
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

„Ætli það séu ekki einhver þrjátíu herbergi eftir“
Staðan í farsóttarhúsum landsins er orðin verulega slæm en örfá pláss eru eftir. Um 205 manns dvelja nú í farsóttarhúsum en tæplega sex þúsund manns verða í einangrun yfir hátíðarnar fjarri fjölskyldu og vinum. Metfjöldi greindist smitaður af kórónuveirunni innanlands í gær og forstöðumaður farsóttarhúsanna segir að nú þurfi að velja og hafna.

Í einangrun um jól og áramót: „Ég klára bara árið hér og mæti sterk til leiks árið 2022“
Ein þeirra fjölmörgu sem þarf að eyða jólunum í einangrun er Birna María Másdóttir sem komst að því að hún væri smituð í fyrradag þegar hún var skimuð á landamærum eftir flugferð frá New York.

Nýtt met: 448 greindust innanlands
Í gær greindust 488 með Covid-19 hér á landi. Þar af greindust 448 innanlands, sem er hæsti fjöldi innanlandssmita sem greinst hefur á einum degi. Á landamærunum greindust 40 manns.

Ummæli ársins 2021: Ferlarnir hjá KSÍ, froðuflóð um koppagrundir og hefð um óinnsigluð kjörbréf
Nú eins og undanfarin ár rifjar Vísir upp eftirminnilegustu ummæli ársins sem er að líða. Og eins og gengur og gerist þá endurspegla ummælin mörg helstu fréttamála ársins.

Fimm ára og eldri skyldaðir í bólusetningu
Bólusetningarskyldu hefur verið komið á í Ekvador í Suður-Ameríku. Allir, fimm ára og eldri, skulu fara í bólusetningu en stjórnvöld tóku ákvörðunina í ljósi fjölgun smita af völdum kórónuveirunnar.

„Stíga inn í nútímann“ og streyma helgihaldi
Helgihald skipar eðli málsins samkvæmt stóran sess í hátíðarhöldum almennings yfir jólin. Tvísýnt hefur verið um fjölmenna viðburði vegna kórónuveirufaraldursins og trúarathafnir eru þar engin undantekning. Messum í dag, aðfangadag, verður streymt en einnig verður unnt taka á móti kirkjugestum með notkun hraðprófa.

Bubbi óttast ekki neitt: „Ég er bara gleðigjafi“
Bubbi Morthens hélt árlegu Þorláksmessutónleika sína í Eldborg í Hörpu fyrr í kvöld. Eldborgarsalurinn tekur um fimmtán hundruð manns í sæti en uppselt var á tónleikana. Tónleikarnir voru sem sagt fjölmennir en óvissa ríkti um tónleikahaldið þegar kynntar voru hertar takmarkanir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins fyrr í vikunni. Nokkrir tónleikahaldarar fengu sérstaka undanþágu frá gildandi sóttvarnareglum, Bubbi þar með talinn.

Greindust öll á landamærunum og verða saman á jólunum
Níu manna vinahópur sem kom frá Puerto Rico í fyrradag greindist allur með Covid-19 við komuna til landsins. Í stað þess að húka í einangrun hvert um sig ákváðu þau að framlengja fríið öll saman í sumarbústað á Snæfellsnesi yfir jólin.

Töluvert af börnum í farsóttahúsum yfir jólin
Tæplega sex þúsund manns verða í einangrun eða sóttkví um jólin og mun hluti þeirra dvelja í farsóttahúsunum yfir hátíðirnar fjarri fjölskyldu og vinum.

Fólk með ómíkron 50 til 70 prósent ólíklegra til að lenda á sjúkrahúsi
Fólk sem sýkist af ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar er 50% til 70% ólíklegra til að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda en fólk með fyrri afbrigði.

Áslaug skýtur á takmarkanir: „Önnur sjónarmið en sóttvarnir þurfa að heyrast“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, telur að líta verði til fleiri þátta en smitvarna þegar teknar eru ákvarðanir um takmarkanir vegna kórónuveirunnar hér á landi. Bóluefni veiti góða vernd og ekki megi líta fram hjá þeim áhrifum sem takmarkanirnar hafi á geðheilsu almennings og þá sérstaklega barna.

„Getur verið að fólk sé ekki að fara í prófin eins fljótt og það gerði“
Forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir daginn í dag ekki vera stóran þegar kemur að sýnatökum, þrátt fyrir að metfjöldi hafi greinst með Covid-19 í gær. Mögulegt er að fólk veigri sér við því að mæta í sýnatöku fyrir jólin.

Fjöldi nýsmitaðra nær nýjum hæðum vestanhafs
Sjö daga nýgengni smita í Bandaríkjunum mælist nú 168.981 sem er meira en það var í sumar þegar faraldur delta-afbrigðis kórónuveirunnar náði hámarki. Þá fór nýgengið hæst í rúmlega 165 þúsund nýsmitaða.

