Bandaríkin
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Nýjasta plata Laufeyjar, A Matter of Time, kom út á föstudag og hefur þegar fengið gríðarlega góðar viðtökur hjá gagnrýnendum og tónlistarunnendum. Laufey syngur í fyrsta sinn eigið efni á íslensku á plötunni. Tónlist 28.8.2025 09:46
Þvættuðu milljarða af illa fenginni rafmynt á Íslandi Ein af stærstu peningaþvottastöðvum heims er sögð hafa leigt netþjóna frá íslensku hýsingarfyrirtæki til þess að þvætta tæpa 25 milljarða króna af illa fenginni rafmynt. Íslenska lögreglan aðstoðaði bandarísku alríkislögregluna við að upplýsa peningaþvættið. Innlent 28.8.2025 07:28
Hafði ritað „Breivik“ og „Drepið Trump“ á skotvopnin 23 ára kona sem hóf skothríð í kaþólskum skóla í Minneapolis í Bandaríkjunum í gær deildi sérstakri yfirlýsingu sinni fyrir árásina, var ekki á sakaskrá og hafði eignast skotvopnin með löglegum hætti. Á skotvopnin hafði árásarmaðurinn – Robin Westman – meðal annars skrifað „Drepið Trump“, „Breivik“ og „McVeigh“. Erlent 28.8.2025 06:46
Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Að minnsta kosti tvö börn voru skotin til bana og sautján eru særðir eftir að maður á þrítugsaldri hóf skothríð inn um glugga á kirkju þar sem fjöldi skólabarna hafði komið saman í Minneapolis í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn er sagður hafa svipt sig lífi eftir að hann var króaður af. Erlent 27.8.2025 15:17
„Stóra fallega frumvarpið“ hans Trump Fyrir nokkru var samþykkt í báðum deildum bandaríkjaþings frumvarp sem var nefnt „stóra fallega frumvarpið“ (the big beautiful bill) og sem forseti Bandaríkjanna lagði mikla áherslu á að næði fram að ganga. Það er alger öfugmæli að kalla frumvarpið og lögin falleg, því það er nákvæmlega ekkert fallegt við þau, heldur þvert á móti. Skoðun 27.8.2025 14:02
Með rétt til að „gera hvað sem ég vil“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt í gær fordæmalausan rúmlega þriggja tíma ríkisstjórnarfund sem sýnt var frá í beinni útsendingu. Þar sagðist hann meðal annars hafa rétt, sem forseti, til að gera hvað sem hann vildi en ítrekaði að hann væri ekki einræðisherra. Erlent 27.8.2025 13:53
Opnar sig eftir handtökuna Það vakti gríðarlega athygli þegar rapparinn Lil Nas X var handtekinn á fimmtudag í síðustu viku. Hann tjáði sig í fyrsta sinn um handtökuna í gær á Instagram síðu sinni. Lífið 27.8.2025 13:02
„Þetta í raun staðfestir það sem að flestir bjuggust við“ Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta eru grunaðir um að stunda njósnir og áróðursherferðir á Grænlandi. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir fréttirnar ekki koma á óvart. Markmiðið sé að grafa undan sambandi Grænlands og Danmerkur með það að leiðarljósi að auka stuðning við áform forsetans um að eignast Grænland. Erlent 27.8.2025 13:02
Tilraunaskotið heppnaðist loksins Tíunda tilraunaskot starfsmanna SpaceX með Starship geimfarið heppnaðist í nótt. Var það eftir nokkurra daga tafir og misheppnaðar fyrri tilraunir. Að þessu sinni líkti geimskipið sjálft eftir lendingu á Indlandshafi og Super Heavy eldflaugin sem bar geimskipið á loft líkti eftir lendingu á Mexíkóflóa. Erlent 27.8.2025 11:37
Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Foreldrar sextán ára pilts í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa stefnt gervigreindarfyrirtækinu Open AI vegna sjálfsvígs sonar síns. Foreldrarnir saka gervigreind fyrirtækisins, ChatGPT, um að hafa hvatt hann til að svipta sig lífi. Erlent 27.8.2025 11:08
Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að kalla bandarískan erindreka í Danmörku á teppið í kjölfar umfjöllunar danska ríkissjónvarpsins um tilraunir manna með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta til að hafa áhrif á Grænlandi. Erlent 27.8.2025 07:45
Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Bruce Willis er við góða líkamlega heilsu en heilinn er að „bregðast honum“ og hann er hættur að geta tjáð sig með orðum. Þetta segir eiginkona leikarans, Emma Heming Willis, í nýju viðtali við fjölmiðlakonuna Diane Sawyer. Erlent 27.8.2025 06:59
50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Tollar Donald Trump Bandaríkjaforseta á vörur frá Indlandi hafa tekið gildi en þeir nema 50 prósentum. Upphaflega stóð til að þeir yrðu 25 prósent en þeir voru hækkaðir vegna kaupa Indverja á olíu og vopnum frá Rússlandi. Erlent 27.8.2025 06:38
Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Risastór sandstormur gekk yfir Arizona í Bandaríkjunum í gær og olli talsverðum usla í Phoenix. Flugum var aflýst og þúsundir í borginni eru enn án rafmagns. Erlent 26.8.2025 21:51
