Viðskipti erlent

Ein fyrsta Apple tölvan seld á 24 milljónir á uppboði
Ein af fyrstu einkatölvunum sem Apple framleiddi, kölluð Apple 1, var seld fyrir 24 milljónir króna á uppboði hjá Christie´s í London í gær.

Norðmenn bjóða Írum fjárhagsaðstoð
Norðmenn hafa nú bæst í hóp þeirra þjóða sem bjóðast til að styðja Írland fjárhagslega en þá í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Neyðaraðstoðin til Íra nemur rúmum 13 þúsund milljörðum
Samkomulag hefur nást um að neyðaraðstoð Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins muni nema 85 milljörðum evra eða rúmlega 13 þúsund milljörðum króna.

Hafnar því að Portúgal þurfi á neyðaraðstoð að halda
Jóse Sócrates forsætisráðherra Portúgal hafnar því að landið þurfi á aðstoð Evrópusambandsins að halda. Umræða um slíkt gerist æ háværari í kjölfar þess að Írland samþykkti slíka aðstoð.

Svíar ætla að lána Írum álíka mikið og Íslendingum
Svíar hafa nú ákveðið að taka þátt í björgunaraðgerðum til handa Írum sem glíma við mikinn fjárhagsvanda. Anders Borg, fjármálaráðherra Svía segir að framlag Svía verði af svipaðri stærðargráðu og framlögin til Íslendinga og Letta á sínum tíma.

Írland og ESB ná saman um neyðarlán
Ríkisstjórn Írlands og Evrópubandalagið hafa náð samkomulagi um neyðarstoð sambandsins til Írlands.

Um 140 milljónir manna nota Firefox daglega
Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla, sem meðal annars framleiðir Firefox vafrann, velti 104 milljónum bandaríkjadala á síðasta reikningsári, samkvæmt nýjum ársreikningi félagsins. Upphæðin nemur tæpum 12 milljörðum íslenskra króna en tekjuaukningin nemur um 34% frá fyrra ári.

Aðeins Írland með lægri fjármagnstekjuskatt en Ísland
Aðeins Írland er með lægri fjármagnstekjuskatt en Ísland af Evrópuþjóðum og munar nokkru þar sem skatturinn er 12,5% á Írlandi en 18% hérlendis. Talið er að Írar muni þurfa að hækka fjármagnstekjuskatt sinn töluvert í komandi samningaviðræðum við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um neyðaraðstoð fyrir Írland.

Verður líklega með myndavél
Búast má við að bandaríska tæknifyrirtækið Apple kynni til sögunnar nýja gerð af iPad-spjaldtölvunni, að mati sérfræðinga. Fyrsta iPad-tölvan kom á markað í apríl á þessu ári.

Innspýting er nauðsynleg
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, vísar á bug allri gagnrýni á áform bankans um að kaupa ríkisskuldabréf fyrir 600 milljarða dala.

Eik Bank í Danmörku seldur innan mánaðar
Eik Bank í Danmörku, dótturfélag Eik Banki í Færeyjum, verður seldur innan mánaðar. Kaupendur skortir ekki því 20 slíkir hafa sýnt því áhuga að kaupa Eik Bank.

Fékk 18 milljarða í laun fyrir að tapa 257 milljörðum
Fjárfestingabankinn Merrill Lynch sagði bless og takk fyrir við Stanley O´Neal forstjóra sinn eftir mesta ársfjórðungtap bankans í tæplega aldarlangri sögu hans árið 2007. O´Neal fékk 160 milljónir dollara eða 18 milljarða kr, að launum fyrir að tapa 2,3 milljörðum dollara eða um 257 milljörðum kr.

Eign Landic Property á Amager til sölu fyrir 20 milljarða
Eign í eigu þrotabús íslenska fasteignafélagsins Landic Property á Amager í Kaupmannahöfn er nú til sölu. Verðmæti hennar er metið á tæpan milljarð danskra kr. eða um 20 milljarða kr.

Ríkið gæti komið út á sléttu
Gengi hlutabréfa bandaríska bílaframleiðandans General Motors, GM, hækkaði um tæp átta prósent frá útboði í fyrstu viðskiptum með bréfin á hlutabréfamarkað í New York í í gær.

Kampavín upp á 7,5 milljónir flaskan fannst í skipsflaki
Kafarar sem sérhæfa sig í leit að skipsflökum duttu nýlega í lukkupottinn í Eystrasalti nálægt Álandseyjum. Þar fundu þeir hátt í 200 ára gamalt skipsflak sem fulllestað var með eðalkampavíni. Talið er að flaskan af því seljist á 50.000 evrur eða 7,5 milljónir kr.

