

Helga Valfells, einn af eigendum Crowberry Capital, segir að fjármögnunarumhverfið á Íslandi hafi gjörbreyst á undanförnum árum. Nú séu fimm einkareknir og vel fjármagnaðir vísissjóðir starfandi á landinu, hver með sína áherslu, og hún býst við að næsta ár verði fullt af spennandi fjárfestingatækifærum.
Búið er að fjarlægja allar valkröfur frá félagasamtökunum Vonarneista úr heimabönkum fólks. Þær voru sendar út síðustu helgi en félagið gefur sig út fyrir að vera góðgerðafélag sem hjálpar heimilislausum.
Ásdís Eir Símonardóttir og Óli Páll Geirsson hafa verið ráðin til upplýsinga- og fjártæknifyrirtækisins Lucinity
Lögregla er með nokkur mál til rannsóknar þar sem fólk hefur millifært milljónir á erlenda glæpahópa í trú um að það sé að kaupa sér bíl. Oftast er ómögulegt að fá peninginn til baka.
Félagasamtök sem gefa sig út fyrir að vera góðgerðafélag fyrir heimilislausa sendu valkröfur í heimabanka hjá fjölda manns um helgina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er meðvituð um málið og segir það til skoðunar hjá sér.
„Kvika hefur stækkað úr litlu félagi upp í eitt af stærstu félögum landsins. Þrátt fyrir það er markaðshlutdeild okkar lítil víða. Félagið er fjárhagslega sterkt og tækifærin til þess að auka samkeppni eru víða. Við erum rétt að byrja,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku.
Þjóðaröryggisráð hefur fundað fjórum sinnum vegna þeirrar ógnar sem kann að steðja að efnahagslífi landsins að greiðslumiðlunarkerfi séu nú allar í eigu erlendra aðila og lúta ekki að íslenskri lögsögu að fullu. Unnið er að þróun innlendrar greiðslulausnar.
Hagnaður greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor nam 19,9 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2021. Um er að ræða tæplega 580 milljóna króna viðsnúning milli ára en félagið skilaði 560 milljóna króna tapi á sama tíma í fyrra.
Nýr banki er við það að hefja starfsemi á Íslandi og ætlar sér í beina samkeppni við stóru banka landsins um viðskiptavini. Hann verður að öllu leyti rekinn á rafrænu formi, mun ekki halda úti einu einasta útibúi en telur sig munu breyta íslenskum bankamarkaði til framtíðar.
Kvika, sameinað félag Kviku banka, TM og Lykils, hefur gengið frá kaupum á appinu Aur. Aur var stofnað árið 2015 sem einföld leið til að millifæra peninga og hefur verið afar vinsælt meðal ungs fólks.
Kvika hefur á þessu ári fest kaup á tveimur fjártæknifyrirtækjum, sem eru á meðal stærstu fyrirtækja á sínum markaði á Íslandi í dag. Það eru Aur, sem áður var í meirihlutaeigu Nova, og Netgíró, sem áður var í eigu Alva Capital.
Fasteignatækni (e. Proptech) er regnhlífarhugtak yfir tæknifyrirtæki sem vinna með fasteignir á einn eða annan hátt. Á Íslandi starfar fjöldi slíkra fyrirtækja og er fasteignatækni vaxandi iðnaður.
Íslenska sprota- og tæknifyrirtækið Noona hefur tryggt sér fjármögnun upp á 1,2 milljónir evra, eða um 190 milljónir íslenskra króna. Fjármögnunin er leidd af alþjóðlega fjártæknifyrirtækinu SaltPay sem keypti færsluhirðinn Borgun í mars 2020.
Íslenska fjártæknifyrirtækið Meniga hefur samið við sænsku bankasamsteypuna Swedbank og eru lausnir Meniga nú aðgengilegar öllum viðskiptavinum bankans í Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Valitor varar við svikahröppum sem reynt hafa að blekkja korthafa til að staðfesta kort í Apple Pay-snjallsímalausninni eða gefa upp SMS-öryggiskóða. Þannig hafa „sviksamlegir tölvupóstar“ til að mynda verið sendir út í nafni þekktra fyrirtækja á borð við DHL og Póstinn að því er fram kemur í tilkynningu frá Valitor.
Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, segir ótrúlegt að fólk sé til í að ræða kynlíf, geðsjúkdóma og alls kyns aðra hluti við börnin sín en sleppi oft að ræða við þau um fjármál heimilisins.
„Undanfarin ár hafa þannig verið gerðar talsvert auknar kröfur til fjármálafyrirtækja og annarra fyrirtækja í tengslum við varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þessar kröfur eiga ekki síður við ýmis lítil og meðalstór fyrirtæki, en margir átta sig ekki á til hversu víðtækra starfsemi kröfurnar ná til,“ segir Ólafur Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Nátthrafns.
Dæmi eru um að svikahrappar hafi reynt að skrá kortaupplýsingar sem fengust í gegnum netsvindl í gær.
Forsvarsmenn Kviku segja bankann hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kaupa Netgíró að fullu og verða eini eigandi þess.
Kaup alþjóðlega fjártæknifyrirtækisins Rapyd á Korta eru nú frágengin.
Alþjóðlegar bankasamsteypur eru meðal þeirra sem hafa fjárfest í íslenska fjártæknifyrirtækinu Meniga fyrir 1,3 milljarða króna.
Orka Holding hefur fest kaup á öllum hlutabréfum Kredia Group Ltd. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Orku Holding að félagið ætli sér að byggja upp annars konar viðskiptamódel en hefur verið hjá því undanfarin ár.
Forsetahjónin íslensku, þau Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, voru viðstödd opnun nýrrar skrifstofu íslenska fjártæknifyrirtækisins Meniga í pólsku höfuðborginni Varsjá í gær.
Bill Gates sagði fyrir mörgum árum að bankarnir væru risaeðlur að deyja út. Davíð Stefán Guðmundsson segir sérfræðinga Deloitte ekki vilja taka svo djúpt í árina en segir innrás fjártæknifyrirtækja hraða.
Áskorendabankar eru ný tegund banka sem eru að skapa sér miklar vinsældir erlendis á stuttum tíma. Google og Apple á hraðleið inn í bankageirann og framtíðin er björt í fjártæknigeiranum segir Eva Björk Guðmundsdóttir, forstöðumaður Meniga og formaður Samtaka fjártæknifyrirtækja á Íslandi.
Þorvaldur Henningsson segir mikilvægt að bankarnir þjálfi starfsfólk í að sinna nýjum verkefnum því það er leið til að sporna við uppsögnum. Þorvaldur segir hér frá helstu niðurstöðum nýrrar rannsóknar um áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á störf í fjármálageiranum.
Viðmælendur Vísis eru allir sammála því að ríkið selji eignarhlut sinn í bönkunum, Íslandsbanki þá sérstaklega nefndur með tilliti til umræðunnar.Bankaskatturinn er sagður rýra verðmæti þeirra og almenningsálitið torvelda ríkinu verkefnið.
Útrás er einn valkostur fyrir bankana að skoða segir Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóri Fjártækniklasans. Bankar sem ekki aðlaga sig breytingum næstu ára eiga á hættu að fara á höfuðið.
Fjártæknifyrirtækið Two Birds, sem hefur sérhæft sig í þróun á nýjum og notendavænum viðskiptalausnum á fasteigna- og fjármálamarkaði, hefur fest kaup á Aurbjörgu.
Fjártækniklasinn og Samtök fjármálafyrirtækja standa nú fyrir málþingi um næstu verkefni í fjártækni í Silfurbergi í Hörpu.