Ferðaþjónusta

Rebel Wilson er á Íslandi
Leikkonan Rebel Wilson er stödd á Íslandi ásamt kærustu sinni Ramonu Agruma. Hún birti mynd af sér þar sem hún var í miðnætursundi og af parinu í þyrluferð. Miðað við textann sem fylgir myndunum þykir þeim heldur kalt á landinu.

Þingvellir fengu fyrsta heiðursmerki Vörðu
Þingvellir voru í gær viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi, en um er að ræða viðurkenning merkisstaða á Íslandi sem teljast einstakir á lands- og/eða heimsvísu. Með Vörðu skuldbindur umsjónaraðili áfangastaðar ferðamanna sig til að vera til fyrirmyndar við stjórnun og umsjón hans og að við áframhaldandi þróun sé sífellt unnið að sjálfbærni á öllum sviðum.

„Það sér það hver maður að við landeigendur erum ekki að fara að greiða úr eigin vasa“
Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í gærkvöldi. Einn landeigenda segir mjög gott hljóð vera í hópnum og fundinn hafa gengið vel. Strax á föstudag hefst formlegt samstarf um að efla öryggi ferðamanna í Reynisfjöru.

Öryggismál ekki í lagi þegar ferðamaður lést
Öryggismál í Gleðivík á Djúpavogi eru til skoðunar eftir að erlendur ferðamaður varð fyrir lyftara og lést í gær. Samkvæmt heimamönnum hafði kaðall sem átti að aðskilja gangandi og akandi umferð meðfram ströndinni verið tekinn niður vegna framkvæmda og var því ekki til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær.

Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru
Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu.

Unnið að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs
Unnið verður að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs eftir að jörðin Heiði skipti um eigendur.

Stjórnvöld nýttu ekki forkaupsréttinn á Fjaðrárgljúfri
Íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki forkaupsrétt sem þau höfðu á Fjaðrárgljúfri en frestur til að nýta slíkan rétt er nú runninn út.

LeBron staddur á Íslandi
Körfuboltastjarnan LeBron James er staddur á Íslandi ef marka má mynd sem birtist af kappanum á Facebook síðdegis. Á myndinni stendur James með Smára Stefánssyni, eiganda The Cave People, fyrir framan Laugarvatnshella.

Airport Direct segir hegðun bílstjórans óásættanlega
Flautuleikaranum Pamelu De Sensi brá heldur í brún um borð í rútu Airport Direct í gær þegar hún sá bílstjórann ítrekað líta niður á síma sinn á meðan akstri stóð. Framkvæmdastjóri Airport Direct segir hegðunina vera óásættanlega og að rætt verði við starfsmanninn.

Vestfirðingar treysta á ekkert lúsmý í sumar
Það er meira en brjálað að gera hjá starfsfólki Vestfjarðarstofu að skipuleggja sumarið fyrir ferðamenn og aðstoða þá á ýmsan hátt, enda búist við metári í fjölda ferðamanna á svæðinu í sumar. Stofan vinnur líka að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við byggðaþróun sem og atvinnuþróun á Vestfjörðum.

„Fólk hefði ekki getað verið þarna mikið lengur“
Á annað hundrað björgunarsveitarmanna af öllu Suðurlandi og víðar að tóku þátt í einni umfangsmestu aðgerð síðari tíma á Vatnajökli í nótt. Hópi fjórtán göngumanna var bjargað úr virkilega erfiðum aðstæðum. Ástandið var orðið krítískt.

Útsýnispallur á Bolafjalli opni vonandi á næstunni
Útsýnispallur á Bolafjalli hefur ekki enn opnað sökum þess að öryggismál á pallinum eru ekki fyllilega frágengin. Bæjarstjóri Bolungarvíkur segir lokafrágang á pallinum hefjast í næstu viku og hann opni í kjölfarið. Viðhald á veginum upp á fjallið hefur einnig gengið erfiðlega í vetur en Landhelgisgæslan fer með umsjá hans.

Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða
Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu.

Hugum vel að þjálfun starfsfólks í ferðaþjónustu – þannig græða allir
Eftir tvö erfið ár fyrir íslenska ferðaþjónustu blasa við bjartari tímar. Allt stefnir í annasamt sumar og mörg fyrirtæki hafa staðið í ströngu við ráðningar á nýju starfsfólki. Öll viljum við taka vel á móti gestunum okkar og veita faglega þjónustu, en til þess þarf að tryggja að starfsfólk fái viðeigandi þjálfun.

Fylgjast með innlyksa fólki í Reynisfjöru
Lögreglu- og björgunarsveitarfólk fylgist nú með tveimur ferðamönnum sem urðu innlyksa í Reynisfjöru á flóði. Búist er við að hægt verði að koma þeim til hjálpar þegar fjarar út í kvöld.

Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði
Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs.

„Getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur“
„Við getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, um ástandið í Reynisfjöru þegar kemur að öryggi ferðamanna. Hún hyggst ræða við landeigendur og fulltrúa ferðaþjónustunnar um málið í næstu viku og kveðst opin fyrir því að loka ströndinni tímabundið þegar sjávarföll eru talin lífshættuleg.

Skrifræði ríkisins hafi aftrað úrbótum í Reynisfjöru
Talsmaður hóps landeigenda að Reynisfjöru segir að inngrip hins opinbera hafi aftrað úrbótum á öryggismálum í Reynisfjöru. Það sé sárt að heyra því haldið fram að það séu landeigendurnir sem vilji ekki bæta öryggi í fjörunni.

Blíðviðri og ekkert lúsmý
Sólin kemur til með að leika við Austfirðinga næstu dagana ef veðurspár ganga eftir. Blíðu á Austurlandi fylgja jafnan margir gestir á tjaldsvæðum á svæðinu og er því undirbúningur á fullu á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík.

Ferðagleði Íslendinga birtist í metkortaveltu erlendis
Heildarvelta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 21,5 milljörðum króna í apríl og hefur ekki verið hærri frá því að mælingar hófust árið 1997. Jókst veltan um tæpa 12,4 milljarða frá sama tíma árið 2021.

Hoppaði beint út í bullandi „vertíð“ skemmtiferðaskipa
„Það var smá áfall að hafa kynnst miklu work-life balance hjá Dönum í Wonderful Copenhagen og fara svo út í vertíðar brjálæði á Íslandi hjá Gáru. En ég dáist af íslenska „þetta reddast“ andanum, það er ekki gefist upp, bara spýtt í lófana,“ segir Gyða Guðmundsdóttir, nýráðin sérfræðingur í samfélagsþjónustu hjá AECO, samtaka útgerða leiðangursskipa á Norðurslóðum.

Mögnuð upplifun á Skrímslasetrinu á Bíldudal
Það er mögnuð upplifun að koma inn í Skrímslasetrið í Bíldudal því þar er hægt að sjá sjóskrímsli, sem hafa lifað með þjóðinni í gegnum aldirnar, auk þess að fræðast um sögu skrímslanna. Fjörulalli reyndi meðal annars að lokka ófrískar konur með sér í sjóinn. Magnús Hlynur leit við á safninu.

„Þetta er fúlt“
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair segir að það sé óneitanlega fúlt að hafa þurft að fella niður ferðir félagsins til London út mánuðinn. Hann vonast til þess að lausnir sem félagið hefur borið á borð breskra yfirvalda dugi til að leysa málið.

Komu að tjaldsvæðinu lokuðu og enduðu sem tjaldverðir
Tveir ungir karlmenn höfðu ætlað sér að búa í tjaldi á Eskifirði í sumar á meðan þeir ynnu í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Skömmu eftir að þeir höfðu komið sér vel fyrir á tjaldsvæði kom í ljós að loka átti tjaldsvæðinu vegna skorts á tjaldvörðum. Þeir voru ekki lengi að taka starfið einfaldlega að sér sjálfir.

Ferðamenn í sjálfheldu í Reynisfjöru
Ferðamenn komust í sjálfheldu í flæðarmálinu í Reynisfjöru í dag, degi eftir að erlendur ferðamaður lést þar. Hópur fólks lenti í öldu í fjörunni en öllum tókst þó að komast aftur á þurrt.

Banaslys í Reynisfjöru
Erlendur ferðamaður, karlmaður á áttræðisaldri lést í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó.

Þungt högg að missa heilan dag en Seyðfirðingar standa keikir
Rýma þurfti hótel og fresta opnun veitingastaðar á Seyðisfirði í dag eftir vatnsrör fór í sundur í bænum. Hótelstjóri segir þetta mikið bakslag núna þegar ferðasumrið er að fara af stað en að Seyðfirðingar séu öllu vanir. Þetta er bara enn eitt partíið sem að okkur er boðið í og við mætum, segir hann um vatnsöflin á Seyðisfirði.

Fjöldi brottfara í maí aldrei verið meiri
Brottfarir Íslendinga í maí voru um 65 þúsund talsins og hafa ekki mælst svo margar í maí síðan mælingar hófust. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu. Þá voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um 112 þúsund talsins sem er fimmti fjölmennasti maímánuður frá því að mælingar hófust.

Taktu þátt í leik og þú gætir unnið nótt á Hótel Húsafelli
Spennandi gjafabréfaleikur stendur nú yfir á facebooksíðu Hótels Húsafells.

Opna hótel í sögufrægu húsi á Siglufirði
Keahótel hafa opnað nýtt gistihús á Siglufirði, Salt, sem staðsett er í sögufrægu húsi sem áður hýsti Hótel Hvanneyri og var fyrst starfrækt árið 1934.