
Viðskipti innlent

Munur á þróun leigu- og kaupverðs aldrei mælst meiri
Spenna á leigumarkaði hefur dregist saman síðustu misseri og leiguverð þróast með rólegasta móti, að sögn Hagfræðideildar Landsbankans. Hefur leiguverð nánast staðið í stað frá því að faraldurinn hófst og aðeins hækkað um 1,9% síðan í janúar 2020.

Öll fyrirtækin nema eitt í Kauphöllinni hækkuðu árið 2021
Verð á bréfum í Arion banka tvöfaldaðist árið 2021. Bréf í öllum fyrirtækjum í Kauphöllinni gáfu á bilinu tíu til hundrað prósent ávöxtun. Verð á bréfum Solid Clouds lækkaði um fjórðung.

Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri nýrrar Sviðlistamiðstöðvar
Friðrik Friðriksson, leikari og framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands og hefur hann störf 1.febrúar næstkomandi.

Texasbúi réttur eigandi lénsins Iceland Express
Fyrirtækið Sólvellir, sem tengt er Ferðaskrifstofu Íslands, kvartaði nýlega til Neytendastofu yfir notkun erlends aðila á léninu icelandexpress.is. Sólvellir á sjálft vörumerkið Iceland Express og bar fyrir sig að erlendi aðilinn hefði engin tengsl við merkið.

Maskína og MMR verða að Maskínu
Maskína og MMR sameinast þann 1. janúar 2022 undir hatti Maskínu. Með sameiningunni verður til eitt öflugasta rannsóknarfyrirtæki landsins sem mun kappkosta að mæta gæðakröfum íslenskra fyrirtækja og stofnana, eins og segir í tilkynningu.

Ársreikningar með fyrirvara vegna stöðunnar í Namibíu
Samstæðan Samherji Holding ehf. hagnaðist um 27,4 milljónir evra á seinasta ári eða sem nemur um 4,04 milljörðum króna, samkvæmt ársreikningi. Hagnaður nam 1,4 milljónum evra árið 2019.

Bein útsending: AWE - Nýsköpunarhraðall HÍ fyrir konur
Nýsköpunarhraðallinn Academy for Women Entrepreneurs (AWE), sem Háskóli Íslands og Bandaríska sendiráðið á Íslandi standa saman að, verður haldinn í annað sinn snemma á nýju ári.

Vilja ekki fá alla til sín á gamlársdag
Björgunarsveitirnar búast við góðri flugeldasölu í ár og hefur sala farið mjög vel af stað í desember. Vel gekk í fyrra og upplifa björgunarsveitarmenn aftur svipaða stemningu í samfélaginu nú þegar tveir stærstu söludagarnir eru fram undan.

Loftorka átti lægsta boð í Ölfusi og Mosfellsbæ
Annir gætu orðið hjá fyrirtækinu Loftorku Reykjavík ehf. við vegagerð næsta árið. Verktakinn átti lægsta boð í tveimur stórum útboðsverkum sem Vegagerðin opnaði fyrir jól.

Endurunnin smurolía notuð til að keyra loðnubræðslur
Smurolían sem tekin er af bílnum okkar þegar við förum með hann í smurningu mun nýtast loðnubræðslum landsins í vetur; sem endurunnin úrgangsolía í íslenskri endurvinnslu. Þannig sparast umtalsverður gjaldeyrir.

Undirrituðu samning um viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli
Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna undirrituðu í dag samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna.

Ráðherra skoði hvort framlengja eigi ívilnanir vegna tengiltvinnbíla
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka til skoðunar hvort tilefni sé til að framlengja ívilnanir vegna innflutnings tengitvinnbifreiða.

Lauf metið á þrjá milljarða eftir hlutafjáraukningu
Íslenska hjólafyrirtækið Lauf Forks hf. hefur lokið 270 milljón króna hlutafjáraukningu en uppistaða aukningarinnar kemur frá nýjum hluthöfum. Heildarvirði Lauf er metið á um þrjá milljarða króna eftir viðskiptin.

Huggun harmi gegn að vera í góðum hópi kollega sem hafði rangt fyrir sér
Efnahagsþróun á árinu 2021 hefur að mörgu leyti verið jákvæðari en vænst var í ársbyrjun, að sögn aðalhagfræðings Íslandsbanka. Til að mynda hafi hagvöxtur glæðst meira, atvinnuleysi hjaðnað hraðar og krónan styrkst nokkuð umfram það sem Greining Íslandsbanka gerði ráð fyrir.

Íslandsbanki styttir opnunartíma
Frá og með áramótum opna flest útibú Íslandsbanka ekki fyrr en klukkan 10:00 og loka klukkan 16:00. Á Egilsstöðum og Ísafirði verður opið milli 11:00 og 15:00 og á Reyðarfirði í aðeins þrjá klukkutíma milli 12:00 og 15:00.

