Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Forseti Póllands smitaður af kórónuveirunni
Andrzej Duda, forseti Póllands, er smitaður af nýju afbrigði kórónuveirunnar. Talsmaður forsetans segir honum líða vel en að hann sé nú kominn í einangrun. Mikil fjölgun hefur orðið í nýjum kórónuveirusmitum og dauðsföllum í landinu upp á síðkastið.

Ný smit í Bandaríkjunum aldrei fleiri
Fleiri en 83.000 manns greindust smitaðir af nýju afbrigði kórónuveirunnar í Bandaríkjunum í gær og hafa þeir aldrei verið jafnmargir frá upphafi faraldursins. Landlæknir Bandaríkjanna segir að innlögnum á sjúkrahús fari fjölgandi en að dánartíðni fari lækkandi vegna betri umönnunar.

Umdæmislæknir sóttvarna hefði viljað hafa skipið nálægt höfn
Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum segir að hún hefði viljað hafa frystiskipið Júlíus Geirmundsson nálægt höfn eftir að skipverjar tilkynntu henni um grun um kórónuveirusmit um borð.

Kristín Sesselja gefur út nýja plötu um ástarsorg
Söngkonan Kristín Sesselja sendi í dag frá sér plötuna Breakup Blues og er hún sjálf höfundur allra laga og texta. Hinn efnilegi Baldvin Hlynsson útsetti öll lögin á plötunni nema tvö sem þau útsettu saman

Kveikt verður á jólaljósum í Reykjavík um næstu helgi
Borgarstjóri segir að jólaljósin í Reykjavík verði kveikt um næstu helgi, eða þremur vikum fyrr en vanalega.

Hópsmit á Landakoti
Hópsmit er komið upp á Landakoti og hafa nú alls sextán sjúklingar og sex starfsmenn greinst með veiruna. Landakoti hefur nú verið lokað.

Tíu manna fjöldatakmarkanir í Danmörku
Dönsk stjórnvöld herða nú aðgerðir vegna kórónuveirunnar.

Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð
Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins.

Fordómar og COVID
Í fyrstu bylgju COVID faraldursins varð um helmingur allra dauðsfalla í Evrópu inni á hjúkrunarheimilum og langlegustofnunum. Sá hópur eldri borgara sem þar býr, var skilinn eftir afskiptalaus og óvarinn af yfirvöldum.

Skoða skólp til að finna hópsýkingar fyrr
Níutíu skólphreinsistöðvar um gervallt Bretland munu reyna að greina kórónuveiruna í skólpi í von um að hægt sé að greina staðbundnar hópsýkingar fyrr en áður.

Krefst afsagnar heilbrigðisráðherrans í kjölfar grímuhneykslis
Forsætisráðherra Tékklands hefur krafist afsagnar heilbrigðisráðherra landsins eftir að myndir náðust af ráðherranum án grímu þar sem hann gerðist brotlegur við sóttvarnareglur.

Gera ekki ráð fyrir „lágum tölum“ fyrr en í lok nóvember
Smitstuðull utan sóttkvíar á Íslandi er nú áætlaður 0,5 og árangur af kórónuveiruaðgerðum sýnilegur.

Frederiksen boðar til blaðamannafundar eftir annan metdag
Alls greindust 859 manns með kórónuveirusmit í Danmörku í gær. Var um mesta fjölda skráðra smita á einum degi frá upphafi faraldursins.

Tölum um framleiðslutapið
Mikið hefur verið rætt um eftirspurnarskellinn sem kórónuveirufaraldurinn hefur orsakað. Ferðmenn hafa horfið, margir hafa misst vinnuna og geta íbúa til að afla sér ýmissa vara og þjónustu hefur verið minni en áður vegna sóttvarna.

Alls greindust 30 með kórónuveiruna innanlands
Alls greindust 30 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sextíu prósent þeirra sem greindust með smit voru í sóttkví.

Starfsmenn og sjúklingur á Landakoti greindust með veiruna
Nokkrir starfsmenn og einn sjúklingur á Landakoti, öldunarlækningadeild Landspítala, greindust með kórónuveiruna síðdegis í gær.

