Grunnskólar „
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 36 ›
„Viðbúið að einhverjir skólar þurfi að loka“ Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að skóla og frístundastarf barna haldi áfram með sem eðlilegustum hætti. Þó sé viðbúið að einhverjir skólar muni þurfa að loka vegna fjölda starfsmanna og barna í einangrun og sóttkví. Innlent 4.1.2022 11:33
Ekki komið á hreint hvort bólusett verði í skólum Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist skilja þau sjónarmið sem búi að baki gagnrýni á fyrirætlanir um að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára í skólum sínum. Umboðsmaður barna hefur kallað eftir breyttu fyrirkomulagi. Innlent 3.1.2022 21:38
Yfir 400 starfsmenn skóla og frístundar í borginni í sóttkví eða einangrun Ríflega fjögur hundruð starfsmenn grunn- og leikskóla og frístundastarfs í Reykjavík eru með kórónuveiruna eða í sóttkví. Skólastarf kemur því til með að raskast næstu daga en áhersla er lögð á að yngstu börnin komist í skólann. Innlent 3.1.2022 20:09
Sannfærður um að smitaðir finnist í kennslustofunum Skólastjóri Melaskóla segir starfsfólk skólanna mjög útsett fyrir því að smitast af kórónuveirunni og geta lítið varið sig. Þrátt fyrir að stefnt sé að óbreyttu skólastarfi á morgun þá geti staðan breyst hratt. Innlent 3.1.2022 13:36
Elstu bekkir í Laugarnesskóla verða heima Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri í Laugarnesskóla sem er fyrir nemendur í 1. bekk og upp í 6. bekk, hefur ákveðið að nemendur í elstu tveimur árgöngunum mæti ekki í skólann þessa vikuna. Endurskoða á stöðuna í lok viku. Ástæðan er forföll kennara vegna kórónuveirufaraldursins. Yngri krakkar fá forgang í skólann. Innlent 3.1.2022 12:54
Margir foreldrar uggandi vegna fyrirhugaðs skólahalds Ljóst er að uggur er í foreldrum margra grunnskólabarna vegna skólahalds sem hefst nú í vikunni. Bólusetning barna á aldrinum fimm til ellefu ára hefst 10. janúar, viku eftir að skólahald hefst. Innlent 2.1.2022 22:30
Hefði viljað fresta skólahaldi: „Þetta er staðan sem við vinnum með“ Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að betra hefði verið að fresta skólabyrjun líkt og sóttvarnalæknir lagði til. Þess í stað taka leik- og grunnskólar skipulagsdag á morgun til að undirbúa skólastarfið í ómíkrón-bylgju. Innlent 2.1.2022 20:31
Bardagaþreyttir kennarar hafa morgundaginn til að skipuleggja skólastarf í krefjandi aðstæðum Kennarar hafa morgundaginn til þess að skipuleggja komandi skólastarf í krefjandi aðstæðum. Skólastjóri segir kennara orðna bardagaþreytta og hefði viljað sjá ríkisstjórnina fylgja tilmælum sóttvarnalæknir um seinkun á skólabyrjun. Innlent 2.1.2022 12:16
Er öryggi kennara og nemenda minna virði? Grunnskólar eiga að vera einn öruggasti staður til að vera á og því eru kennarar furðu lostnir yfir einarðri afstöðu mennta- og barnamálaráðherra ríkisstjórnar Íslands um að hunsa með öllu tilmæli sóttvarnarlæknis um skólabyrjun á nýju ári. Skoðun 1.1.2022 09:30
Söguleg undirritun kjarasamnings grunnskólakennara Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður hjá embætti ríkissáttasemjara í gær. Þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem ritað er undir kjarasamning grunnskólakennara áður en gildandi samningur rennur út. Innlent 31.12.2021 13:35
Skoða að fella niður skólahald á meðan að börnin verða bólusett Í skoðun er að fella niður skólahald í einn dag í kringum bólusetningar barna á aldrinum 5 til 11 ára en bólusetningin mun fara fram í skólum. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu telur að töluverður fjöldi barna muni ekki mæta í bólusetningu annað hvort samkvæmt vali eða vegna þess að þau hafa þegar fengið Covid. Innlent 29.12.2021 12:21
Spice fer að narta í hælana á kannabisi hjá Foreldrahúsi Aukning hefur orðið á neyslu unglinga á eiturlyfinu Spice á síðustu tveimur árum. Grunnskólar hafa margir orðið varir við neyslu meðal nemenda sinna en erfitt er að ná utan um umfang vandamálsins því krakkarnir eiga auðvelt með að fela hana. Innlent 27.12.2021 22:20
Ákvörðun Persónuverndar hafi áhrif á skólastarf um land allt Reykjavíkurborg telur að ákvörðun Persónuverndar, sem varðar innleiðingu á upplýsingakerfinu Seesaw, muni hafa áhrif á skólastarf víða um land. Reykjavíkurborg leggur nú mat á réttarstöðu sína. Innlent 18.12.2021 14:59
Hvað erum við að gera í skólamálum? Þegar kemur að því að búa til betri framtíð er ekkert mikilvægara en öflugt og gott skólakerfi, sem býr börn undir það að vera upplýstir og öflugir þátttakendur í samfélaginu. Þar höfum við tækifæri til að lágmarka skaða sem annars gæti undið upp á sig, og til að kenna þá færni sem fólk þarf að hafa til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Skoðun 16.12.2021 11:31
