Landsbankinn
4 5 6 7 8 9 … 9 ›
Efling færir margra milljarða verðbréfaeign sína alfarið til Landsbankans Stéttarfélagið Efling var með samtals nálægt tíu milljarða króna í verðbréfasjóðum og innlánum hjá Landsbankanum um síðustu áramót eftir að hafa ákveðið að losa um allar eignir sínar í öðrum fjármálafyrirtækjum og færa þær alfarið yfir til ríkisbankans. Verðbréfaeign Eflingar lækkaði um 284 milljónir að markaðsvirði á liðnu ári, sem má að stærstum hluta rekja til boðaðra aðgerða fjármálaráðherra um að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð náist ekki samningar við kröfuhafa um uppgreiðslu skulda hans. Innherji 8.5.2023 07:00
Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á fyrstu mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam 7,8 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2022. Viðskipti innlent 4.5.2023 13:37
Kristrún vill að minnsta kosti Landsbankann eftir sem áður í eigu ríkisins Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“ Innlent 3.5.2023 10:46
Kröfu Björgólfs um vanhæfi Jóns Arnars hafnað Jón Arnar Baldurs er ekki vanhæfur til þess að sitja sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn hluthafa Landsbankans gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Björgólfur krafðist þess að hann myndi víkja vegna tengsla við endurskoðunarfyrirtæki. Viðskipti innlent 28.4.2023 13:39
Landsbankinn skerðir afgreiðslutíma á Kópaskeri og Raufarhöfn í sumar Landsbankinn hefur ákveðið að skerða afgreiðslutímann í útibúum bankans á Kópaskeri og Raufarhöfn í sumar. Viðskipti innlent 27.4.2023 14:55
Landsbankinn tapaði Borgunarmálinu í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað félögin BPS, Eignarhaldsfélagið Borgun, Teya Iceland, sem áður hét SaltPay, og Hauk Oddsson, fyrrverandi forstjóra Borgunar, af kröfum Landsbankans í Borgunarmálinu svokallaða. Að mati héraðsdóms var vanræksla Landsbankans á því að gæta hagsmuna sinna höfuðorsök þess að bankinn varð af milljarða söluhagnaði við söluna á eignarhlut í kortafyrirtækinu. Innherji 27.4.2023 12:03
Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skuldabréfafjárfesta Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna. Innherji 24.4.2023 10:45
Stýrivextir lækki ekki fyrr en um mitt næsta ár Hagfræðideild Landsbankans spáir 3,2 prósenta hagvexti á Íslandi í ár. Gert er ráð fyrir því að vextir haldi áfram að hækka og mun það eiga stóran þátt í því að það hægir á hagkerfinu. Spáir bankinn því að stýrivextir fari ekki að lækka fyrr en um mitt næsta ár. Viðskipti innlent 24.4.2023 09:36
Krefst þess að Jón Arnar víki vegna tengsla við PwC Reimar Pétursson, lögmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, krefst þess að Jón Arnar Baldurs taki ekki sæti sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn gegn Björgólfi. Þinghald um meint vanhæfi Jóns Arnars fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðskipti innlent 19.4.2023 12:18
Spá því að verðbólgan lækki um 0,3 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan lækki úr 9,8 prósentum í 9,5 prósent í aprílmánuði. Spáin næstu mánuði gerir ráð fyrir því að verðbólga lækki og fari niður fyrir átta prósent í júlí. Neytendur 19.4.2023 10:37
Telur sérfróðan meðdómanda vanhæfan Reimar Pétursson, verjandi Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lagt fram kröfu um meint vanhæfi sérhæfs meðdómanda í málsókn þriggja málsóknarfélaga hluthafa Landsbankans. Krafan snýst um vanhæfi Jóns Arnars Baldurs, endurskoðanda og sérfræðings í reikningsskilum. Viðskipti innlent 17.4.2023 14:00
Hvetur hluthafa að tryggja að bankinn geti boðið „samkeppnishæf“ starfskjör Bankastjóri Landsbankans brýnir hluthafa, þar sem íslenska ríkið er fyrirferðarmest með 98 prósenta hlut, og bankaráð að „sjá til þess“ að bankinn sé samkeppnishæfur þegar kemur að kjörum starfsfólks. Forsvarsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) gagnrýndu hvernig staðið var að kjaraviðræðum við bankastarfsmenn fyrr í vetur á nýlega afstöðnum aðalfundum Íslandsbanka og Landsbankans og varaformaður samtakanna sagði mikilvægt að koma á fót kaupaukakerfi hjá Íslandsbanka. Innherji 15.4.2023 15:25
Landsbankinn fluttur úr fjórtán húsum undir eitt þak í Reykjastræti Starfsmenn Landsbankans eru að flytja í nýtt hús bankans við Reykjastræti en frágangi á lóð og innréttingum verður að fullu lokið í sumar og haust. Bankinn nýtir sjálfur um 60 prósent hússins en ríkið hefur fest kaup hinum hlutanum sem meðal annars mun hýsa utanríkisráðuneytið. Innlent 14.4.2023 19:30
