Skoðun

Það er mikill munur á þeim sem vanda sig og hinum sem vanda sig ekki
Forsvarsmenn íslenskra spilafyrirtækja draga reglulega nafn spilafyrirtækisins Betsson inn í umræðu um ólögmæta spilastarfsemi hér á landi og leggja starfsemi þess að jöfnu við starfsemi annars erlends spilafyrirtækis, sem reynt hefur að hasla sér völl hér á landi með aðstoð og atbeina skemmtikrafta og áhrifavalda.

Það sem spurt var um - en svörin þunn og kom kannski ekki á óvart
Undirritaður spurði þáverandi umhverfis og auðlindaráðherra meðal annars þessarar spurningar (NB) þann 6. febrúar 2020 á Alþingi Íslendinga. „1. Hversu mörg íslensk skip brenna enn svartolíu og notast við hreinsunarbúnað?

Að rækta garðinn sinn
Samfélag er garður. Ef þar er ekki rými fyrir fjölbreyttan gróður er garðurinn ekki bara einsleitur heldur verður jarðvegurinn með tímanum næringarsnauður og ófrjór.

Dánaraðstoð og siðareglur lækna
Löggjöf um læknisaðstoð við að deyja (e. Medical Aid in Dying eða MAID) tók gildi í Kaliforníu árið 2016. Samkvæmt lögunum þurfa tveir læknar að meta sjálfstætt hvort sjúklingur (1) eigi 6 mánuði eða skemur eftir, (2) sé fær um að taka upplýsta og sjálfviljuga ákvörðun, og (3) sé andlega hæfur til að taka slíka ákvörðun.

Vörður á veginum framundan
Það vill svo til að í sumar er komið að tímamótum í nokkrum af stóru fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Frá gildistöku hans 2019 til áramóta hefur verið fjárfest í samgönguinnviðum fyrir alls 14,5 milljarða. Þar af eru 6,5 milljarðar í stofnvegum, 3,8 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 2,7 milljarðar í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 1,6 milljarðar og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum.

Umferðarreglur og öryggi fyrir Hjólað í vinnuna
Hjólað í vinnuna hefst 8.maí og margir sem ætla að nota annan ferðamáta en bílinn til að komast í vinnuna. Átakið er hvatning til að notast við virka og umhverfisvæna ferðamáta en með því er t.d. átt við að hjóla, labba, hlaupa eða taka strætó til vinnu.

Af hverju kýs ég ekki Katrínu Jakobs
Meðal vina minna er dálæti mitt á Katrínu Jakobsdóttur vel þekkt.

Kjósum sameiningu, ekki sundrungu
Það liggur í eðli embættis forseta Íslands að þar sitji vammi firrtur einstaklingur sem njóti óskoraðrar lýðhylli.

Forseti allra
Forseti Íslands á að vera forseti allrar þjóðarinnar. Hann þarf ekki aðeins að vera þverstéttarlegt sameiningartákn, heldur þarf hann einnig að geta náð til fólks þvert á aldurshópa. Hann þarf að þekkja allt Ísland vel og kunna að tala mál sem allir skilja.

Ný nálgun í afreksíþróttum – Nýsköpun
Nýlega skilaði starfshópur á vegum Ásmundar Einar Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, umfangsmikilli skýrslu um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks á Íslandi. Í skýrslunni er lagt til að nauðsynlegt sé að gera umtalsverðar breytingar á fyrirkomulagi, stuðningi og faglegri umgjörð afreksíþrótta á Íslandi.

Prófsteinninn
Íslenska þjóðin stendur með þjóðarmorði og aðskilnaðarstefnu Ísrael, sem er framhald af 19. aldar nýlendustefnu vestrænna ríkja. Það er ákvörðun núverandi ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn hefur einnig ákveðið fyrir hönd þjóðarinnar að taka sem minnstan þátt í að hjálpa fólki á flótta í heiminum, sem nú í maí er áætlað að nái 110 milljónum, samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Innrás á Rafah stríðir gegn allri mannúð
Í meira en hálft ár hefur Ísraelsher staðið fyrir linnulausum árásum á almenna borgara á Gaza. Enginn er óhultur á svæðinu á meðan bæði landhernaður og drónaárásir ógna lífum. Á Gaza stendur nú yfir ein versta mannúðarkrísa síðari ára en Ísraelsher hefur einnig tafið fyrir eða stöðvað birgðasendingar með hjálpargögn inn á svæðið.

Börnin okkar
„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ er ekki gripið úr lausu lofti. Allir foreldrar þurfa að treysta á að náunginn komi vel fram við börn. Við erum með kennara, þjálfara og allskonar fagaðila sem koma að umönnun barna okkar.

Vextir geta og þurfa að lækka
Íslendingum hefur gengið erfiðlega að ná niður þeirri miklu verðbólgu sem gekk yfir hagkerfi heimsins í kjölfar heimsfaraldurs og stríðsátaka í Úkraínu. Fyrir því eru margar ástæður. Hagvöxtur síðustu ára hefur verið mikill hér á landi og mikil þensla haft áhrif á húsnæðisverð, vinnumarkað og vöruverð í hagkerfinu.

Söngvakeppni og stríðsglæpir
Í dag hefst söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Keppnin í ár er pólitískur gjörningur þar sem ríki Evrópu, í gegnum ríkissjónvarpsstöðvar sínar, fylkja liði um stjórnvöld í Ísrael og sýna pólitískan stuðning sinn við þau í verki með söng og dansi.

Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið
Á Íslandi ríkir algjört ráðaleysi. Hjá stjórnvöldum er stefnuleysi og hver höndin er upp á móti annarri þó ekkert þeirra vilji kannast við það.

Óttasleginn mömmuher og Eurovision
Afi minn var svona persóna sem mér þótti vera stærri en lífið. Það geislaði af honum sjálfsöryggið, hann var hörkugreindur, flugskarpur og hnyttinn. Hann kynnti sér málin og vissi svo margt. Hann labbaði inn í herbergi og hann átti það, hann hreinlega gleypti það.

Já, Katrín
Til hvers þurfum við forseta? Ég veit það ekki alveg. Og þó, ég er alinn upp í forsetatíð Kristjárns Eldjárns og Vigdísar Finnbogadóttur. Þau áttu sér djúpar rætur í íslenkri menningu. Þannig finnst mér að forsetinn eigi að vera. Þau slógu einhvern tón sem var rétti tónninn, finnst mér. Þau töluðu af myndugleika og auðmýkt.

Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins?
Fyrir átta árum síðan, í kosningabaráttunni í aðdraganda þess að Guðni Th. Jóhannesson var fyrst kjörinn forseti lýðveldisins, var hann ítrekað vændur um það úr röðum pólitískra andstæðinga sinna að vera frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins vegna þess hversu margir sjálfstæðismenn voru í kosningateymi hans.

Heillandi Halla Hrund
Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir hefur á skömmum tíma látið mjög að sér kveða og fangað athygli fólks víða. Henni fylgir ferskur andblær sem sífellt fleiri kunna að meta, eins og kannanir undanfarið sýna.

Riðið á Bessastöðum?
Hugleiðingar fólks eru allskonar varðandi komandi kosningar á nýjum forseta, spurningarnar sem fólki dettur í hug að spyrja alveg með ólíkindum margar hverjar og stór spurning hvernig fólki dettur öll þessi vitleysa í hug hvað þá að spyrja.

Að lifa í skugga heilsubrests
Það velur enginn það hlutskipti að verða öryrki. Ef ég hefði haft val þá hefði ég valið heilsu, valið að vera laus við verki og vanlíðan. En svona er lífið og það sem kom fyrir mig gæti komið fyrir þig. Einn daginn er maður heilbrigður, en svo eins og þruma úr heiðskíru lofti þá er lífi manns snúið á hvolf.

Umræðan um dánaraðstoð
Í kjölfar Pallborðsþáttar á Vísi fyrir nokkrum vikum hafa skoðanagreinar um dánaraðstoð ratað á miðilinn. Þar sem ég tók þátt í umræðunum í þættinum vil ég nota þetta tækifæri til að koma á framfæri nokkrum atriðum sem mér þykir nauðsynlegt að fái pláss í umræðu um þetta málefni.

Útrýming mannsins á RÚV
Við Íslendingar teljumst herlaus þjóð, en undanfarin ár hefur óprúttinn nýlenskuher gert aðför að tungumálinu okkar úr ýmsum áttum, staðráðinn í að innleiða hina kynlausu nýlensku í nafni jafnréttisbaráttu.

Opið bréf til samgönguráðherra og vegamálastjóra
Við undirrituð, ferðaþjónar í Dölum viljum koma á framfæri hvernig ástand á vegi 60 koma við okkur. Sökum ónýtrar klæðningar á vegi, hefur nú verið tekið til þess ráðs hjá Vegagerðinni að mylja klæðninguna niður á feykistórum kafla í Dalabyggð á vegi 60, Vestfjarðavegi. Afgangurinn er allur meira og minna að molna niður.

Hugleiðingar ellilífeyrisþega um landsmálin og orkumálin
Víst er hún skondin tík þessi pólitík, ég er oft hugsi yfir þingmönnum okkar sem eru lýðræði landsins vægt sagt dýrir í rekstri og stundum jafnvel óþarfir þar sem reynsluleysi þeirra og hroðvirkni er himinhrópandi. Þar er öll gullhúðunin gott dæmi, einnig allskyns regluverk sem sett hefur verið og þingheimur skilur illa og ræður ekki við, þetta allt er farið að minna á þjóðsöguna um orminn sem lá á gullinu og að lokum gleypti eigandann.

Að tilheyra - Fjölmenningarþing Reykjavíkur
Fjölmennt Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar var haldið á laugardaginn í Hinu húsinu í Elliðaárdal. Fjölmenningarþing hefur verið haldið allt frá árinu 2010. Að þessu sinni var yfirskrift þingsins „Að tilheyra“ eða „Belonging“ á ensku.

Katrínu sem forseta
Embætti forseta Íslands er alltaf í mótun. Mikilvægt embætti þegar á reynir. Það sást vel á örlagatímum í forsetatíð Kristjáns Eldjárn og Ólafs Ragnars Grímssonar. Þjóðhöfðinginn þarf að skynja hjartslátt þjóðar, hafa sannfæringu, kraft og þor jafnt á ljúfum stundum og þegar móti blæs.

Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“
Vinkona á Íslandi sagði mér nýlega í gegn um Skype að það væri séð sem ósiðlegt á Íslandi í dag að spyrja innflytjendur hvaðan þeir séu.

Þekking á naloxone nefúða getur bjargað lífi
Undanfarin ár hefur verið vaxandi ópíóíðavandi hér á landi og jafnvel talað um faraldur í því sambandi. Afleiðing tengd misnotkun ópíóíða er m.a. aukning ótímabærra dauðsfalla, oft vegna ofskömmtunar þeirra. En það er til lyf sem getur auðveldlega bjargað lífi þeirra sem hafa ofskammtað og það er einfalt í notkun.