Sífellt yngri börn sýni kennurum virðingarleysi Formaður Félags grunnskólakennara segir að íslenskt samfélag þurfi að setjast niður og íhuga hvað sé ásættanleg hegðun í samfélagi. Borið hafi á því að sífellt yngri börn sýni kennurum óvirðingu og kennarar séu ráðalausir um hvernig skuli bregðast við. Innlent 14.12.2021 17:58
Mælt með að börn sem hafa fengið Covid-19 fái líka bólusetningu Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öllum fimm til ellefu ára börnum hér á landi verði boðin bólusetning gegn Covid 19. Sjúkdómurinn geti verið alvarlegur hjá börnum á þessum aldri og bólusetning minnki líkur á langtímaáhrifum. Bólusett verður í grunnskólum landsins. Innlent 13.12.2021 20:00
Jónína kjörin varaformaður kennara Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar á Akureyri, hefur verið kjörin varaformaður Kennarasambands Íslands. Hún tekur við embættinu af Önnu Maríu Gunnarsdóttur á þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári. Innlent 13.12.2021 15:59
Tekur við starfi skólastjóra Hólabrekkuskóla Lovísa Guðrún Ólafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Hólabrekkuskóla í Breiðholti í Reykjavík. Innlent 13.12.2021 13:38
Meiri mygla fannst í Laugalækjarskóla Búið er að loka þremur skólastofum í Laugalækjarskóla vegna myglu. Flytja þarf skólastarfið tímabundið í annað húsnæði á meðan viðgerðir fara fram eftir áramótin. Innlent 12.12.2021 17:16
Kennarar vísa viðræðum til ríkissáttasemjara: „Öllu hefur verið hafnað sem við höfum lagt fram“ Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Kjarasamningar grunnskólakennara renna út um áramótin. Innlent 11.12.2021 12:44
Umboðsmaður segir notkun gulra herbergja helst bundna við börn með sérþarfir Umboðsmaður Alþingis skrifar í bréfi sem sent var á mennta- og barnamálaráðherra á miðvikudag að notkun svokallaðra gulra herbergja í grunnskólum sé í yfirgnæfandi fjölda tilvika bundin við börn með sérþarfir. Almennir grunnskólar telji sig þá standa frammi fyrir óleysanlegum vanda gagnvart nemendum með sérþarfir og alvarlegan hegðunarvanda. Innlent 10.12.2021 15:47
Foreldrar og kennarar eru saman í liði Mikil umræða á sér nú stað meðal foreldra um stöðu barna þeirra í skólakerfinu og réttindi þeirra. Rætt hefur verið um svokölluð gul herbergi og hvernig við meðhöndlum nemendur sem falla utan við hin hefðbundnu viðmið. Skoðun 9.12.2021 21:02
Skólar í Fjarðabyggð áfram lokaðir vegna fjölgunar smita Þeim sem smitaðir eru af COVID-19 á Austurlandi hefur fjölgað síðustu daga. Síðustu tvo sólarhringa hafa tæp þrjátíu ný smit greinst, flest þeirra í Fjarðabyggð. Leikskólinn Lyngholt og grunnskólinn á Reyðarfirði og grunnskólinn á Eskifirði verða lokaðir út vikuna vegna þessa. Innlent 9.12.2021 13:19
Guðmundur kaupir þrjú þúsund bækur Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið. Innlent 9.12.2021 07:01
Listin að hlusta Sem varaformaður Kennarasambands Íslands myndi ég vilja beita mér fyrir því að bæta vinnuumhverfi kennara og gera þannig starfið eftirsóknarverðara. Starfið þarf að vera sýnilegra og við þurfum að hafa rödd okkar alls staðar þar sem er verið að móta stefnur og strauma um allt sem kemur að menntamálum. Skoðun 8.12.2021 08:01
Ekkert skólahald í Eskifjarðarskóla vegna smits Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Eskifjarðarskóla í dag eftir að starfsmaður skólans greindist með COVID-19 í gær. Innlent 7.12.2021 08:20
Fella niður skólahald vegna fjölda smitaðra Skólahald í Hlíðaskóla verður fellt niður á morgun, mánudag, og á þriðjudaginn vegna fjölda þeirra Covid-smita sem hafa komið upp í skólanum. Innlent 5.12.2021 19:41
Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega. Innlent 2.12.2021 20:01
Skammar foreldra í Fossvoginum sem eigi að vita betur Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, segir foreldra í Fossvoginum eiga að vita betur en að tala um það sem þyngra en tárum taki að börn þeirra missi af skólabúðum. Skólastjórinn í Fossvogsskóla sagði upp störfum nýlega og vísaði til gríðarlegs álags sem fylgt hefði starfinu. Innlent 2.12.2021 15:42
Segja börnin missa af Reykjaferð því skólastjórinn gleymdi að panta pláss Fráfarandi skólastjóri Fossvogsskóla, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, gleymdi að sækja um dvöl fyrir 7. bekk skólans á Reykjum í Hrútafirði en þegar umsókn barst að lokum var allt orðið fullt. Innlent 2.12.2021 07:02