Þýsk handboltafélög íhuga að hleypa leikmönnum ekki í landsleiki
Íslenska karlalandsliðið í handbolta gæti verið í vandræðum ef þýsk félög meina leikmönnum sínum að fara í landsleiki til landa sem eru skilgreind sem hættusvæði vegna kórónuveirufaraldursins.

Ellefu milljónir Breta á hæsta viðbúnaðarstigi vegna kórónuveirunnar
Í dag tóku gildi hertar takmarkanir vegna kórónuveirunnar víða á Bretlandi. Á Stór-Manchestersvæðinu eru reglurnar komnar á hæsta stig og ná þær til tæplega þriggja milljóna íbúa svæðisins.

Þórsarar á Akureyri í sóttkví
Handknattleikslið Þórs á Akureyri hefur verið í sóttkví síðustu daga vegna kórónuveirusmits sem tengist meðlimi liðsins.

Yfirmaður smitrakningarteymisins: „Við erum í algjörri draumaaðstöðu til að klára þetta“
Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir að vinna teymisins í þriðju bylgju faraldursins hafi gengið vel.

Tíu skemmtilegir hlutir sem hægt er að gera með börnunum í haustfríinu
Nú stendur yfir haustfrí hjá mörgum nemendum í grunnskólum höfuðborgarsvæðisins.

Lesa frumsamda hryllingssögu og spila tölvuleiki í vetrarfríinu
Strákur í fjórða bekk er með ýmsar hugmyndir um hvað sé hægt að gera í haustfríinu sem hófst í dag. Sjálfur las hann upp hryllingssögu sem hann samdi sem verður streymt á netinu

Remdesivir samþykkt sem meðferðarúrræði gegn Covid í Bandaríkjunum
Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur samþykkt fyrsta lyfið til meðferðar við Covid-19, Remedesivir. Lyfið er veirusýkingalyf sem gefið er sjúklingum, sem lagst hafa inn á spítala, í gegn um æð.

Ekki til umræðu að loka á flug frá tilteknum löndum
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir það ekki hafa komið til umræðu að stoppa flug frá tilteknum löndum.

Fannst hann bregðast með því að vera ekki kistuberi
Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason hefur í tvígang þurft að mæta áföllum, sorg og missi tengt krabbameini. Hann missti móður sína, Þóru Ragnarsdóttir, í apríl á þessu ári eftir skamma baráttu við krabbamein. Hann þurfti að horfa á jarðaförina í beinni útsendingu í tölvunni, heima hjá sér í Þýskalandi.

„Eitthvað sem er ekki mér að kenna“
Þunguð kona á ekki rétt á veikindagreiðslum úr fæðingarorlofssjóði þar sem of langur tími er liðinn frá því hún var á vinnumarkaði.

Biðst afsökunar og lokar Sporthúsinu
Eigandi Sporthússins hefur tekið þá ákvörðun að loka Sporthúsinu vegna mikillar og almennrar óánægju í samfélaginu með opnun líkamsræktarstöðva.

Smitaður sótti hóptíma í líkamsræktarstöð
Smitaður einstaklingur sótti hóptíma hjá líkamsræktarstöð á Akranesi í fyrrakvöld. Allir sem sóttu tímann þurfa að fara í sóttkví og sýnatöku venga þessa.

„Fólk er að hugsa um heilsuna í ræktinni og er ekki að fara í sleik á einhverjum karaoke bar“
Einkaþjálfarinn Egill Einarsson ræddi við þáttastjórnendur Brennslunnar í morgun og var farið yfir ástandið í líkamsræktarstöðvum landsins vegna kórónuveirunnar.

Dönsk yfirvöld mæla gegn ferðalögum til nær allra landa
Aðeins Noregur, Grikklandi og fimm héruð í Svíþjóð eru undanskilin ráðleggingum danskra yfirvalda um að fólk ferðist ekki þangað að nauðsynjalausu vegna kórónuveirufaraldursins eftir að listi yfir slík ríki var uppfærður.