Viðskipti erlent
180 181 182 183 184 185 186 187 188 … 334 ›
Levin: Sýnir að það verður að herða regluverkið Þetta sýnir hversu nauðsynlegt það er, að herða reglurverkið þegar kemur að viðskiptum bankanna sem eru of stórir til að falla," segir öldungadeildarþingmaðurinn Carl Levin, í viðtali við New York Times, vegna taps risabankans JP Morgan upp á tvo milljarða dala sem tilkynnt var um eftir lokun markaða í gær. Það er tilkomið vegna viðskipta með bandarísk fyrirtækjaskuldabréf, en bankinn veðjaði á að bandarískur efnahagur myndi rétta meira úr kútnum en raunin varð. Viðskipti erlent 11.5.2012 09:49
JP Morgan tapar ótrúlegum upphæðum Stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase hefur greint frá tapi upp á heila tvo milljarða dollara eða 250 milljarða króna vegna flókinna hlutabréfaviðskipta sem ekki gengu upp. Fregnirnar koma flestum á óvart en búist er við að heildartap bankans á öðrum ársfjórðungi muni nema 800 milljónum dollara eða um 100 milljörðum króna. Viðskipti erlent 11.5.2012 06:33
Facebook mun opna vefverslun Samskiptavefurinn Facebook mun opinbera vefverslun sína á næstu vikum. Áhersla verður lögð á smáforrit fyrir snjallsíma en fyrirtækið hefur hingað til átt í erfiðleikum með að afla tekna í gegnum snjallsímanotkun notenda sinna. Viðskipti erlent 10.5.2012 12:49
Heilaskurðaðgerð á Twitter Læknar við Memorial Hermann-sjúkrahúsið í Houston framkvæmdu heilaskurðaðgerð í beinni útsendingu á Twitter-síðunni í gær. Viðskipti erlent 10.5.2012 10:15
Pólitískur titringur í Evrópu skekur markaði Pólitískur titringur í Evrópu og vaxandi hætta á því að ríkissjóðir í Suður-Evrópu, einkum Grikkland og Spánn, lendi í greiðsluvanda, skók markaði í dag að því er segir á vef Wall Street Journal, en víðast hvar einkenndust hlutabréfamarkaðir af rauðum tölum lækkunar. Þannig lækkaði FTSE 100 vísitala hlutabréfamarkaða í Evrópu um 1,78 prósent og Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 0,59 prósent. Viðskipti erlent 8.5.2012 21:53
Ástralar grípa til aðgerða vegna skulda Fjármálaráðherra Ástralíu, Wayne Swan, segir að ríkisfjármálum Ástralíu verði komið á réttan kjöl á næstu tveimur árum, en stefnt er að því að rekstrarafgangur verði upp á 1,5 milljarða Ástralíudala, sem jafngildir um 187,5 milljörðum króna. Viðskipti erlent 8.5.2012 11:48
Auðugur Dani er annar stærsti landeigandi á Bretlandseyjum Danskur auðmaður er orðinn næststærsti jarðeigandinn á Bretlandseyjum. Hann á orðið meiri jarðir þar en Karl Bretaprins. Viðskipti erlent 7.5.2012 11:17
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkar áfram í Danmörku Gjaldþrotum fyrirtækja í Danmörku fækkaði áfram í apríl s.l. þriðja mánuðinn í röð. Hafa gjaldþrotin ekki verið færri í einum mánuði síðan í árslok árið 2008 að því er kemur fram í nýjum tölum frá dönsku hagstofunni. Viðskipti erlent 7.5.2012 09:12
Allir Evrópumarkaðir opnuðu í rauðum tölum Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir í rauðum tölum í morgun og fylgdu þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt. Viðskipti erlent 7.5.2012 08:16
Hlutabréfamarkaðir í mínus, evran fellur og olíuverð lækkar Fyrstu afleiðingar kosningaútrslitanna í Frakklandi og Grikklandi voru að hlutabréfamarkaðir í Asíu tóku dýfu í nótt, evran veiktist og heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að falla. Viðskipti erlent 7.5.2012 06:31
Besta frumsýningarhelgi allra tíma - stefnan tekin á Avatar Frumsýningarhelgi kvikmyndarinnar "The Avengers“ í Bandaríkjunum var vægast sagt góð - myndin sló öll met og þénaði rúmlega 200 milljón dollara eða um 25 milljarða króna. Viðskipti erlent 6.5.2012 20:28
Buffet ætlar ekki að fjárfesta í Facebook Warren Buffet, einn þekktasti og ríkasti fjárfestir heims, segir að hann ætli ekki að kaupa hlutabréf í Facebook þegar fyrirtækið fer á hlutabréfamarkað. Þetta sagði Buffet, sem er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Berkshire Hathaway, rétt áður en hluthafafundur hófst í Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta er þar samankominn til þess að hlýða á Buffet fjalla um hugleiðingar sínar varðandi fjárfestingar og stöðu markaðarins. Viðskipti erlent 6.5.2012 19:58
David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi samkvæmt nýjum lista sem Sunday Times hefur tekið saman. Hinn 37 ára gamli knattspyrnumaður, sem leikur með LA Galaxy, á eignir að andvirði 160 milljónir sterlingspunda, eða tæpa 33 milljarða króna. Viðskipti erlent 6.5.2012 17:47
