Erlent
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 334 ›
Ný landamæri opnuð fyrir flutning neyðarbirgða Kerem Shalom landamærin, sem aðskilja Ísrael, Egyptaland og Gasa, voru í dag opnuð fyrir flutning neyðarbirgða á Gasa í fyrsta skipti frá upphafi stríðs. Harðari árásir Ísraelshers hafa valdið versnandi ástandi og skortur á nauðsynjavörum er sagður gífurlega mikill. Erlent 17.12.2023 19:37
Sextíu talin látin eftir að bátur sökk í Miðjarðarhafi Óttast er að fleiri en sextíu hafi drukknað eftir að bátur sökk undan ströndum Líbíu. Forsvarsmenn Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar IOM segir að þungar öldur hafi skollið á bátinn með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 17.12.2023 10:51
Berghlaup á Grænlandi gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju Berghlaup sem varð við vesturströnd Grænlands við lok síðustu ísaldar er það stærsta sinnar tegundar sem vitað er um á jörðinni. Vísindamönnum reiknast til að það gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju í 25 kílómetra fjarlægð. Erlent 17.12.2023 07:57
Bandarískt herskip skaut niður fjórtán dróna Húta Bandarískt herskip skaut fjórtán dróna niður yfir Rauðahafi í dag. Auk þess skaut breskt herskip dróna niður sem miðað var á vöruflutningaskip. Um er að ræða umfangsmikla en misheppnaða árás Húta í Jemen en flaugunum var skotið frá yfirráðasvæði þeirra. Erlent 16.12.2023 23:56
Pilturinn er kominn aftur til Bretlands Hinn sautján ára Alex Batty, sem fannst í Frakklandi á miðvikudag eftir að hafa verið saknað í sex ár, er kominn aftur til Bretlands samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Manchester. Erlent 16.12.2023 22:50
Flúði eftir fjársvik og nú talinn njósnari Rússa Jan Marsalek, fyrrverandi rekstrarstjóri þýska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Wirecard, er grunaður um að hafa stolið tveimur milljörðum dala úr reikningum fyrirtækisins. Skömmu eftir að ljóst var að peningarnir voru horfnir, í júní 2020, steig Marsalek upp í einkaflugvél í Austurríki og var honum flogið til Belarús. Erlent 16.12.2023 14:41
Gíslarnir héldu á hvítum fánum þegar þeir voru drepnir Gíslarnir þrír ísraelsku sem voru drepnir af ísraelskum hermönnum í Gasa í gær héldu á heimatilbúnum hvítum fánum þegar hermennirnir skutu á þá, samkvæmt ísraelska hernum. Erlent 16.12.2023 12:56
Mette aldrei verið óvinsælli Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur hefur aldrei verið óvinsælli samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Epinion sem framkvæmd var á dögunum. Erlent 16.12.2023 12:07
Emírinn í Kúveit látinn Sjeik Nawaf al-Ahmad al-Sabah, emírinn í Kúveit, er látinn 86 ára að aldri. Hann tók við völdum af bróður sínum árið 2021. Krónprinsinn sjeik Meshal Al Ahmad Al Jaber, 83 ára hálfbróðir emírsins látna, tekur við völdum en hann var elsti krónprins heimsins. Erlent 16.12.2023 11:28
Mótmæli á götum Tel Avív eftir að þrír gíslar voru óvart drepnir Mótmæli fara nú víða fram í Tel Avív í Ísrael þar sem þess er krafist að yfirvöld geri meira til að endurheimta gísla frá Gasa svæðinu. Erlent 16.12.2023 09:34
Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump og borgarstjóri New York borgar, hefur verið dæmdur til að greiða mæðgum, sem hann rægði með ásökunum um kosningasvindl, 148 milljónir dala. Það gerir ríflega tuttugu milljarða króna. Erlent 16.12.2023 08:45
Fjögurra mánaða barn fannst lifandi í tré eftir hvirfilbyl Fjögurra mánaða gamalt barn fannst lifandi uppi í tré eftir að hafa fokið í miklum hvirfilbyl í Tennesseeríki í Bandaríkjunum. Erlent 15.12.2023 22:28
Ísraelskir hermenn drápu þrjá gísla Ísraelski herinn drap í dag þrjá gísla sem voru í haldi Hamas-liða. Samkvæmt talsmönnum ísraelska hersins var um mistök að ræða og að hermennirnir hafi staðið í trú um að gíslarnir væru ógn. Erlent 15.12.2023 20:18
Tveggja milljóna evra virði af farangri rænt af flugvellinum á Tenerife Spænska lögreglan hefur handtekið fjórtán manns og rannsakað aðra 20 fyrir að hafa rænt tæplega tveggja milljón evra virði af farangri á Tenerife Sur-flugvellinum. Allir voru þeir starfsmenn flugvallarins. Erlent 15.12.2023 18:13
Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. Erlent 15.12.2023 17:05
Kastaði handsprengjum inn á fjölmennan fund Bæjarfulltrúi sprengdi að virðist þrjár handsprengjur á fjölmennum fundi í ráðhúsi Keretsk-bæjar í vesturhluta Úkraínu í dag. Árásarmaðurinn var sagður hafa dáið og 26 aðrir eru særðir, en lögreglan dró síðar til baka að maðurinn hefði dáið og er hann sagður í alvarlegu ástandi. Erlent 15.12.2023 13:39
Harry lagði Mirror í hakkaramáli Harry Bretaprins hefur lagt eigendur breska götublaðsins Daily Mirror í máli sem hann höfðaði á hendur þeim fyrir að hafa brotist inn í síma hans. Þeim hefur verið gert að greiða prinsinum bætur sem nema 140 þúsund pundum eða rúmum 25 milljónum króna. Erlent 15.12.2023 11:40
Enn eitt skipið fyrir eldflaug á Rauðahafi Enn eitt flutningaskipið varð fyrir eldflaug á Rauðahafi í gærkvöldi. Eldflauginni mun hafa verið skotið frá yfirráðasvæði Húta í Jemen, eins og öðrum eldflaugum, en eldur kom upp í skipinu þegar eldflaugin hæfði það. Erlent 15.12.2023 11:00
Fannst í Frakklandi eftir sex ára leit Sautján ára enskur piltur sem hafði verið saknað í sex ár fannst í Frakklandi á miðvikudag. Vegfarandi hjálpaði piltinum að komast í samband við ömmu sína með hjálp Facebook. Erlent 15.12.2023 10:10
Harðar árásir á Khan Younis í nótt Ísraelski herinn hefur í nótt sett enn meiri kraft í árásir sínar á borgina Khan Younis á Gasa svæðinu, sem er næst stærsta þéttbýlið á svæðinu. Erlent 15.12.2023 06:57
Orban stöðvar 50 milljarða evru hjálparpakka ESB til Úkraínu Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa stöðvað fyrirhugaðan 50 milljarða evru hjálparpakka Evrópusambandsins til Úkraínu. Ákvörðun Ungverja var tekin fáeinum klukkustundum eftir að samkomulag náðist um að hefja viðræður um aðild Úkraínu að sambandinu. Erlent 15.12.2023 06:38
Úkraínu boðið að hefja aðildarviðræður við ESB Leiðtogaráð Evrópusambandsins bauð í dag Úkraínu og Moldóvu að hefja formlegar viðræður um inngöngu í sambandið. Það kom fram á fundi leiðtoganna sem stendur nú yfir í Brussel. Erlent 14.12.2023 19:08
Grunur um að hinir handteknu tengist Hamas Þýskir saksóknarar fullyrða að þeir þrír sem voru handteknir í Þýskalandi í dag og sá fjórði í Hollandi að beiðni þýskri yfirvalda hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þrír til viðbótar voru handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum í Danmörku. Allir sjö eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Erlent 14.12.2023 17:09
Viðhorf Íra til innflytjenda að breytast hratt Írland hefur lengi þótt nokkuð merkilegt fyrir þar sakir að þar hafa fjar-hægri stjórnmálaflokkar aldrei náð fótfestu. Þá hefur írska þjóðin verið stolt af því hvernig tekið er á móti farand- og flóttafólki þar. Erlent 14.12.2023 16:40
Enginn friður fyrr en markmiðum Pútíns er náð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að markmið hans varðandi innrásina í Úkraínu gildi enn. Enginn friður verði fyrr en þeim markmiðum hafi verið náð. Þetta sagði forsetinn á maraþonfundi þar sem hann á að hafa svarað spurningum almennings í Rússlandi. Erlent 14.12.2023 12:20
Varar við hruni hjálparstarfs á Gasaströndinni Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir ástandið fyrir íbúa Gasastrandarinnar vera sambærilegt því að búa í helvíti. UNRWA ber ábyrgð á því að dreifa neyðaraðstoð til íbúa Gasastrandarinnar. Erlent 14.12.2023 10:46
Fjöldahandtökur vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka Lögregla í Danmörku hefur handtekið fjölda einstaklinga og framkvæmt húsleit víða um land í samhæfðum aðgerðum í morgun vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka í landinu. Erlent 14.12.2023 10:45
Sat inni í tuttugu ár fyrir að myrða börn sín en dómurinn ógiltur Hæstiréttur Nýja Suður-Wales í Ástralíu hefur ógilt þrjátíu ára fangelsisdóm Kathleen Folbigg, sem afplánaði tuttugu ár af dómnum áður en hún var náðuð í sumar. Hún var dæmd í þrjátíu ára fangelsi árið 2003 fyrir að myrða þrjú barna sinna og valda dauða þess fjórða. Hæstiréttur taldi sönnunargögn sem notuð voru í máli hennar óáreiðanleg. Erlent 14.12.2023 08:37
Segja þrýsting frá alþjóðasamfélaginu ekki skipta máli Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að sótt verði fram til fullnaðarsigurs á Gasa svæðinu þrátt fyrir þrýsting alþjóðasamfélagsins. Erlent 14.12.2023 07:28
Fulltrúadeildin samþykkir formlega rannsókn á Biden Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi að hefja formlega rannsókn á embættisfærslum Joe Bidens forseta sem gætu svo leitt til ákæru til embættismissis. Erlent 14.12.2023 07:23