Bretland
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 128 ›
Einn látinn og tíu inniliggjandi á sjúkrahúsi með ómíkron Fyrsta andlát einstaklings sem greindist með ómíkron-afbrigði veirunnar hefur nú verið staðfest í Bretlandi, rúmum mánuði frá því að afbrigðið kom fyrst upp í Suður-Afríku. Forsætisráðherra Bretlands útilokar ekki að aðgerðir verði hertar enn frekar á næstu dögum. Erlent 13.12.2021 17:26
Tveggja leitað í sjónum eftir að flutningaskip rákust saman Sjóslys varð á Eystrasalti í nótt þegar tvö flutningaskip rákust saman miðja vegu á milli sænska bæjarins Ystad og dönsku eyjarinnar Borgundarhólms. Annað skipið er danskt en hitt breskt. Erlent 13.12.2021 07:57
Bretar hyggjast bólusetja milljón á dag til að koma í veg fyrir ómíkron-bylgju Stjórnvöld á Bretlandseyjum hyggjast freista þess að gefa allt að milljón manns örvunarskammt á hverjum degi í desember til að undirbúa samfélagið fyrir „ómíkrón-bylgju“ sem þeir gera ráð fyrir að skelli á landinu í janúar. Erlent 13.12.2021 06:47
Ómíkronsmitaðir leggjast inn á spítala í fyrsta sinn Einn af hverjum þremur sem smitast af kórónuveirunni í Lundúnum smitast af ómíkron-afbrigðinu. Nú hafa fyrstu sjúklingarnir lagst inn á spítala með afbrigðið á Bretlandseyjum. Erlent 12.12.2021 15:01
Myrti eiginkonu sína með því að keyra yfir hana David Turtle, fyrrverandi sveitarstjórnarmaður frá Bournemouth á Englandi, hefur verið fundinn sekur fyrir frönskum dómstól um að hafa myrt eiginkonu sína. Morðvopnið var Mercedes Benz bifreið hans. Erlent 11.12.2021 14:50
Fyrrverandi ráðherra hafi nauðgað eiginkonu sinni ítrekað Andrew Griffiths, fyrrverandi ráðherra og þingmaður breska íhaldsflokksins, nauðgaði fyrrverandi eiginkonu sinni, þingmanninum Kate Griffiths, ítrekað. Þetta segir í niðurstöðum forræðismáls sem hann höfðaði á hendur Kate. Erlent 10.12.2021 20:38
Geta framselt Assange til Bandaríkjanna Dómstóll í London sneri í dag við fyrri úrskurði undirréttar þar sem framsalsbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna Julian Assange, stofnanda Wikileaks, var hafnað. Erlent 10.12.2021 10:45
Handtekinn fyrir að leka myndbandi sem sýndi herþotu hrapa örskömmu eftir flugtak Brak F-35 herþotu breska flughersins sem hrapaði í Miðjarðarhafið örfáum andartökum eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið endurheimt. Sjóliði um borð hefur verið handtekinn fyrir að leka myndefni sem sýndi þotuna hrapa. Erlent 9.12.2021 23:30
Einn stofnenda Bronski Beat látinn Breski tónlistarmaðurinn Steve Bronski, einn stofnenda sveitarinnar Bronski Beat, er látinn, 61 árs að aldri. Lífið 9.12.2021 15:06
Réðust inn á heimili heimsmeistara með hnífa og ógnuðu líka konunni og börnum Hjólreiðakappinn Mark Cavendish lenti ásamt fjölskyldu sinni í hræðilegri lífsreynslu fyrri stuttu þegar innbrotsþjófar birtust á heimili þeirra með hnífa. Sport 9.12.2021 13:00
Kínverjar segja ríki munu gjalda fyrir að sniðganga Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína segja að Ástralir, Bretar og Bandaríkjamenn muni gjalda fyrir þau mistök sín að senda ekki opinberar sendinefndir á Ólympíuleikana í Pekíng í febrúar. Erlent 9.12.2021 11:53
Boris Johnson nú sjö barna faðir Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Carrie Johnson, eiginkona hans, eignuðust dóttur í dag, en þetta er annað barn þeirra hjóna. Erlent 9.12.2021 11:18
Myndband sýnir ráðgjafa grínast með hina meintu jólaveislu skömmu eftir að hún á að hafa verið haldin Myndband sem breska sjónvarpsstöðin ITV birti í kvöld sýnir háttsetta ráðgjafa Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, grínast með meinta jólaveislu fjórum dögum eftir að hún á að hafa verið haldin. Erlent 7.12.2021 23:30
Uppljóstrari lýsir ringulreið og skipulagsleysi af hálfu breskra stjórnvalda Tugþúsundir Afgana sem höfðu aðstoðað Breta og óttuðust um líf sitt þegar Talíbanar tóku aftur völd í Afganistan, náðu ekki í gegn og fengu enga aðstoð vegna skipulags- og sinnuleysis af hálfu breska utanríkisráðuneytisins. Erlent 7.12.2021 06:44
