Vinstri græn
37 38 39 40 41 42 … 42 ›
Tuttugu og níu vilja á lista Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu Tuttugu og níu bjóða sig fram í prófkjöri Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu. Sameiginlegt prófkjör er fyrir félög hreyfingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út á laugardaginn en prófkjörið verður haldið 2. desember næstkomandi. Innlent 13.11.2006 14:36
Vinstri grænir aflýsa kjördæmisþingi vegna veðurs Vinstri grænir ætluðu sér að halda kjördæmisþing í Norðvesturkjördæmi í Dalabúð í Búðardal í dag. Þar átti að taka ákvörðun um hvernig staðið yrði að uppröðun á framboðslista í Vinstri grænna í kjördæminu. Aðeins félagar svæðisfélaganna hafa þar atkvæðisrétt. Innlent 5.11.2006 17:47
Álfheiður sækist eftir 1. - 2. sæti Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs gefur kost á sér til þingsetu fyrir flokkinn. Álfheiður sækist eftir 1. til 2. sæti í sameiginlegu prófkjöri VG sem fram fer 2. desember næstkomandi. Innlent 25.10.2006 18:02
Telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi og er á móti því að Bandaríkjamönnum sé heitið aðstöðu hér á landi til heræfinga eða annarra umsvifa á næstu árum. Innlent 26.9.2006 17:51
Vilja afrit af bréfi orkumálastjóra til ráðherra Formaður þingflokks VG hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að fá í hendur afrit af bréfi eða greinargerð orkumálastjóra til ráðherra í kjölfar skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúka árið 2002. Innlent 28.8.2006 15:55
Staðfestir fyrra mat Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins. Stjórnin samþykkti á fundi í dag endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var. Innlent 28.8.2006 15:28
Vilja fresta fyllingu Hálslóns Stjórn og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á ríkisstjórnina og stjórn Landsvirkjunar að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns þar til sérstaklega skipuð matsnefnd óháðra aðila hefur verið fengin til að vinna nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Innlent 26.8.2006 14:00
VG vill að Alþingi komi saman Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að bæði fyrrverandi og núverandi iðnaðarráðherrar geri hreint fyrir sínum dyrum og að Alþingi verði kallað saman ef með þarf vegna nýframkominna upplýsinga varðandi áhættu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þá hefur þingflokkur Frjálslynda flokksins farið fram á að iðnaðarnefnd alþingis verði kölluð saman í upphafi næstu viku til að fjalla um málið. Innlent 25.8.2006 11:20
Reykjanesskagi verði eldfjallagarður Landvernd vill að Reykjanesskagi verði skipulagður sem eldfjallagarður og fólkvangur og að ekki verði ráðist í jarðvarmavirkjanir á nýjum svæðum. Landvernd vill endurskipuleggja svæðið í heild með tilliti til náttúruverndar, útivistar og vinnslu á jarðvarma og jarðhitaefna. Innlent 24.8.2006 14:10
Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að fram fari rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins. Innlent 9.8.2006 11:14
Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur. Innlent 3.6.2006 11:51
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. Innlent 31.5.2006 16:11
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. Innlent 30.5.2006 08:24
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. Innlent 30.5.2006 06:53
Sjálftæðismenn og Frjálslyndir funda á Akranesi í dag Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn. Innlent 29.5.2006 10:26
Meirihlutinn hélt óvænt velli Meirihlutinn hélt á Ísafirði, þvert á það sem skoðanakannanir höfðu gefið ástæðu til að ætla. Bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðismanna vill halda áfram samstarfinu við Framsóknarflokkinn undir sinni forystu. Innlent 28.5.2006 08:44
Straumurinn lá til vinstri Straumur kjósenda lá til vinstri í nótt í stærstu sveitarfélögum landsins þar sem Vinstri-grænir og Samfylkingin bættu við sig fjölda sveitarstjórnarmanna. Sjálfstæðismenn bættu lítillega við sig en Framsóknarmenn töpuðu miklu. Innlent 28.5.2006 08:30
Óánægja milli sjálfstæðismanna og minnihluta í Mosfellsbæ Óánægja er komin upp milli sjálfstæðismanna og minnihlutans í Mosfellsbæ. Ekki náðist samkomulag um tilhögun sameiginlegs framboðsfundar sem vera átti í gær og því varð ekkert úr fundinum. Innlent 25.5.2006 18:48
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. Innlent 19.5.2006 11:58
Vilja ekki stækkun álversins Vinstri-grænir í Hafnarfirði eru andvígir stækkun álversins í Straumsvík og hyggjast beita sér gegn henni í bæjarstjórn nái þeir til þess kjöri. Þeir vilja auk þess auka vægi íbúa Hafnarfjarðar í ákvarðanatöku um mál sem snerta þá. Innlent 15.5.2006 16:47
Vinstri grænir tvöfalda fylgi sitt Fylgi hrynur af Framsóknarflokknum á Akureyri en Vinstri grænir nánast tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum, samkvæmt þeim, sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Sjáflstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 15.5.2006 08:51
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Innlent 9.5.2006 21:14
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Fjölmargir fara á mis við vaxtabætur Fjölmargar fjölskyldur, sem eiga von á umtalsverðum vaxtabótum eins og í fyrra, og miða jafnvel einhverjar greiðslur við það, fá ekki krónu þegar álagningarseðlarnir berast í sumar. Innlent 3.5.2006 12:03
Vinstri-grænir kynna lista sinn Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum leiðir framboðslista Vinstri-grænna í Dalasýslu fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framboðslistinn var samþykktur einróma á félagsfundi Vinstri-grænna í gær. Innlent 1.5.2006 12:28
Litlu flokkarnir sækja í sig veðrið Sjálfstæðisflokkur tapar töluverðu fylgi og litlu flokkarnir sækja á í Reykjavík samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag. Innlent 23.4.2006 10:02
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Vilja sleppa skatti af sjúkrastyrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar 260 milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 11.4.2006 21:30
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20