Matvöruverslun

Fréttamynd

Melabúðin fagnar sjö­tíu árum

„Ég svara bara: Til hamingju með afmælið sömuleiðis,“ segir Dýrleif Birna Sveinsdóttir, verslunarstjóri Melabúðarinnar, sem staðið hefur í ströngu í dag meðan haldið var upp á sjötíu ára afmæli búðarinnar. Boðið var upp á vöfflukaffi fyrir gesti og gangandi í tilefni dagsins.

Lífið
Fréttamynd

Of snemmt að draga fram heyk­víslar

„Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 pró­sent, þá er það náttúru­lega alveg galið,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­takanna um full­yrðingar Sam­keppnis­eftir­litsins sem fram komu í um­ræðu­skjali um stöðu elds­neytis­markaðarins. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrir­tækja­sam­stæðurnar á dag­vöru- og elds­neytis­markaði sýni betur hvar arð­semi þeirra verður til.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af­koma Haga vel yfir væntingum vegna hækkana á olíu­verði

Góður gangur í innlendum hluta starfsemi Haga á fyrsta fjórðungi, einkum vegna óvenju góðrar afkomu Olís, þýddi að rekstrarhagnaður smásölurisans var talsvert yfir væntingum greinenda. Afkomuspá félagsins helst samt óbreytt fyrir árið en óvissa tengt aðfangakeðjum hefur sennilega heldur minnkað.

Innherjamolar
Fréttamynd

Mat­væla­verð, tollar og heimildavinna

Aðalkosningamál Viðreisnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk., það mál sem sett er fram sem helstu rök fyrir því að hvetja kjósendur til að segja já við framhaldi viðræðna, er lækkun matvælaverðs.

Skoðun
Fréttamynd

Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís

Verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu fimm til tíu prósent frá lægsta verði. Verð er enn ódýrast í Prís og um fimm til sex prósentum dýrara í Bónus og Krónunni. Þetta sýnir ný könnun Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar

Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í Reykjavík í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöru­verði

Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina

Fyrstu Spar-verslanirnar verða opnaðar á laugardaginn við Barónsstíg í Reykjavík og Staðarberg í Hafnarfirði. Greint var frá því í febrúar að Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 yrðu Spar.

Neytendur
Fréttamynd

Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu

Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau.

Neytendur
Fréttamynd

Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin

Bónus í Skipholti er nú opið klukkutíma lengur en áður, til tíu að kvöldi. Tvær Bónus verslanir eru nú opnar svo lengi en framkvæmdastjóri Bónus segir lengri opnunartíma ekki skila sér út í verðlag. Ákvörðunin sé svar við kalli viðskiptavina.

Neytendur
Fréttamynd

Himneskt ei meir

Vörumerkið Himneskt hefur verið lagt niður af eiganda þess Högum. Í stað vara undir merkjum Himneskt verða seldar lífrænar vörur undir merkjum Salling Øko en Hagar gerðu nýverið samning við Salling group um sölur á þeim vörum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara eins og að missa vini sína“

Fastagestur hjá versluninni Kjötborg segir það vera eins og að missa vini sína nú þegar liggur fyrir að versluninni verður lokað seinna á árinu, slík sé sorgin. Kaupmennirnir á horninu segjast ætla kveðja með stæl. 

Innlent
Fréttamynd

Hús­næði Kjötborgar til sölu

„Tilvalið til að breyta í íbúð,“ stendur í auglýsingu fyrir húsnæði Kjötborgar sem hefur nú verið sett á sölu. Verslunarhúsnæðið er tæplega nírætt og búðin sem þar er til húsa er ein sú rótgrónasta í Reykjavík.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Boða lækkanir í Bónus og Hag­kaupum með nýju sam­starfi

Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu.

Neytendur
Fréttamynd

Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní

Samkaup hefur aukið eignarhlut sinn í Kjötkompaníinu upp í 48 prósent samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Samkaup keypti 38 prósenta hlut í október en samkvæmt tilkynningu vildi félagið auka hlut sinn vegna góðs samstarfs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skel metið á „hálf­virði“ í saman­burði við önnur fé­lög í smá­sölu og þjónustu

Markaðsgengi Skel er um þrjátíu prósent lægra en jafngildir innra virði þess, sem má meðal annars rekja til óvissu um virði óskráðra eigna, en í nýrri greiningu er fjárfestingafélagið sagt verulega vanmetið á markaði. Þar er þeirri spurningu velt upp hvort munurinn í verðlagningu á Skel borið saman við önnur skráð félög sem starfa í smásölu og þjónustu „eigi að vera svona gríðarlega mikill“ en fjárfestingafélagið er í þeim samanburði á tæplega „hálfvirði“ miðað við það sem reksturinn skilar hluthöfum í hagnað.

Innherji
Fréttamynd

Ríf­leg eigin­fjár­staða skapar svig­rúm til veru­legs vaxtar hjá Festi

Festi ræður yfir talsverðu umfram eigin fé um þessar mundir sem stjórnendur horfa til að geta nýtt í „verulegan“ innri og ytri vöxt en í nýrri greiningu er fjárfestum ráðlagt að halda stöðu sinni í smásölufélaginu óbreyttri, enda þótt verðmatsgengið sé hækkað nokkuð. Undir lok síðasta árs fór dótturfélagið Elko að hasla sér völl í lánastarfsemi og útlit er fyrir hraðan vöxt þar á þessu ári.

Innherji