staðfesti í gær að hún ætti eina af frásögnuum 62 sem birtust þegar íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna.

Mira Sorvino biðst fyrirgefningar á samstarfi við Woody Allen
Leikkonan Mira Sorvino hefur skrifað opið bréf til Dylan Farrow, dóttur Woody Allen, þar sem hún segist sjá eftir því að hafa unnið með leikstjóranum.

Formaður FÍL um brottrekstur í leikhúsinu: „Ekki besta leiðin til framtíðar að að málin séu leyst innanhúss“
Lögmaður í vinnurétti segir atvinnurekendur sannarlega geta rekið starfsmenn fyrirvaralaust ef rík ástæða er fyrir hendi. Formaður félags íslenskra leikara óskar þess að ekki verði haldið áfram að leysa erfið og viðkvæm mál innanhúss í framtíðinni.

Vinnumarkaðurinn gegnir lykilhlutverki í baráttunni gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök skrifuðu undir viljayfirlýsingu í dag. Þá verður skipaður starfshópur á næstunni sem mun kortleggja áreitni og ofbeldi á vinnumarkaði.

Framkvæmdastjóri ÍSÍ: „Þetta er ólíðandi og við viljum ekki að þetta gerist innan okkar raða“
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, segir að kynferðisleg áreitni og ofbeldi sé ólíðandi og óvelkomið innan íþróttasamfélagsins.

Hólmfríður var áreitt í Noregi: Þjálfarinn sagðist vera heima með hann beinstífan
Hólmfríður Magnúsdóttir greindi frá raunum sínum í Noregi þegar MeToo-sögur íslenskra íþróttakvenna voru birtar í dag.

Þjálfari skammaði leikmann fyrir að mæta of seint eftir að hafa nauðgað henni
Nokkrar nauðganir þjálfara og landsliðsmanna eru á meðal reynslusagna sem íþróttakonur sendu frá sér í dag.

Íþróttakonur jafna leikinn: Lýsa áreitni, mismunun, ofbeldi og nauðgunum
462 núverandi og fyrrverandi íþróttakonur sendu í dag frá sér MeToo yfirlýsingu ásamt 62 reynslusögum.

Ríkisstjóri sakaður um að kúga viðhaldið með nektarmyndum
Vonarstjarna repúblikana bauð sig fram sem „fjölskyldumaður“ í kosningum til ríkisstjóra fyrir tveimur árum.

Michael Douglas hafnar fyrirfram ásökun um ósæmilega kynferðislega hegðun
Leikarinn Michael Douglas hefur stigið fram og hafnað ásökun á hendur honum um ósæmilega kynferðislega hegðun. Ásökunin hefur enn ekki verið sett fram opinberlega.

Sagt upp vegna ásökunar um nauðgun
Jón Páll er sakaður um nauðgun sem átti sér stað í vinnuferð fyrir tæpum tíu árum síðan.

#metoo-sögur streyma enn á facebook-síður
Stjórnendur facebook-síðu kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð segja afleiðingar byltingarinnar ræddar í hópnum og að tilfinningar séu blendnar enda bransinn lítill. Þær segja von á tíðindum frá fleiri starfshópum.

James Franco hafnar ásökunum um kynferðislega áreitni
Leikarinn og leikstjórinn James Franco segir ásakanir á hendur honum um kynferðislega áreitni ekki réttar.

Saka Catherine Deneuve um fyrirlitningu í garð þolenda kynferðisofbeldis
Ein þekktasta leikkona Frakka, Catherine Deneuve, er ein af 100 frönskum konum sem skrifa undir opið bréf þar sem segir að menn eigi rétt á því að reyna við konur og að það sé ekki sama að nauðga og að reyna við konu, jafnvel þó karlinn sé ágengur í því.

Greta Gerwig tjáir sig um Woody Allen: „Ég mun aldrei vinna fyrir hann aftur“
Leikstjórinn og leikkonan Greta Gerwig hefur tjáð sig um þá staðreynd að hún lék í mynd Woody Allen To Rome with Love árið 2012.

Jón Páll hefur látið til sín taka í baráttu gegn nauðgunum
Jón Páll Eyjólfsson fyrrverandi leikhússtjóri LA var látinn fara vegna ásakana um kynferðislega áreitni eða ofbeldi.

Laun Mark Wahlberg 1,5 milljónir dollara en laun Michelle Williams þúsund dollarar
USA Today sem greindi frá málinu og hafði eftir þremur mismunandi heimildarmönnum sem þekktu til málsins.

Oprah Winfrey stal senunni á Golden Globe með tilfinningaþrunginni ræðu
Bandaríski þáttastjórnandinn og leikkonan Oprah Winfrey varð í nótt fyrsta svarta konan til að hljóta Cecil B. DeMille-verðlaunin á Golden Globe-hátíðinni en um er að ræða heiðursverðlaun hátíðarinnar.

Giske segir af sér sem varaformaður Verkamannaflokksins
Trond Giske ákvað að stíga tímabundið til hliðar fyrsta janúar eftir að hann var sakaður um að hafa áreitt stjórnmálakonu í ungliðahreyfingu flokksins kynferðislega.

Hátíðahöld, glys og glamúr í skugga kynferðisofbeldis
Golden Globe-verðlaunahátíðin verður haldin í kvöld en um er að ræða fyrstu stóru verðlaunahátíðina sem haldin er síðan kynferðisleg áreitni valdamanna í Hollywood var dregin fram í dagsljósið.

Ed Westwick skipt út í þáttaröð BBC vegna ásakana um kynferðislegt ofbeldi
Framleiðendur BBC-þáttaraðarinnar Ordeal by Innocence hafa skipt leikaranum Ed Westwick út fyrir leikarann Christian Cooke vegna ásakana sem komið hafa fram á hendur Westwick um kynferðislega áreitni.