Samfylkingin
40 41 42 43 44 45 46 47 … 47 ›
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
Deila um styrkveitingu til Fram Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram. Innlent 19.5.2006 17:03
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. Innlent 19.5.2006 11:58
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. Innlent 19.5.2006 08:33
Vinstri grænir tvöfalda fylgi sitt Fylgi hrynur af Framsóknarflokknum á Akureyri en Vinstri grænir nánast tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum, samkvæmt þeim, sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Sjáflstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 15.5.2006 08:51
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Innlent 9.5.2006 21:14
Ekkert athugavert við endurgreiðsluna Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ segir ekki hægt að bera ákvörðun um endurgreiðslu á hluta fasteignagjalda skömmu fyrir kosningar saman við það að borgarstjórinn í Reykjavík auglýsi viðtalsfundi fáeinum vikum fyrir kosningar. Lækkunin er kosningadúsa upp í kjósendur segir oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ. Erlent 8.5.2006 22:08
Hálfur annar milljarður í nefndir Nefndir ráðuneytanna kostuðu ríkissjóð nær einn og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar er vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 11:56
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Litlu flokkarnir sækja í sig veðrið Sjálfstæðisflokkur tapar töluverðu fylgi og litlu flokkarnir sækja á í Reykjavík samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag. Innlent 23.4.2006 10:02
Gísli biðst lausnar sem varaþingmaður Gísli S. Einarsson hefur ákveðið að biðjast lausnar undan skyldum sínum sem varaþingmaður Samfylkingarinnar. Gísli þáði á dögunum boð Sjálfstæðismanna á Akranesi um að verða bæjarstjóraefni þeirra í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði. Innlent 21.4.2006 15:58
Stefna á meirihluta í bæjarstjórn Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt. Innlent 19.4.2006 18:07
Gísli verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi í vor. Innlent 19.4.2006 10:43
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Vilja sleppa skatti af sjúkrastyrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar 260 milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 11.4.2006 21:30
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Óttast ekki andstöðu við frumvarpið Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið. Innlent 3.4.2006 16:58
Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu. Innlent 3.4.2006 15:54
Sjálstæðismenn með vísan meirihluta Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi. Innlent 26.3.2006 11:46
Varamaður fyrir varamann Jón Kr. Óskarsson tók sæti á Alþingi sem varamaður við upphaf þingfundar í dag. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann tekur sæti á þingi í stað varaþingmannsins Söndru Franks, sem hafði áður verið kölluð inn á þing sem varamaður Rannveigar Guðmundsdóttur. Innlent 2.3.2006 10:33
Bjóða fram A-lista í Reykjanesbæ Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óflokksbundnir í Reykjanesbæ ætla að bjóða sameiginlega fram til næstu bæjarstjórnarkosninga undir bókstafnum A. Innlent 1.3.2006 09:35
Sigurður Pétursson leiðir Í-lista Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann á Ísafirði, sigraði í prófkjöri prófkjöri Í-listans í Ísafjarðarbæ sem fram fór í gær. Hlaut hann 192 atkvæði í 1. sæti og alls 294 atkvæði. Innlent 26.2.2006 10:02
Tólf vilja sæti á Í-lista Tólf eru í framboði í prófkjöri Í-listans, sameiginlegs framboðs Frjálslynda flokksins, Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Ísafirði sem fram fer í dag. Innlent 25.2.2006 09:59
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. Innlent 13.2.2006 11:57
Dagur fékk 47 prósent atkvæða Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi vann öruggan sigur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og fékk 47 prósent atkvæða í fyrsta sæti. Í næstu sætum eru Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúarnir Stefán Jón Hafstein og Björk Vilhelmsdóttir. Innlent 13.2.2006 09:03
Á áttunda hundrað hafa kosið Um 740 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lauk klukkan átta. Þar af hafði um helmingur greitt atkvæði í dag. Innlent 10.2.2006 20:49
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Vilja lækka skatta á eftirlaun Sex þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að skattar á eftirlaun og ellilífeyri verði lækkaðir. Í rökstuðningi við tillöguna segir að eftirlaun og ellilífeyrir séu tvö- og jafnvel þrísköttuð og því sé réttast að lækka skatta á þeim. Innlent 3.2.2006 07:00
Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum. Innlent 26.1.2006 07:30
Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa af fimmtán í Reykjavík ef gengið væri til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndi flokkurinn næði inn borgarfulltrúa. Innlent 22.1.2006 12:03