Ekki kvíðinn fyrir tónleikum kvöldsins þrátt fyrir fjölda smita
Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, segist ekki stressaður fyrir þrennum jólatónleikum sem eru á dagskrá hjá honum í kvöld þrátt fyrir fjölda smitaðra af kórónuveirunni í þjóðfélaginu. Hann segist ætla að líta jákvætt á stöðuna frekar en að einblína á öll leiðinlegu smáatriðin.

Simmi Vill harmar innilega vanhugsað tíst sitt
Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður með meiru hefur sent út innblásna tilkynningu þar sem hann harmar mistök sín og biðst afsökunar á því sem hann kallar virkilega lélegt og rangt tíst á Twitter.

Covid-kynslóðin
Vegna Covid hefur um einn og hálfur milljarður barna í nærri 200 löndum verið sendur heim úr skóla í skemmri eða lengri tíma. Nýjar alþjóðlegar rannsóknir sýna að fjarvera barna frá skóla hefur haft skelfilegar afleiðingar.

Fimmtán leikjum í neðri deildum Englands frestað vegna veirunnar
Kórónuveiran heldur áfram að leika íþróttalífið grátt, en nú þegar hefur verið ákveðið að fresta fimmtán leikjum í neðri deildum Englands sem áttu að fara fram á öðrum degi jóla.

211 smitaðir og þrettán milljónir í útgöngubann
Ráðamenn í Kína hafa settum þrettán milljón íbúa borgarinnar Xi’an í útgöngubann vegna útbreiðslu kóronuveirunnar þar. 63 greindust smitaðir af Covid-19 í borginni í gær og hafa alls 211 greinst smitaðir á undafarinni viku.

Jólaleikjum frestað í ensku úrvalsdeildinni
Leikjum Liverpool og Leeds annars vegar, og Wolves og Watford hins vegar, sem áttu að fara fram á öðrum degi jóla hefur verið frestað.

Öllum leiksýningum og tónleikum aflýst yfir jólin
Helstu sviðslistahús landsins hafa ákveðið að aflýsa öllum leiksýningum og tónleikum um jólin. Lokunin gildir að minnsta kosti fram að áramótum en undatekning verður þó gerð vegna tónleika sem fram fara í Hörpu í dag og vegna ferðamannaviðburða.

Undanþágur gerðar vegna meðalhófs
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að fjölmörg fordæmi séu fyrir því að veittar séu undanþágur þegar takmarkanir beri brátt að. Gæta beri meðalhófs. Þá segir hann að að Kári Stefánsson hafi bara lagt gott eitt til í gegnum faraldurinn.

„Mönnunin er Akkilesar-hællinn“
Alma Möller landlæknir segir að um fjörutíu starfsmenn Landspítalans séu í einangrun vegna Covid-19. Mönnun spítalans er að hennar sögn Akkilesar-hællinn og verið er að leita allra leið til að létta álagi af Landspítalanum.

Neyðumst til að bregðast við breyttum eiginleikum veirunnar
Kórónuveirufaraldurinn er og hefur verið óútreiknanlegur, sem hefur neytt yfirvöld til að aðlaga sóttvarnaaðgerðir að nýjum eiginleikum veirunnar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi rétt í þessu.

443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.

Hefði lokað í dag frekar en að velja milli kúnna
Jakob Jakobsson á Jómfrúnni er einn þeirra veitingamanna sem fékk undanþágu frá hertum takmörkunum í dag. Hann segir málið ekki snúast um tekjutap heldur að hann hafi ekki viljað vísa kúnnum á dyr á Þorláksmessu.

Kári segir Willum hafa orðið á mikil mistök
Heilbrigðisráðherra varð á mikil mistök með því að veita undaþágur til vínveitingastaða í aðdraganda jólanna að mati Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Í morgun fékk Íslensk erfðagreining send 518 sýni til raðgreiningar.

Svona var 191. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar í dag, á Þorláksmessu, klukkan 11:00. Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu hér á Vísi.

Tæplega fimm hundrað greindust með Covid-19 í gær
Rúmlega fimm hundruð sýni bárust Íslenskri erfðagreiningu til raðgreiningar í morgun. Þetta segir Kári Stefánsson í samtali við Vísi.

Opið í einkenna- og sóttkvíarsýnatökur alla daga yfir hátíðirnar
Opið verður í sýnatökur á Suðurlandsbraut 34 frá klukkan 8 til 12 á morgun, aðfangadag. Á jóladag verður ekki opið í hraðpróf né PCR-sýnatökur fyrir ferðalög en opið verður í PCR einkenna- og sóttkvíarsýnatöku frá klukkan 10 til 14.

Rannsóknir benda til þess að ómíkron valdi minni veikindum
Rannsóknir í Suður-Afríku og Bretlandi virðast benda til þess að ómíkron-afbirgði kórónuveirunnar sé vægara en delta. Talið er að afbrigið nýja valdi 30 til 70 prósent færri innlögnum á sjúkrahús en önnur afbrigði.