Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2026 12:35 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir mikla eftirspurn vegna sólmyrkvans hafa orðið til þess að félagið lagði meiri áherslu á flug til Íslands og minni á tengiflug yfir Atlantshafið. Einar Farþegum Icelandair fækkaði um fimm prósent í ágúst þrátt fyrir mikla fjölgun farþega til og frá Íslandi. Forstjóri félagsins segir fækkun tengifarþega endurspegla meðvitaða áherslubreytingu.
Icelandair flutti 577 þúsund farþega í ágúst, fimm prósentum færri en í sama mánuði í fyrra. Farþegum sem komu til Íslands fjölgaði hins vegar um ellefu prósent og voru þeir tæplega 269 þúsund. Farþegum frá Íslandi fjölgaði um tólf prósent en tengifarþegum fækkaði um 27 prósent og voru 186 þúsund. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir breytinguna skýrast af því að félagið hafi lagt meiri áherslu á þá markaði þar sem eftirspurnin var sterkust. „Við erum að nýta sveigjanleika leiðakerfisins okkar og setja áhersluna á þá markaði sem voru sterkastir. Það var náttúrulega mikil eftirspurn til Íslands í tengslum við sólmyrkvann,“ segir Bogi. Félagið hafi því lagt meiri áherslu á ferðir til Íslands en minni áherslu á tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku. Meðaltekjur Icelandair af farþegum, að teknu tilliti til vegalengdar, jukust um 24 prósent frá ágúst í fyrra. Sætanýting var tæp 86 prósent og minnkaði um 1,3 prósentustig. Framboð á flugsætum dróst saman um fimm prósent. Ekki að hætta flugi yfir hafið Bogi segir fækkun tengifarþega ekki fela í sér að Icelandair ætli að hverfa frá flugi yfir Atlantshafið. „Við erum ekki að hætta neinu. Við höldum áfram að þróa leiðakerfið með þessum hætti, en aðstæður breytast í okkar umhverfi og með okkar sveigjanlega og sterka leiðakerfi getum við breytt okkar áherslum,“ segir Bogi. Verði markaðurinn fyrir tengiflug sterkari geti félagið aftur lagt meiri áherslu á hann. Farþegum Icelandair hefur fjölgað um þrjú prósent það sem af er ári. Bogi segir eftirspurnina enn sterka á helstu mörkuðum félagsins en hátt eldsneytisverð geri flugrekstur krefjandi um þessar mundir.
Icelandair Flug Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira