Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Leiknismenn í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með veiruna
Leikmannahópur Leiknis R. er kominn í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með kórónaveiruna.

63,7 prósent landsmanna vilja stytta djammið varanlega
Yfirgnæfandi meiri hluti landsmanna er hlynntur því að skemmtistöðum sé lokað fyrr á næturnar en gilti fyrir heimsfaraldur Covid-19. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Aðeins sextán prósent eru andvíg hugmyndinni.

Vilja skýra sýn um framhald aðgerða
Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir stefnuleysi í sóttvarnaaðgerðum og vill fá skýrari sýn. Margir segjast hafa komið fram efasemdum um rýmkun reglna á landamærum þann 1. júlí.

Skoða að kalla heilbrigðisstarfsmenn úr sumarfríi
Verið er að skoða að kalla heilbrigðisstarfsfólk úr sumarfríi vegna stöðunnar í faraldri nýju kórónuveirunnar hér á landi. Þetta sagði Guðrún Aspelund yfirlæknir, á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Tveir íbúar á Hlíf smitaðir
Tveir íbúar á Hlíf, íbúðakjarna fyrir aldraða á Ísafirði, hafa greinst með kórónuveiruna. Þetta staðfestir Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu.

Þriðji starfsmaður heilsugæslunnar greindist með veiruna
Starfsmenn heimahjúkrunar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem greinst hafa með kórónuveiruna eru orðnir tveir. Áður hafði verið greint frá því að einn starfsmaður heimahjúkrunar hefði greinst, auk starfsmanns á heilsugæslunni Sólvangi, sem sinnti ungbarnaeftirliti.

Þrettán starfsmenn Landspítala í einangrun með Covid-19
Á þriðja hundrað starfsmanna Landspítalans er í vinnusóttkví og talið er að þeim muni fjölga nokkuð í dag. Nú liggja þrír inni á spítala með virkt Covid-smit en einn inniliggjandi sjúklingur greindist smitaður af veirunni í dag.

Upplýsingafundur verður haldinn á morgun
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, þriðjudaginn 27. júlí.

Eitt af verkefnum dagsins að fara yfir fjölmargar starfsumsóknir
Um 160 manns dvelja nú í einangrun farsóttarhúsum á vegum Rauða krossins, þar af um fimmtán í þriðja farsóttarhúsinu sem opnað var í gær.

Hert á reglum um sóttkví
Hert verður á reglum um sóttkví sem verða þá eins og þær voru áður en bólusetningar hófust hér á landi. Ekki verður lengur tekið tillit til þess hvort útsettur einstaklingur sé bólusettur eða ekki, segir sérfræðingur á sóttvarnarsviði embættis landlæknis.

Tveir starfsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu smitaðir
Starfsmaður á heilsugæslunni Sólvangi og starfsmaður heimahjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa greinst smitaðir af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Smit hjá Fylki og leiknum gegn Val frestað
Leikmaður Fylkis hefur greinst með kórónuveiruna og liðið er komið í sóttkví.

71 greindist smitaður af Covid-19 í gær
Í gær greindist 71 innanlands með Covid-19. Þar af voru 53 fullbólusettir og 16 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar við greiningu. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og hefur fækkað um tvo á milli daga.

Veit ekki hve lengi þau halda út án fleiri starfsmanna
Stanslaust fjölgar í sýnatöku vegna Covid-19 hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnastjóri skimana sagðist í gær ekki vita hversu lengi hægt er að halda ástandið út ef ekki fengist fleira fólk til starfa.

Ný rannsókn segir stafræn samskipti verri en engin samskipti
Samskipti við ættingja og vini í gegnum fjarfundabúnað ollu því að margt eldra fólk fann fyrir auknum einmanaleika. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á andlegri heilsu fólks í heimfaraldrinum í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Matvöruverslanir muni beina þeim tilmælum til viðskiptavina að bera grímur
Fólk mun einungis þurfa að bera grímur þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk á milli einstaklinga eða þegar húsnæði er illa loftræst. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir óskýrleika í reglugerð.

