Bandaríkin

Fordæma vopnabrölt nágranna sinna í ljósi heimsfaraldurs
Her Norður-Kóreu skaut um helgina nýrri tegund eldflauga á haf út úr nýrri gerð skotpalla sem tilheyrir vopnafjölskyldu sem forsvarsmenn einræðisríkisins kalla „risa stórir eldflaugaskotpallar“.

Höfundur I Love Rock and Roll lést af völdum Covid-19
Bandaríski tónlistarmaðurinn Alan Merrill, sem frægastur er fyrir að hafa samið og flutt stórsmellinn I Love Rock and Roll, er látinn, 69 ára að aldri. Hann lést af völdum Covid-19.

Framlengir gildistíma reglna vegna kórónuveiru út apríl
Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að framlengja gildistíma aðgerða og reglna, sem ætlaðar eru til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar, út apríl.

Telur að meira en hundrað þúsund muni látast í Bandaríkjunum
Helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna telur að allt að hundrað þúsund muni látast og milljónir smitast af kórónuveirunni þar í landi.

Lífsnauðsynlegt að koma í veg fyrir smit á hjúkrunarheimilum: 34% smitaðra á dvalarheimili í Washington létust
Þriðjungur þeirra heimilismanna sem smituðust af kórónuveirunni á hjúkrunarheimili í Washington-ríki Bandaríkjanna létust af völdum veirunnar og var dánartíðni vegna hennar á meðal íbúa því 33,7%

Trump hættur við að setja New York í sóttkví
Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki lengur að íhuga að setja New York-ríki í sóttkví. Þegar það var til skoðunar mætti það harðri gagnrýni. Ríkisstjóri ríkisins kallaði hugmyndina „fráleita.“

Ungbarn með COVID-19 lést í Bandaríkjunum
Ekki er búið að ganga úr skugga um hver dánarorsök barnsins var en það hafði greinst með kórónuveiruna.

Trump íhugar að setja New York í sóttkví
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við blaðamenn að hann væri að íhuga að setja New York ríki í sóttkví.

Joseph Lowery látinn
Predikarinn Joseph Lowery sem var fyrirferðarmikill í baráttunni fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum, er látinn 98 ára að aldri.

Bob Dylan gefur út sitt fyrsta lag í átta ár
Tónlistargoðsögnin og Nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan hefur gefið út sitt fyrsta lag í átta ár.

Yfir hundrað þúsund staðfest smit í Bandaríkjunum
Bandaríkin tróna á toppi listans yfir þau lönd þar sem flest smit hafa greinst. Áður hafa Kína og Ítalía vermt hið óeftirsótta toppsæti.

Elon Musk útvegar öndunarvélar
Elon Musk hyggst gefa New York hundruð öndunarvélar til þess að bregðast við þeim skorti sem er í ríkinu.

Skrifaði undir stærsta björgunarpakka sögunnar
Pakkinn hljóðar upp á 2,2 biljónir dala og felur hann meðal annars í sér um 150 milljóna beingreiðslur til bandarískra heimila.

Trump efast um þörf fyrir mikinn fjölda öndunarvéla
Donald Trump Bandaríkjaforseti og borgarstjórinn í New York eru komnir í hár saman yfir því hversu mikil þörf sé fyrir öndunarvélar í fylkinu. Forsetinn sagðist í sjónvarpsviðtali í gær ekki trúa því að þörfin væri jafn mikil og haldið væri fram. Bill de Blasio borgarstjóri New York sagði í dag að forsetinn þyrfti að horfast í augu við staðreyndir.

Segist geta orðið Ólympíumeistari þrátt fyrir að vera farinn að nálgast fertugt
Þrátt fyrir að vera farinn að nálgast fertugt er engan bilbug á bandaríska spretthlauparanum Justin Gatlin að finna. Hann stefnir á að verða Ólympíumeistari á næsta ári.

Kína og Bandaríkin taka höndum saman í baráttunni við veiruna
Leiðtogar risaveldanna Kína og Bandaríkjanna ræddu saman á símafundi í nótt þar sem faraldur kórónuveiru var að sjálfsögðu aðal umræðuefnið.


