
Þór Þorlákshöfn

Varnarleikur AkureyrarÞórs ekki í neinum takti við tilefnið
Mikill munur var á varnarleik Þórsliðanna í leiknum á Akureyri í gær. Á meðan Adomas Drungilas bætti vörn ÞorlákshafnarÞórsara til muna var vörn AkureyrarÞórsara eins og vængjahurð.

Leik lokið: Þór Ak. - Þór Þ. 66-98 | ÞorlákshafnarÞórsarar í undanúrslit
Þór Þ. tryggði sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með sigri í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Þór Ak. 109-104 | Þór Þ. tók forystu í einvíginu eftir spennutrylli
Þór Þorlákshöfn komast 2-1 yfir í einvíginu á móti Þór Akureyri. Þetta var mikill sóknarleikur og algjör spennutryllir sem endaði með að heimamenn höfðu betur 109 - 104.

Lárus Jónsson: Bæði lið hittu frábærlega úr því var leikurinn frábær skemmtun
Þór Þorlákshöfn vörðu heimavöllinn sinn í kvöld þegar þeir unnu nafna sína frá Akureyri 109-104 í miklum sóknarleik. Lárus Jónsson þjálfari Þór Þorlákshafnar var afar sáttur með sigurinn.

Umfjöllun: Þór Ak. - Þór Þ. 93-79 | Einvígið jafnt
Það er hefðbundin ráðstöfun liða í úrslitakeppni að spila betri varnarleik en á hefðbundna tímabilinu. Þetta kom vel í ljós í leik kvöldsins í Höllinni á Akureyri þar sem Þórsarar frá Þorlákshöfn komu í heimsókn til nafna sinna á Akureyri í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Dominos-deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Þór Ak. 95-76 | Þórsarar byrja úrslitakeppnina af krafti
Þórsliðin frá Þorlákshöfn og Akureyri mættust í Þorlákshöfn í kvöld í fyrsta leik sínum í 8-liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. Fór það svo að heimamenn unnu sannfærandi sigur, 95-76.

Bjarki: Það verður flottara Þórslið sem mætir á miðvikudaginn
Bjarki Ármann Oddson, þjálfari Þórs Akureyri, var nokkuð brattur eftir fyrsta leik liðsins í úrslitakeppninni þrátt fyrir 19 stiga tap. Lokatölur 95-76, en Bjarki einblíndi á það jákvæða.

Þórsaraslagur í Þorlákshöfn
Þór Þorlákshöfn tekur á móti nöfnum sínum í Þór Akureyri í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Domino's deildar karla í kvöld. Þór Þ. hafnaði í öðru sæti deildarinnar, en Þór Ak. í því sjöunda. Sérfræðingar körfuboltakvölds fóru yfir þessa viðureign í þætti sínum í vikunni.

Gæti misst af öllu einvíginu við Þór eftir að hafa veitt þriðja höggið
Litháinn Adomas Drungilas hefur í þriðja sinn á tveimur mánuðum verið úrskurðaður í bann og missir af næstu þremur leikjum Þórs frá Þorlákshöfn nú þegar úrslitakeppnin í Dominos-deildinni í körfubolta er að hefjast.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 88-73 | Njarðvíkingar sleppa við fall
Njarðvíkingar sluppu við fall en voru á sama tíma hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina þegar uppi var staðið.

„Skil ekki hvað Drungilas er að hugsa“
Adomas Drungilas, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var stálheppinn að vera ekki hent út úr húsi er liðið spilaði við nafna sína frá Akureyri í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Þór Ak. 103-108 | Mikilvægur sigur Akureyringa
Þór Akureyri sótti gríðar mikilvæg tvö stig í Þorlákshöfn í kvöld. Með því lyftir liðið sér upp úr fallhættu og er sem stendur á leið í úrslitakeppnina þegar ein umferð er eftir af Domino´s deild kara. Lokatölur 103-108 gestunum í vil.

Bjarki: Það spáðu okkur allir tólfta sæti og að við ættum bara að éta skít og skömm og falla með sæmd
Bjarki Ármann Oddson, þjálfari Þórs Akureyri gat andað léttar í leikslok eftir gríðarlega mikilvægan 108-103 sigur gegn Þór Þorlákshöfn. Þór Akureyri lyftir sér með sigrinum úr fallhættu og er sem stendur í úrslitakeppnissæti fyrir lokaumferðina.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Þór Þ. 85-100 | Annar leikhlutinn gerði gæfumuninn fyrir Þór
Frábær annar leikhluti lagði grunninn að 85-100 sigri Þórs Þorlákshafnar á Hetti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik karla í kvöld. Hattarmenn náðu þó að setja spennu í leikinn áður en fjórði leikhluti hófst.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Valur 98-96 | Þórsarar stöðvuðu sigurgöngu Vals
Þór Þorlákshöfn sá til þess að Valur vann ekki sinn sjöunda leik í röð í Domino´s deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 98-96 Þórsurum í vil í háspennuleik.

