Svíþjóð

Svíþjóð

Höfuðborg: Stokkhólmur. Mannfjöldi: 10,6 milljónir (2025). Flatarmál: 450.295 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Svíar stöðvuðu annað skuggaskip

Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) og sænskir sérvseitarmenn gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Skelfi­leg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra á­hrifa­ríkasta“

Myndlistarmaðurinn Jón Óskar vakti athygli á „Söng villiandarinnar“ á Fésbókinni í gær og sagðist alltaf jafn hissa á því hvað lagið sé fallegt. Ekki deildu allir vinir Jóns ást hans á laginu og skiptist fólk í fylkingar á þræðinum. Þar er lagið ýmist sagt „eitt fallegasta dægurlag íslenskrar tónlistarsögu“ eða það „hræðilegasta í samanlagðri íslenskri tónlist“.

Lífið
Fréttamynd

Sagði já og baðst í leiðinni af­sökunar

„Greyið Ásgeir stakk upp á því að við myndum horfa á sólsetrið niðri á strönd en ég var svo ólétt að ég nennti því ekki. Að lokum náði hann þó að draga mig út að borða,“ segir hin nýgifta Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir um eftirminnilega trúlofun. Sigurlaug Sara er búsett í Stokkhólmi ásamt eiginmanni sínum Ásgeiri Pétri, barni og hundi sem fer í hundaleikskóla.

Lífið
Fréttamynd

Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“

Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni.

Sport
Fréttamynd

Lokar hringnum eftir tíu ár er­lendis

Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið.

Lífið
Fréttamynd

„Sprengju­flug­vélar er ógnin sem við sjáum hér“

Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar.

Innlent
Fréttamynd

Mette-Marit biðst af­sökunar á tengslum sínum við Epstein

Norska krónprinsessan Mette-Marit viðurkennir að hafa dvalið á heimili Jeffreys Epstein í Palm Beach árið 2016. Hún biðst afsökunar á tengslum sínum við kynferðisafbrotamanninn alræmda en hún er nefnd á nafn nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Konungur Dana er einnig nefndur í skjölunum og prinsessa Svíþjóðar.

Erlent
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur

Sænsk yfirvöld hyggjast lækka sakhæfisaldur úr fimmtán árum í þrettán ár. Yfirvöld ytra glíma við fjölda barna sem ganga í raðir glæpasamtaka. Lægri sakhæfisaldur ætti þó einungis við í alvarlegri glæpum.

Erlent
Fréttamynd

Désirée prinsessa látin

Prinsessan Désirée Elisabeth Sibylla, Silfverschiöld-barónessa og eldri systir Karls Gústafs XVI Svíakonungs, lést miðvikudaginn 21. janúar 2026, 87 ára að aldri.

Lífið
Fréttamynd

Þrír fullir Ís­lendingar lausir úr haldi

Sænska lögreglan hafði afskipti af þremur íslenskum karlmönnum fyrir drykkjulæti í Kristianstad í Svíþjóð á laugardaginn var. Mennirnir voru í haldi lögreglu í nokkrar klukkustundir en voru síðan látnir lausir. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Kristianstad í samtali við Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar sitja fastir í Sví­þjóð

Fjölmargir Íslendingar áttu og eiga bókaða heimferð frá Kristianstad í dag eftir helgardvöl yfir fyrstu tveimur leikjum liðsins á mótinu. Misvel gekk hjá þeim að ná flugi vegna vandræða á lestarsamgöngum.

Handbolti