Fjöldi tilfella á heimsvísu nær nú hálfri milljón
Tilfelli kórónuveirunnar á heimsvísu eru nú orðin fleiri en hálf milljón samkvæmt tölum frá John Hopkins háskólanum í Baltimore í Maryland-ríki Bandaríkjanna.

Segir milljónir geta dáið verði ekki gripið til aðgerða
Verði ekki gripið til afgerandi aðgerða á heimsvísu gæti Covid-19, sjúkdómurinn sem nýja kórónuveiran veldur, fellt milljónir fólks. Þetta sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, á fjarfundi leiðtoga G20 ríkja í dag.

Mexíkóskir mótmælendur loka landamærunum við Bandaríkin
Mótmælendur úr röðum íbúa mexíkóska ríkisins Sonora, sem deilir landamærum með Arizona í Bandaríkjunum, segjast ætla að halda áfram að halda landamærastöðvum lokuðum af ótta við að Bandaríkjamenn, sýktir af kórónuveirunni, haldi yfir landamærin.

Drew Brees gefur 700 milljónir
Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans Saints í NFL-deildinni hefur sett nýtt viðmið hvað varðar rausnarskap.

Mögulega mikilvægasti leikur körfuboltans fór fram á þessum degi fyrir 41 ári
26. mars 1979 fór fram körfuboltaleikur í Salt Lake City í Utah fylki sem átti eftir að breyta öllu fyrir framtíð körfuboltans í Bandaríkjunum.

Maduro ákærður fyrir fíkniefnabrot í Bandaríkjunum
Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum ætla að ákæra Nicolas Maduro, forseta Venesúela, fyrir fíkniefnabrot í dag.

Fjórfalt fleiri sóttu um atvinnuleysisbætur en nokkru sinni fyrr
Fleiri en þrjár milljónir Bandaríkjamanna sóttu um atvinnuleysisbætur í síðustu viku og er það fjórfalt fleiri en nokkru sinni hafa gert það. Hagfræðingar vara við því að atvinnuleysi vegna efnahagslegra áhrifa kórónuveiruheimsfaraldursins gæti náð allt að 13% í maí.

Stærsti björgunarpakki sögunnar samþykktur á Bandaríkjaþingi
Björgunarpakki fyrir fyrirtæki, launafólk og heilbrigðisþjónustu vegna kórónuveirufaraldursins sem hljóðar upp á 2,2 biljónir dollara var samþykktur einróma í öldungadeild Bandaríkjaþings í nótt. Búist er við því að fulltrúadeildin afgreiði þennan stærsta björgunarpakka í sögunni á morgun.

Á annað þúsund nú látnir af völdum veirunnar í Bandaríkjunum
Alls hafa nú verið staðfest nærri 70 þúsund tilfelli kórónuveirusmits í Bandaríkjunum og fjölgaði þeim um tíu þúsund á einum degi.

Íhaldssöm ríki stöðva þungunarrof í faraldrinum
Yfirvöld í Texas og Ohio í Bandaríkjunum hafa ákveðið að þungunarrof sé ónauðsynleg aðgerð sem verði að fresta vegna kórónuveirufaraldursins. Ákvörðunin var tekin þrátt fyrir að samtök bandarískra kvensjúkdómalækna hafi kallað eftir því að þungunarrof nyti verndar í faraldrinum.

Ná samkomulagi um björgunarpakka
Hvíta húsið í Washington og leiðtogar öldungadeildar Bandaríkjaþings komust í nótt að samkomulagi um björgunarpakka sem ætlað er að styðja við bandarískt efnahagslíf á tímum kórónuveirufaraldursins.

Lést eftir að hafa innbyrt efni sem hann taldi Trump segja að hindri smit
Karlmaður lést í Arizona-ríki í Bandaríkjunum á dögunum eftir að hafa innbyrt efnið chloroquine phosphate ásamt eiginkonu sinni í tilraun til þess að verja sig fyrir kórónuveirusmiti.

New York kallar eftir hjálp
Andrew Cuomo, ríkisstjóri, kallaði í kvöld eftir hjálp frá alríkinu og sagði embættismenn hafa vanmetið faraldurinn.