Fyrirtækjaáhlaup hafið á írska banka
Fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við írska banka hafa tekið út innistæður sínar svo milljörðum evra skiptir á undanförnum vikum og mánuðum. Einstaklingar eru hinsvegar rólegri enda eru innistæður þeirra með ríkisábyrgð. Þetta kemur fram í Financial Times.

GM lýkur stærsta hlutafjárútboði sögunnar
Bandaríski bílarisinn General Motors (GM) hefur lokið stærsta hlutafjárútboði sögunnar og er mættur aftur til leiks í kauphöllinni á Wall Street. Alls seldust hlutir fyrir 23,1 milljarða dollara eða um 2.600 milljarða kr.

Setja milljarða inní grískt hagkerfi
Kínverjar hafa gert stóra fjárfestingarsamninga við Grikki og líta á landið sem glugga inn í Evrópusambandið.

Sjaldgæfur bleikur demantur seldist á 5,2 milljarða
Einn af sjaldgæfustu demöntum heimsins var seldur í vikunni á uppboði hjá Sotheby´s í Genf fyrir 5,2 milljarða kr. Þetta er mesta verð sem greitt hefur verið fyrir stakan demant á uppboði.

Alcoa fékk skell í kauphöllinni á Wall Street
Alcoa, móðurfélag Fjarðaráls, fékk skell í kauphöllinni á Wall Street í gærkvöldi eins og mörg önnur félög en þá tók Dow Jones vísitalan mestu dýfu á einum degi á síðustu þremur mánuðum.

Hætt við sölu á skemmtigörðum
Breski fjárfestingarsjóðurinn Candover hefur hætt við sölu á Parques Reunidos, spænsku móðurfélagi 69 afþreyingar- og skemmtigarða víða um heim. Meðal þeirra er BonBon-Land í Danmörku.

Viðsnúningur í rekstri Magma Energy
Magma Energy skilaði 13,4 milljóna dollara eða rúmlega 1,5 milljarða kr. hagnaði á fyrsta ársfjórðungi rekstrarárs síns en það hófst um mitt sumar. Á sama tímabili í fyrra var tap af rekstri Magma upp á 2,6 milljónir dollara eða um tæplega 300 milljónir kr.

Goldman Sachs segir Pandóru yfir 1.100 milljarða virði
Bandaríski stórbankinn Goldman Sachs segir markaðsvirði danska skartgripaframleiðandans Pandóru nema 56 milljörðum danskra kr. eða rúmlega 1.100 milljarða kr. Bankinn mælir með kaupum á hlutabréfum í Pandóru.

Royal Unibrew býður ekki í bruggverksmiðju í Eþíópíu
Næststærsta brugghús Danmerkur, Royal Unibrew, er ekki eitt af fimm brugghúsum sem boðið hefur verið að bjóða í ríkisrekna bruggverksmiðju í Eþíópíu. Meðal annarra sem keppa um þessa verksmiðju eru Heineken, SABMiller og Diego.

Fíkniefnasmyglari skuldaði Eik Bank 10 milljarða
Samkvæmt upplýsingum í viðskiptablaðinu Börsen í dag skuldaði þekktur fíkniefnasmyglari Eik Bank í Danmörku um hálfan milljarð danskra kr. eða um 10 milljarða kr.

Skuldasúpa Grikklands mun verri en talið var
Samkvæmt tölum sem Eurostat, hagdeild ESB, birti í morgun er skuldasúpa Grikklands mun verri en áður var talið. Hve mikið verri hún er kemur sérfræðingum samt ekki á óvart.

Eik Bank tapar 40 milljörðum í Danmörku
Eik Bank Denmark, dótturfélag Eik Banki í Færeyjum, mun tapa helmingi af útlánum sínum til fyrirtækja þar í landi eða um 40 milljörðum kr. Alls nema þessi útlán 4,2 miljörðum danskra kr. eða ríflega 80 milljörðum kr.

Prófessor: Nokkur Evrópuríki í hættu á íslensku hruni
Bandaríski hagfræðingurinn Kenneth Rogoff, fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), segir að nokkur Evrópuríki séu í hættu á að lenda í íslensku hruni ef þeim tekst ekki að skera niður fjárlög sín til lengri tíma litið. Auk þess þurfi löndin að komast í gegnum tímabil með litlum hagvexti samhliða þessum niðurskurði.

Írar segjast ekki þurfa neyðarlán frá ESB
Írskur ráðherra hefur neitað því að landið sé undir vaxandi þrýstingi að sækja um neyðarlán hjá Evrópusambandinu.

Írar hafa ekki sótt um neyðarlán
Írar hafa ekki sóst eftir neyðarláni frá Evrópusambandnu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum líkt og BBC greindi frá og Vísir hafði svo eftir í gær. Þá greindi BBC frá því að Írar hefðu sótt um allt að 80 milljarða evra lán hjá stofnununum.