
Skotárás í Flórída

Svara Louis CK fullum hálsi eftir að hann gerði grín að Parkland-fórnarlömbum
Bandaríski grínistinn Louis CK virðist enn á ný hafa komið sér í vandræði eftir að hluta af atriði úr uppistandi hans var lekið á netið. Þar má heyra hann gera miskunnarlaust grín að þeim nemendum sem komust lífs af eftir skotárásina í Parkland á síðasta ári og hafa barist fyrir hertri skotvopnalöggjöf í Bandaríkjunum.

Faðir fórnarlambs skotárásarinnar í Parkland syrgir á afmælisdegi dóttur sinnar
Jamie Guttenberg hefði orðið 15 ára þann 13. júlí.

Árásin í Parkland breytti litlu
Skólaskotárásin í Parkland í Flórída, þar sem sautján nemendur voru myrtir, hafði engin varanleg áhrif á afstöðu Bandaríkjamanna gagnvart skotvopnaeign.

Ted Nugent kallar eftirlifendur Parkland-skotárásarinnar „sálarlausa“
Aldraði rokkarinn og NRA-stjórnarmeðlimurinn Ted Nugent fór ófögrum orðum um eftirlifendur skotárásarinnar í Parkland í Flórída í spjallþættinum The Joe Pags Show síðastliðinn föstudag.

Dreifa fölsuðum myndum af ungri baráttukonu
Myndirnar sýna Emmu González rífa í sundur stórt blað sem hefur verið breytt í bandarísku stjórnarskrána með myndvinnsluforriti.

Vill að börn læri endurlífgun í stað hertra byssulaga
Ummæli þingmannsins og forsetaframbjóðans fyrrverandi, Rick Santorum, hafa vakið mikil viðbrögð.

Ældi á sviði og hélt ræðu sinni áfram
Sam Fuentes hélt ræðu fyrir framan um hálfa milljón manna og fjölda myndavéla sem sendu ræðuna út víða um heim.

Las upp nöfn fallinna skólafélaga og þagði
Emma González var ein þeirra sem steig á svið í Washington D.C. í dag eftir kröfugönguna March for Our Lives.

Saksóknarar krefjast dauðarefsingar yfir Cruz
Nikolas Cruz er sakaður um að hafa orðið 17 manns að bana í skotárás við Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólann í Flórída í febrúar.

Byssueigendur reyna að fella niður ný skotvopnalög í Flórída
Höfða mál eftir að ríkisstjóri Flórída skrifaði undir lög sem meðal annars hækka aldurstakmark við kaup skotvopna úr 18 í 21.

Breytingar á skotvopnalögum einni undirskrift frá veruleika
Ný skotvopnalöggjöf í Flórída-ríki er einu skrefi nær því að líta dagsins ljós eftir að fulltrúadeild ríkisþingsins samþykkti frumvarp þess efnis í gærkvöldi.

Stór verslunarkeðja hættir sölu á hríðskotabyssum
Þá mun verslunarkeðjan einnig styðja umbætur á skotvopnalöggjöf Bandaríkjanna

Leyfa sér um að efast að Trump hefði hlaupið inn í skólann
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram á dögunum að hann hefði hlaupið inn í Stoneman Douglas-skólann í Flórída hefði hann verið á staðnum þegar mannskæð skotárás var framin þar fyrr í mánuðinum.

Stuðningur við takmarkanir á byssueign komi ekki til greina
Samtök byssueigenda í Bandaríkjunum segja ekki koma til greina að samtökin styðji við einhverskonar takmarkanir á byssueign í Bandaríkjunum.

Lifði af skotárásina og þjarmaði að þingmanni í sjónvarpssal
Cameron Kasky, einn þeirra nemenda Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólans sem hafa verið hvað háværastir í baráttu sinni fyrir hertri byssulöggjöf í Bandaríkjunum, gekk hart að öldungardeildarþingmanninum og Repúblikananum Mark Rubio í gær.

Sakaður um blekkingar eftir að hafa lifað af skotárás
Hinn 17 ára gamli David Hogg hefur undanfarna daga verið sakaður um að vera leikari sem fái borgað fyrir að berjast fyrir hertri skotvopnalöggjöf.

Höfðu ekki hugmynd um að „skrímsli“ byggi með þeim
Allt sem allir aðrir virðast hafa vitað, sáum við ekki. Það er svo einfalt, segja Sneade hjónin.

Krefja stjórnmálamenn um herta byssulöggjöf í Washington
Nemendur við Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólann í Flórída, þar sem 17 létust í skotárás á miðvikudag, hafa boðað til kröfugöngu í Washington D.C.

„Skammist ykkar“
Emma Gonzalez, einn nemandanna sem lifði af skotárás í Marjorie Stoneman Douglas High School á miðvikudag, kallaði eftir strangari skotvopnalöggjöf og gagnrýndi forsetan harðlega í gær.

Kennir Rússarannsókn um mistök í máli Cruz
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt bandarísku alríkislögregluna, FBI, fyrir að hunsa ábendingar um Nikolas Cruz sem myrti 17 manns í framhaldsskóla í Flórída á miðvikudag.

Tíu sinnum ráðist á skóla á tæpu hálfu ári
Skólaskotárás í Flórída er sú tíunda vestan hafs á tæplega hálfu ári. Donald Trump Bandaríkjaforseti talar um geðheilsuvanda, Demókratar benda á byssueign.

Cruz leggur spilin á borðið
Hinn 19 ára gamli Nikolas Cruz, sem sakaður er um að hafa myrt 17 manns í framhaldsskóla í Flórída á miðvikudag, hefur játað á sig verknaðinn.

„Trump! Vinsamlegast gerðu eitthvað!“
Tilfinningaþrungið viðtal bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN við móður stúlku sem lést í skotárásinni í Flórída í gær hefur vakið mikla athygli.

Átjánda árásin í skólum í Bandaríkjunum frá áramótum
Sú mannskæðasta sem gerð hefur verið í menntaskólum í Bandaríkjunum en sautján manns létust í árásinni og tugir manna særðust.

Skotárásin í Flórída: Aðstoðarþjálfari dó hetjudauða
Aaron Feis, aðstoðarþjálfari fótboltaliðs Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólans, kastaði sér í veg fyrir árásarmanninn og kom nemanda við skólann í öruggt skjól.

Trump segir útlit fyrir að árásarmaðurinn hafi átt við geðræn vandamál að stríða
Auk þess að vera vopnaður riffli var Nikolas Cruz með mikið af skotum, gasgrímu og reyksprengjur sem hann notaði til að skapa glundroða í skólanum sem rúmlega þrjú þúsund nemendur sækja.

Óhugnanlegar færslur á samfélagsmiðlum í aðdraganda árásarinnar
Maðurinn sem nú er í haldi lögreglunnar vegna skotárásarinnar í Parkland í Flórída er sagður heita Nikolas Cruz og vera 19 ára gamall.

Fyrrum nemandi skólans í varðhaldi eftir skotárásina í Flórída
Minnst fimmtíu eru særðir og nokkrir látnir.

Skotárás í skóla í Flórída: Nokkrir látnir en lögreglan er með árásarmann í haldi
Fréttamyndir vestanhafs sýna nemendur flýja skólann sem var umkringdur lögreglumönnum.