Gerir ráð fyrir að Omíkron verði ráðandi afbrigðið á Bretlandseyjum á næstu vikum Breskur smitsjúkdómasérfræðingur segist gera ráð fyrir því að Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar verði orðið ráðandi á Bretlandseyjum á næstu vikum eða mánuði. Erlent 6.12.2021 12:19
Segir of seint að bregðast við omíkron með takmörkunum Nýjustu breytingar breskrar stjórnvalda á ferðatakmörkunum til landsins, sem gripið hefur verið til í því skyni að stemma stigu við útbreiðslu omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar þar í landi, koma of seint að mati vísindamanns sem ráðleggur ríkisstjórninni við sóttvarnaaðgerðir. Erlent 5.12.2021 23:00
Bretar herða reglurnar vegna omíkron Ferðamenn sem vilja komast inn í Bretland munu þurfa að framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi fyrir brottför til landsins. Ástæðan er útbreiðsla nýja omíkron-afbrigðis veirunnar, sem lítið er vitað um á þessari stundu. Erlent 4.12.2021 22:14
Óttast að Rússar reyni að stelast í flak herþotunnar sem hrapaði örskömmu eftir flugtak Breski herinn hefur fundið flak herþotunnar sem hrapaði í Miðjarðarhafið örfáum sekúndum eftir flugtak við heræfingar í Miðjarðarhafinu. Þjóðaröryggisráðgjafi Breta telur líklegt að Rússar fylgist grannt með. Erlent 2.12.2021 23:30
Fyrrum leikmaður Liverpool og Arsenal látinn Ray Kennedy, fyrrum leikmaður Liverpool, Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta, lést í gær, sjötugur að aldri, eftir langvarandi veikindi. Enski boltinn 1.12.2021 07:01
Myndband virðist sýna herþotu hrapa í sjóinn örskömmu eftir flugtak Myndband sem virðist sýna eina af F-35 herþotu breska hersins hrapa í sjóinn eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið birt á samfélagsmiðlum. Erlent 30.11.2021 09:10
Barbados slítur tengsl við bresku krúnuna og verður lýðveldi Eyríkið Barbados er orðið lýðveldi. Á miðnætti á staðartíma, eða klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma sleit Barbados öll tengsl við Elísabetu Englandsdrottningu og er hún því ekki lengur þjóðhöfðingi landsins. Erlent 30.11.2021 07:28
Hinn goðsagnakenndi Sir Frank Williams er látinn Frank Williams, stofnandi og fyrrum eigandi Williams liðsins í Formúlu 1 lést í gærmorgun 79 ára að aldri. Hann hafði verið lagður inn á sjúkrahús á föstudag. Bílar 29.11.2021 07:01
Bretar herða tökin vegna tveggja tilfella Ómíkron Boris Johnson tilkynnti hertar sóttvarnaraðgerðir í Bretlandi á fjölmiðlafundi í dag. Ástæðan er sú að tveir greindust smitaðir af Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar þar í landi í gær. Erlent 27.11.2021 18:00
Ómíkron-afbrigðið komið til Bretlands Tveir einstaklingar hafa greinst með Ómikron-afbrigði kórónuveirunnar í Bretland að því er heilbrigðisyfirvöld þar í landi greina frá. Erlent 27.11.2021 14:42
Fjórir táningar handteknir fyrir að berja tólf ára stúlku til dauða Lögreglan í Liverpool hefur handtekið fjóra táningsdrengi vegna gruns um að þeir hafi myrt tólf ára stúlku. Ráðist var á stúlkuna í kjölfar rifrildis í gærkvöldi og dó hún i kjölfarið vegna mikilla meiðsla sem hún hlaut. Erlent 26.11.2021 10:40
Frakkar aflýsa flóttamannafundi með Bretum vegna bréfs Johnsons Innanríkisráðherra Frakka hefur aflýst fyrirhuguðum fundi með kollega sínum frá Bretlandi þar sem ræða átti flóttamannamálin á Ermarsundi. Ástæðan mun vera bréf sem Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sendi Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem þess er krafist að Frakkar taki aftur við því fólki sem kemst yfir Ermarsundið til Bretlands. Erlent 26.11.2021 07:57
Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. Erlent 25.11.2021 23:15
Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn. Erlent 25.11.2021 16:38
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. Erlent 25.11.2021 07:25
Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi. Erlent 24.11.2021 21:47