Taylor Swift trúlofuð Poppsöngkonan Taylor Swift er trúlofuð íþróttamanninum Travis Kelce. Lífið 26.8.2025 17:31
Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur stefnt dánarbúi barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Formaður nefndarinnar, James Comer, vill þannig koma höndum yfir „öll skjöl eða gögn“ sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum. Erlent 26.8.2025 10:10
Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Will Smith hefur verið sakaður um að nota gervigreind til að fjölga aðdáendum sínum í nýju myndbandi af yfirstandandi tónleikaferðalagi hans. Lífið 26.8.2025 09:28
Lil Nas X laus gegn tryggingu Bandaríska rapparanum Lil Nas X hefur verið sleppt úr fangelsi gegn 75 þúsund dala tryggingu sem samsvarar rúmlega níu milljónum króna. Lífið 26.8.2025 07:48
Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann ætlaði að reka Lisu Cook, einn stjórnarmanna Seðlabanka Bandaríkjanna. Sérfræðingar efast um að ákvörðun Trump standist lög og Cook hyggst bera málið undir dómstóla. Erlent 26.8.2025 07:34
Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Bandaríski rapparinn Lil Nas X hefur verið ákærður fyrir fjögur brot á alríkislögum. Hann var handtekinn fyrir helgi á meðan hann ráfaði um götur Los Angeles-borgar á nærfötunum og í kúrekastígvélum. Lífið 25.8.2025 19:45
Umframeftirspurn eftir skuldabréfum Play Flugfélagið Fly Play hf. hefur lokið við útgáfu breytanlegs skuldabréfs til tveggja ára en umframeftirspurn var eftir bréfunum. Fjórar vélar verða starfræktar frá Íslandi í vetur, undir maltnesku flugrekstrarleyfi. Viðskipti innlent 25.8.2025 17:31
Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Kilmar Abrego Garcia, sem var ranglega sendur frá Bandaríkjunum í alræmt fangelsi í El Salvador fyrr á árinu, hefur verið handsamaður á nýjan leik og stendur nú frammi fyrir því að vera sendur til Úganda. Erlent 25.8.2025 14:22
Hótar að senda herinn til Baltimore Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði því um helgina að senda hermenn til borgarinnar Baltimore og er einnig unnið að því að senda hermenn mögulega til Chicago. Hann sagði borgina stjórnlaust glæpabæli en það var eftir að Wes Moore, ríkisstjóri Maryland, bauð honum í heimsókn til Baltimore og sagði þá geta gengið um götur borgarinnar og rætt saman. Erlent 25.8.2025 13:44
El Mayo sagður ætla að játa sekt Ismael Zambada, sem var um árabil einn valdamesti fíkniefnabarónn Mexíkó er talinn ætla að játa sekt í bandarískum alríkisdómstól í dag. Zambada, sem gengur undir nafninu „El Mayo“ og var háttsettur leiðtogi í Sinaloa-samtökunum svokölluðu en tvær vikur eru síðan alríkissaksóknarar sögðust ekki ætla að sækja eftir dauðadómi gegn Zambada. Erlent 25.8.2025 10:06
Sopranos-stjarna látin Bandaríski leikarinn Jerry Adler, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Herman „Hesh“ Rabkin í þáttunum The Sopranos, er látinn. Hann varð 96 ára. Bíó og sjónvarp 25.8.2025 08:29
Tíunda skotið klikkaði Bandaríska geimferðafyrirtækið SpaceX, sem er í eigu Elon Musk, stefndi að tíunda tilraunaflugi Starship geimfarsins í nótt. Af henni varð ekki. Erlent 25.8.2025 08:20
Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Útgefandi ævisögu Virginiu Giuffre, sem hún lauk við áður en hún svipti sig lífi fyrr á árinu, segir bókina innihalda persónulegar og átakanlegar lýsingar á samskiptum Giuffre við Jeffrey Epstein, Ghislaine Maxwell og Andrés Bretaprins. Erlent 25.8.2025 07:17
Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Ríkisstjóri Illinois í Bandaríkjunum sakar Bandaríkjaforseta um valdníðslu, vegna áforma hans um að senda hermenn til Chicago. Hann segir aðgerðirnar óþarfar og muni einungis leiða til verra ástands en ella. Erlent 24.8.2025 10:20
Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Tónlistarkonan Katy Perry mun bera vitni frammi fyrir dómara á fimm ára afmælisdegi dóttur sinnar í tengslum við fasteignadeilur í Santa Barbara sem ná fimm ár aftur í tímann. Fyrir tíu árum átti Perry í deilum við hóp nunna vegna kaupa á nunnuklaustri. Lífið 24.8.2025 09:49
„Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Ghislaine Maxwell, kynferðisafbrotamaður og samverkakona Jeffrey Epstein, segist aldrei hafa séð Donald Trump hegða sér ósæmilega og segir Epstein-skjölin ekki til. Þetta kemur fram í afriti sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti af viðtali sem var tekið við Maxwell í júli. Erlent 23.8.2025 09:40