Lárus: Þetta var bara góður körfuboltaleikur
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var eðlilega ánægður með 98-96 sigur sinna manna gegn Val í kvöld. Lárus segir að í heildina hafi þetta verið góður körfuboltaleikur hjá báðum liðum.

Seinka heimsókn sjóðheitra Valsmanna í Þorlákshöfn um einn dag
Leikur Þórsara og Valsmanna í Domino´s deild karla fer ekki fram í Þorlákshöfn á fimmtudagskvöldið heldur tæpum sólarhring síðar.

Umfjöllun: Tindastóll – Þór Þ. 92-91 | Stólasigur í naglbít
Tindastóll hefur unnið báða leikina eftir kórónuveiruhléið en þeir hafa unnið bæði Þórs-liðin í vikunni. Sigurinn var mikilvægur fyrir Tindastól í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - KR 84-76 | Þórsarar lögðu Íslandsmeistarana í annað skipti í vetur
Spútniklið Þórs Þorlákshafnar fékk Íslandsmeistara KR í heimsókn í Icelandic Glacial höllina í kvöld. Þórsarar voru betri aðilinn stærstan hluta leiksins og lönduðu að lokum verðskulduðum átta stiga sigri, 84-76.

„Þetta er búið að vera besta liðið í vetur“
Farið var yfir efstu sex lið Dominos-deildar karla í körfubolta í síðasta þætti Dominos Körfuboltakvölds. Nú er komið að efstu tveimur liðum deildarinnar, Keflavík og Þór Þorlákshöfn.

Einn sá efnilegasti áfram í Þorlákshöfn
Styrmir Snær Þrastarson hefur samið við uppeldisfélag sitt Þór Þorlákshöfn og mun leika með liðinu næstu tvö árin allavega. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Drungilas dæmdur í tveggja leikja bann
Adomas Drungilas, leikmaður Þórs Þ. í Domino's deild karla, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir að gefa Mirza Saralilja olnbogaskot í leik gegn Stjörnunni 18. mars.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Þór Þ. 98-105 | Þór frá Þorlákshöfn endurheimti 2. sætið eftir kaflaskiptan leik
Þór Þ. vann ÍR í leik sem best er lýst sem kaflaskiptum en á endanum skiptir máli að skora fleiri stig en andstæðingurinn og það gerði Þór Þ.

Lárus: Set spurningarmerki við vinnubrögð dómaranefndar
Lárus var sáttur við sigur sinna manna á ÍR í kvöld en hafði áhyggjur af töpuðum boltum hjá sínum mönnum. Leikar enduðu 98-104 og Þór Þ. fer í annað sætið. Hann þurfti síðan að ræða kæru dómaranefndar á Adomas Drungilas og setur stórt spurningarmerki við verklagið hjá nefndinni.

Lárus: Við þurftum bara að hætta að hika
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar var virkilega ánægður með sína menn í kvöld, en þeir unnu góðan 92-83 sigur gegn Stjörnunni í Dominos deild karla.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Stjarnan 92-83 | Heimamenn upp í annað sætið eftir frábæran síðari hálfleik
Frábær síðari hálfleikur Þórs Þorlákshafnar skilaði þeim frábærum níu stiga sigri eftir að liðið var 13 stigum undir í hálfleik. Þór Þ. er því komið upp í annað sæti Dominos-deildarinnar í körfubolta á meðan gestirnir úr Garðabæ eru dottnir niður í þriðja sætið. Lokatölur 92-83 Þórsurum í vil.

Þórsarar endurheimta Drungilas en enda þeir taphrinuna í toppslag kvöldsins?
Liðin í öðru og þriðja sæti Domino´s deildar karla í körfubolta, Stjarnan og Þór Þorlákshöfn, mætast í Icelandic Glacial höllin í Þorlákshöfn í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór Þ. 105-101 | Grindavíkursigur í baráttuleik
Grindavík vann mikilvægan sigur á Þór frá Þorlákshöfn í 14.umferð Domino´s deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Grindavík situr í 5.sætinu eftir sigurinn, fjórum stigum á eftir Þór.

Adomas Drungilas missir bara af leik kvöldsins: Hér má sjá atvikið
Þórsarinn Adomas Drungilas hefur verið dæmdur í eins leiks bann eftir að hafa verið rekinn út úr húsi á dögunum.

Áhugi frá Bandaríkjunum en hugurinn leitar til Evrópu
Hinn nítján ára gamli Styrmir Snær Þrastarson hefur leikið á als oddi í liði Þórs úr Þorlákshöfn í Domino’s deild karla á leiktíðinni.