Bandaríkjamenn óðir í ofurhetjurnar Ofurhetjurnar í „The Avengers" hafa slegið enn eitt metið. Kvikmyndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í gær og halaði hún inn 80.5 milljón dollurum eða rúmum 10 milljörðum króna en það er önnur besta opnun kvikmyndasögunnar. Viðskipti erlent 5.5.2012 17:23
Fréttaskýring: Söguleg skráning FB á markað Stefnt er að skráningu Facebook á markað 18. maí næstkomandi en samfélagsmiðillinn verður með einkennið FB á markaðsvaktinni í Bandaríkjunum. Skráningin er um margt söguleg en um er að ræða langsamlega umfangsmestu skráningu internetfyrirtækis í sögunni þegar horft er til markaðsvirðis við skráningu. Viðskipti erlent 4.5.2012 23:03
Atvinnuleysi mælist 8,1 prósent í Bandaríkjunum Um 115 þúsund störf urðu til í Bandaríkjunum í apríl, samkvæmt tölum sem birtar voru í morgun, en atvinnuleysi mælist nú 8,1 prósent. Það er minnkun frá stöðunni sem var í mars, en þá mældist atvinnuleysið 8,2 prósent. Viðskipti erlent 4.5.2012 13:32
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu þessa stundina og hefur verðið verið í frjálsu falli frá því síðdegis í gærdag. Viðskipti erlent 4.5.2012 10:24
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið síðasta sólarhringinn og er nú komið á svipaðar slóðir og skömmu eftir áramótin. Viðskipti erlent 4.5.2012 06:37
Samsung Galaxy S III er mættur Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti hulunni af nýjasta snjallsíma sínum í dag, Galaxy S III. Samsung er stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar og eru Galaxy símarnir vinsælustu vörur fyrirtækisins. Viðskipti erlent 3.5.2012 23:30
Facebook metið á 85 til 95 milljarða dala Verðmæti Facebook er á bilinu 85 til 95 milljarðar dala, samkvæmt því verði sem hlutir í fyrirtækinu verða skráðir á, að því er upplýst var í dag. Hlutir í fyrirtækinu, sem líklega verður skráð á markað undir einkenninu FB hinn 18. maí, verða skráðir á bilinu 28 til 35 dali. Viðskipti erlent 3.5.2012 22:04
Ein af hverjum fimm tölvum sýkt Samkvæmt niðurstöðum úr nýrri rannsókn inniheldur ein af hverjum fimm Mac-tölvum einhverja tegund óværu. Það er töluvert hærra hlutfall en fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós. Viðskipti erlent 3.5.2012 20:42
Skuldabréfaútgáfa spænska ríkisins á ríflega 4 prósent vöxtum Spænska ríkið lauk í dag við skuldabréfaútgáfu upp á liðlega 2,5 milljarða evra á að meðaltali 4,04 prósent vöxtum, að því er breska ríkisútvarpið BBC greindi frá í dag. Það eru töluvert hærri vextir en ríkinu bauðst í síðustu útgáfu en þá voru vextirnir 2,6 prósent. Viðskipti erlent 3.5.2012 14:29
Gleymd auglýsing Apple komin í leitirnar Gleymt og grafið framhald auglýsingarinnar „1984" sem Apple framleiddi hefur nú komið í leitirnar. Auglýsingin ber vitni um það að jafnvel Steve Jobs gat gert mistök. Viðskipti erlent 3.5.2012 13:18
„Áratugur tækifæra“ framundan í Kanada Kanada hefur komist vel frá kreppunni á heimsvísu, á undanförnum árum, og er horft til þess að næsti áratugur verði góður fyrir landið, ef tækifærin eru nýtt. Viðskipti erlent 3.5.2012 09:12
Málverkið Ópið selt fyrir metfé hjá Sotheby´s Málverkið Ópið eftir norska málarann Edvard Munch var selt á 120 milljónir dollara eða um 15 milljarða króna á uppboði hjá Sotheby´s í New York í gærkvöldi. Viðskipti erlent 3.5.2012 06:57
Danska flugfélagið Cimber Sterling er gjaldþrota Danska flugfélagið Cimber Sterling er orðið gjaldþrota. Félagið hét áður Sterling og var þá í eigu Íslendinga. Viðskipti erlent 3.5.2012 06:53
Kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin Það stefnir í kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin. Tölvuleikjaframleiðandinn Activision boðaði komu tölvuleiksins Call of Duty: Black Ops 2 um miðbik nóvember en um svipað leyti fer Halo 4 í almenna sölu. Viðskipti erlent 2.5.2012 13:53
RIM opinbera snjallsíma og stýrikerfi Kanadíski farsímaframleiðandinn Research in Motion hefur opinberað nýtt stýrikerfi fyrir BlackBerry snjallsímana. RIM einblínir nú á smáforrit og hugbúnaðarþróun í baráttu sinni við iPhone og Android snjallsímana. Viðskipti erlent 2.5.2012 13:26
Xbox 360 leikjatölvan bönnuð í Þýskalandi Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola Mobility hefur fengið lögbann á nokkrar vörur tæknifyrirtækisins Microsoft í Þýskalandi. Það var dómstóll í Mannheim sem komst að þessari niðurstöðu í dag. Viðskipti erlent 2.5.2012 12:03
Atvinnuleysið á evru-svæðinu hefur aldrei verið meira Nýjar tölur um atvinnuleysi í Evrópu sýna að efnahagsbatinn í álfunni er síður en svo handan við hornið eins og sumir voru farnir að vona. Viðskipti erlent 2.5.2012 09:54