Bankar hækka vexti hver á fætur öðrum Landsbankinn hefur breytt vöxtum vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Sem dæmi hafa breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækkað um eitt prósent og standa nú í níu prósentum. Arion banki gerði slíkt hið sama í vikunni. Viðskipti innlent 1.4.2023 11:00
Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. Innlent 28.3.2023 10:20
Landsbankinn vekur athygli á fölsuðu myndefni í dreifingu Landsbankinn segir miður að einhver sjái sér hag í að vega að Eddu Falak með ósmekklegum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum vegna falsaðs myndskeiðs og myndar sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. Innlent 27.3.2023 16:34
Landsbankinn greiðir 8.500 milljónir í arð Landsbankinn hefur samþykkt að greiða hluthöfum 8.504 milljónir í arð. Heildararðgreiðslur bankans síðustu tíu ár nema 175,1 milljarði króna. Viðskipti innlent 23.3.2023 20:11
Evruútgáfa Landsbankans mátti ekki tæpara standa vegna óróa á mörkuðum Útgáfa Landsbankans á sértryggðum bréfum í evrum fyrir jafnvirði 45 milljarða króna undir lok síðustu viku var „mjög jákvæð,“ að sögn seðlabankastjóra, sem segir að ef skuldabréfaútgáfan hefði ekki heppnast á þeim tíma hefði getað reynst afar erfitt að klára hana vegna óvissu á erlendum fjármálamörkuðum. Seðlabankinn gerir ekki athugasemdir við áform bankanna um arðgreiðslur og kaup á eigin bréfum við þessar aðstæður og það sé jafnvel ákjósanlegt út frá markmiði peningastefnunnar. Innherji 16.3.2023 17:24
Gera sömuleiðis ráð fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 75 punkta á miðvikudaginn þegar tilkynnt verður um næstu ákvörðun. Spáin rímar við spá Greiningar Íslandsbanka sem birt var í gær. Viðskipti innlent 16.3.2023 12:41
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
Útgáfa Landsbankans á evrubréfum ætti að styðja við gjaldeyrismarkaðinn Með sölu Landsbankans á evrópskum sértryggðum skuldabréfum í evrum fyrir jafnvirði um 45 milljarða íslenskra króna er búið að eyða áhyggjum fjárfesta af endurfjármögnun bankanna sem ætti að styðja við gjaldeyrismarkaðinn. Kjörin á skuldabréfum Landsbankans voru á sambærilegu vaxtaálagi borið saman við útistandandi sértryggð evrubréf Íslandsbanka á eftirmarkaði. Innherji 10.3.2023 11:58
Landsbankinn rukkaði einstæða móður um fyrnda milljóna króna skuld Innheimtufyrirtæki hélt áfram að reyna að rukka einstæða fjögurra barna móður um milljóna króna kröfur fyrir hönd Landsbankans eftir að þær voru fyrndar. Bankinn segir mistök hafa átt sér stað en lögmaður konunnar segir hana skoða réttarstöðu sína. Viðskipti innlent 25.2.2023 07:00
Arðgreiðslur ríkisfélaga þremur milljörðum yfir áætlun Arðgreiðslur þriggja stærstu ríkisfyrirtækjanna; Landsbankans, Landsvirkjunar og Íslands, nema alls 33,7 milljörðum króna á þessu ári og eru þremur milljörðum hærri en upphæðin sem fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði ráð fyrir við gerð síðasta fjárlagafrumvarps. Innherji 24.2.2023 13:49
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Karítas frá Mogganum og til Landsbankans Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum. Viðskipti innlent 20.2.2023 13:47
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Siggeir og Albert frá Landsbankanum til Arion Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Viðskipti innlent 10.2.2023 09:10
Endurreikna lán og hafa samband staðfesti æðri dómstólar dóminn Landsbankinn reiknar líkt og Neytendasamtökin með að áfrýja dómi þess efnis að bankinn skuli greiða hjónum tvö hundruð þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Komist æðri dómstólar að sömu niðurstöðu ætlar bankinn að eiga frumkvæði að því að endurreikna öll lán sem falli undir fordæmið. Neytendur 8.2.2023 14:41
Landsbankinn tapaði máli sem gæti varðað um 70 þúsund lán Landsbankanum hefur verið gert að greiða hjónum um 200 þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Málið var rekið fyrir héraðsdómi með stuðningi Neytendasamtaka sem telja að um 70 þúsund sambærileg lán hafi verið tekin á undanförnum árum. Komist var að öndverðri niðurstöðu í sambærilegu máli gegn Arion banka. Viðskipti innlent 7.2.2023 18:54