Viðreisn

Fréttamynd

Sam­fylkingin og ríkis­stjórnin lækka flugið

Samfylkingin tapar fylgi milli mánaða á meðan Framsókn og Vinstri græn bæta við sig. Þetta sýna niðurstöður nýs Þjóðarpúls Gallups en stuðningur við ríkisstjórnina minnkar frá því í janúar. Miðflokkurinn mælist áfram stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Innlent
Fréttamynd

Dagur segir Þor­stein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að þegar Davíð Oddsson gekk beint úr stóli borgarstjóra í forsætisráðuneytið 1991 hafi samningar um EES-samningana verið tilbúnir á laun í samningum milli þeirra Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Innlent
Fréttamynd

Gylfi Þór leiðir Við­reisn í Mos­fells­bæ

Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Kveður Þor­gerði og snýr sér að Guði

Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, hefur ákveðið að láta af störfum eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann bauð sig fram í oddvitasæti Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar en laut í lægra haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur.

Innlent
Fréttamynd

Tvö­falt fleiri karlar en konur kjósa Mið­flokkinn

Samkvæmt nýrri könnun Prósents á fylgi flokka er Samfylkingin með mesta fylgið, eða 30,1 prósent. Miðflokkurinn er þar næststærsti flokkurinn með 19,6 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn nánast með sama fylgi, 13,7 og 13,5. 

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokki fatast flugið

Miðflokknum fatast flugið og Sjálfstæðisflokkurinn nær vopnum sínum í nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar voru birtar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en meðal annarra tíðinda eru þau að Píratar mælast í þetta skiptið með meira fylgi en Flokkur fólksins.

Innlent
Fréttamynd

Varnar­barátta Úkraínu og Rúss­lands­skatturinn

Fjögur ár eru nú liðin frá því að allsherjarinnrás Rússlands inn í Úkraínu hófst. Stríð sem Rússar áformuðu að myndi standa yfir í þrjá sólarhringa en vanmátu algerlega hetjudáð og baráttuþrek úkraínsku þjóðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

„Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd spyr hvað ríkisstjórnin hafi að fela þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB og spyr hvort nafnlausir heimildarmenn í Brussel muni einir fá að vita hvenær hún fari fram. Þingflokksformaður Viðreisnar segir enga leyndarhyggju í gangi, þjóðaratkvæðagreiðslan verði tekin fyrir á þingi á næstunni.

Innlent
Fréttamynd

Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það

Guðný S. Bjarnadóttir, formaður Vitundar – samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, segir það koma öllum við þegar menn kaupa eða reyna að kaupa vændi. Hún setur út á afstöðu Jóns Gnarr, þingmanns Viðreisnar, gagnvart afsögn Guðbrands Einarssonar af þingi. Guðný segir engan hafa krafist afsagnar hans, það hafi verið ákvörðun Guðbrands, og ákvörðunina eigi að virða. Gerendur verði að fá að taka ábyrgð á sínum gjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Boðar tíma­bundna heimild svo unnt sé að senda er­lenda fanga fyrr úr landi

Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn.

Innlent
Fréttamynd

Fram­lag Ís­lands mun minna en annarra Norður­landa

Formaður utanríkismálanefndar segir framlag Íslands til Úkraínu mun minna á hvern íbúa en á hinum Norðurlöndunum en í gær tilkynnti utanríkisráðuneytið um milljarðs framlag til vopnakaupa til handa Úkraínumönnum. Nauðsynlegt sé að gefa Úkraínu færi á að verja sig til að stöðva hæga framrás Rússa.

Innlent
Fréttamynd

Strætó fyrir sum börn, ekki öll

Við fjárhagsáætlunarvinnu Hafnarfjarðarbæjar síðustu fjögur ár lagði ég fram tillögu að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði fargjöld hafnfirskra barna í strætó.

Skoðun
Fréttamynd

Efna­hags­leg á­byrgð er fjöl­skyldu­mál

Til að byggja upp gæðasamfélag fyrir fjölskyldur landsins verðum við fyrst og fremst að horfa til grunnstoðanna. Þar vegur efnahagslegur stöðugleiki þyngst. Án hans veikjast allar aðrar stoðir: heilbrigðiskerfi, menntakerfi, húsnæðiskerfi og félagslegt öryggisnet.

Skoðun
Fréttamynd

„Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leik­rit og skuespil“

Þingmenn stjórnarandstöðunnar lögðu til að þriðju umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar yrði flýtt á Alþingi í dag. Með þessu sögðust þingmenn vilja „leggja fram hjálparhönd“ til dómsmálaráðherra til að unnt væri að afgreiða málið, en stjórnarþingmenn sökuðu stjórnarandstöðuna um að fara með leikþátt. Tillagan var felld með 29 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna gegn 19 atkvæðum stjórnarandstöðunnar.

Innlent
Fréttamynd

„Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjör­búð“

Nú þegar sjö flokkar hafa kynnt oddvita sína í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar vekur athygli að þar af eru fimm sem hafa með einum eða öðrum hætti tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins. Oddvitarnir hafa tekið misvirkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins áður en þeir tóku oddvitasæti fyrir aðra flokka í Reykjavík, en þetta hefur vakið athygli netverja sem hafa tjáð sig um þessa forvitnilegu staðreynd á samfélagsmiðlum.

Innlent
Fréttamynd

„Ekki hlut­verk hins opin­bera að ýta sparnaði fólks í í­búðir“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar að stuðla að einföldun regluverks og að það eigi að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta sparnaði sínum á Íslandi, enda hafi þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði ýmislegt jákvætt í för með sér. „Við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stöndum vörð um gildi okkar og hug­sjónir

Nýju lífi hefur verið blásið í glæður umræðna um Evrópusambandsaðild Íslands. Á fáeinum misserum hafa skeð atburðir á hinu alþjóðlega sviði sem sem áður þóttu óhugsandi. Sumir svo mjög að hriktir í stoðum þeirrar heimsmyndar sem leit ljós í kjölfar heimstyrjaldarinnar síðari.

Skoðun
Fréttamynd

Birgir Örn ó­viss en Ísak Leon hand­viss

Birgir Örn Guðjónsson, frambjóðandi á lista Viðreisnar í Kópavogi, segist svekktur eftir að hafa ekki fengið kjör og íhugar hvort hann muni þiggja sæti á lista flokksins verði honum boðið sæti. Ísak Leon Júlíusson, annar frambjóðandi sem hlaut ekki kjör, er aftur á móti handviss um að hann muni þiggja sæti.

Innlent
Fréttamynd

Kópa­vogur og amma Stella

Nú stendur yfir fyrsta prófkjör Viðreisnar í Kópavogi. Í framboði eru sjö framúrskarandi einstaklingar sem berjast um fyrstu þrjú sætin. Það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í baráttu með fólki sem brennur fyrir samfélagið okkar og er tilbúið að gefa tímann sinn til að láta gott af sér leiða í þágu Kópavogs.

Skoðun