Unnið að því að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra: Sjúklingar skimaðir vikulega
Formaður farsóttanefndar Landspítala vonar að búið sé að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra. Nýjum loftræstibúnaði hefur meðal annars verið komið fyrir og sjúklingar verða skimaðir vikulega.

Grunur um að nokkrir hafi sýkst tvisvar af Covid-19 hér á landi
Grunur er um að þrír til fjórir einstaklingar hér á landi hafi sýkst af Covid-19 í annað sinn. Eru tilvikin nú til rannsóknar hjá vísindamönnum Landspítalans. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir að smit virðist almennt vera mun útbreiddari í samfélaginu nú en í fyrri bylgjum.

Heilbrigðisráðuneytið áréttar reglur um grímuskyldu vegna meints misskilnings
Á miðnætti tók gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur meðal annars í sér eins metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Einhver óvissa hefur ríkt um grímuskylduna og hafa forsvarsmenn verslana meðal annars kallað eftir skýrari tilmælum frá heilbrigðisyfirvöldum.

Segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra
Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra. Hann hefur áhyggjur af því hve illa gengur að hemja smitin sem nú séu komin út um allt land og finnast í öllum aldurshópum.

Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð
Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld.

Farsóttarhúsin full og bráðvantar starfsfólk til að opna þriðja húsið
Yfir 130 manns eru í einangrun á farsóttarhúsum Rauða krossins og eru hótelin tvö orðin full. Stefnt er að því að opna það þriðja í kvöld en það strandar á því að starfsfólk sárvantar.

Íhugar að setja á laggirnar sóttvarnastofnun
Heilbrigðisráðherra segir tímabært að horfast í augu við það að kórónuveiran verði hluti af okkar tilveru til lengri tíma. Því þarfnist heilbrigðiskerfi landsins varanlegrar styrkingar og að til greina komi að setja á laggirnar sérstaka sóttvarnastofnun.

Engan áhuga á að prófa að hleypa veirunni inn á krabbameinsdeildir
Yfirlæknir á Landspítalanum segir það vonbrigði hve illa bólusetningin virðist hemja veiruna meðal fólks þó að bólusetningin dragi verulega úr alvarlegum veikindum.

Ráðherrar skuldi þjóðinni afsökunarbeiðni á kolrangri sóttvarnarstefnu
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og frambjóðandi flokksins í komandi Alþingiskosningum, segir að ríkisstjórnin eigi að biðja þjóðina afsökunar á því sem hann segir kolranga sóttvarnarstefnu sem sé rekin gegn augljósum meirihlutavilja þjóðarinnar.

Veiran úti um allt samfélag, allt land og í öllum aldurshópum
Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að í þessari fjórðu bylgju faraldurins smiti hver og einn fleiri út frá sér en áður. Smit sé nú komið um allt land og finnst í öllum aldurshópum. 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 54 utan sóttkvíar við greiningu.

88 greindust smitaðir innanlands
88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þar af greindust sex smit í handahófssýnatökum en 82 í einkennasýnatökum. 14 af þeim sem greindust voru óbólusettir.

Ríkisstjórnin á að biðja þjóðina afsökunar
Í dag eru 500 dagar síðan að fyrst voru settar á samkomutakmarkanir á Íslandi vegna kórónafaraldursins. Og þetta er líka fyrsti dagurinn í nýjum takmörkunum.

Þessar takmarkanir tóku gildi á miðnætti
Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti og gilda til og með 13. ágúst. Meðal stærstu breytinga er að hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman er nú 200 og tekin er upp eins metra nálægðarregla.

Engin ástæða til að missa trú á bólusetningum
Doktor í faraldsfræði segir að þrátt fyrir nýja bylgju kórónuveirufaraldursins sé alls engin ástæða til að missa trú á bólusetningum. Þvert á móti þurfi nú að leggja meiri áherslu á þær en áður.