„Við erum bara nokkuð kát með okkur á þessum tímum“
Joe & The Juice vinnur nú að opnun nýs veitingastaðar á bensínstöð Orkunnar við Birkimel í Reykjavík. Verður þetta tíunda útibú Joe and the Juice á Íslandi en keðjan hefur opnað þrjá aðra staði síðasta árið; við Miklubraut, Reykjavíkurveg og í nýja miðbænum á Selfossi.

Sports Direct opnar 1.750 fermetra verslun á Akureyri
Til stendur að opna 1.750 fermetra íþróttaverslun Sports Direct á Norðurtorgi á Akureyri næsta vor. Gengið var frá samningum við bresku íþróttavörukeðjuna á Þorláksmessu.

Samningar loks náðst um langþráða viðbyggingu við flugstöðina
Isavia hefur samið við byggingafélagið Hyrnu á Akureyri um viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við fréttastofu en samningurinn verður undirritaður í flugstöðinni á morgun.

Bíllinn líka í jólabaðið: „Þetta er alltaf svona fyrir jólin“
Langar biðraðir hafa verið í bílaþvottastöðvar Löðurs síðustu daga en fyrirtækið rekur alls fimmtán bílaþvottastöðvar hér á landi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir síðustu daga fyrir jól vera allra stærstu daga ársins í bílaþvotti, að frátöldum nýársdag.

Simmi Vill harmar innilega vanhugsað tíst sitt
Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður með meiru hefur sent út innblásna tilkynningu þar sem hann harmar mistök sín og biðst afsökunar á því sem hann kallar virkilega lélegt og rangt tíst á Twitter.

Milljarða tjón vegna saknæmrar háttsemi dómara
Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni.

Hefði lokað í dag frekar en að velja milli kúnna
Jakob Jakobsson á Jómfrúnni er einn þeirra veitingamanna sem fékk undanþágu frá hertum takmörkunum í dag. Hann segir málið ekki snúast um tekjutap heldur að hann hafi ekki viljað vísa kúnnum á dyr á Þorláksmessu.

Háskólinn og FS kaupa Bændahöllina fyrir 4,9 milljarða
Ríkissjóður og Félagsstofnun stúdenta munu greiða tæpa fimm milljarða króna fyrir kaupin á Hótel Sögu, Bændahöllinni, sem voru undirrituð í gær. Gert er ráð fyrir að ráðast þurfi í talsverðar viðgerðir og breytingar á byggingunni, sem verður nýtt bæði sem kennsluhúsnæði og í íbúðir fyrir stúdenta við Háskóla Íslands.

Skeljungur stefnir að sölu fasteigna fyrir 8,8 milljarða
Fasteignafélagið Kaldalón mun kaupa þrettán fasteignir af Skeljungi fyrir tæpa sex milljarða króna. Þá hefur Skeljungur samþykkt viljayfirlýsingar um sölu á fimm fasteignum til annarra aðila og á sömuleiðis í viðræðum um sölu á einni fasteign til viðbótar. Gangi öll viðskiptin eftir nemur áætlað söluvirði umræddra fasteigna 8.788 milljónum króna.

Stjórnvöld ekki búin að bjarga málunum: „Stemningin er orðin frekar súr“
Samtök fyrirtækja í veitingarekstri fagna því að hlustað hafi verið á rekstraraðila en hafa áhyggjur af takmörkunum á opnunartíma veitingastaða. Klukkutíminn skipti verulegu máli í rekstrinum enda nær ómögulegt að ná inn tveimur hollum af gestum þegar veitingastöðum ber að loka klukkan níu.

Veitingamenn fá einnig undanþágu frá hertum takmörkunum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá hertum samkomutakmörkunum á morgun.

Óska eftir undanþágu fyrir ríflega 130 fyrirtæki á veitingamarkaði
Samtök fyrirtækja í veitingarekstri hafa nú fyrir hönd ríflega 130 fyrirtækja óskað eftir undanþágu á sóttvarnarráðstöfunum til að lágmarka tjón sem hlýst af aðgerðunum. Stjórnarmaður samtakanna segir fordæmi fyrir slíkum undanþágum en heilbrigðisráðuneytið er nú með beiðnina til skoðunar

Vivaldi fyrsti vafrinn fyrir Android Automotive OS
Vafrinn Vivaldi er nú í boði í Polestar 2 og er fyrst vafrinn sem fáanlegur er í Android-stýrikerfi fyrir bíla, Android Automotive OS. Um samstarf við sænska rafmagnsbílaframleiðandann Polestar er að ræða.

Björn tekur við af Jóni Davíð hjá Húrra Reykjavík
Björn Þorláksson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Húrra eftir að Jón Davíð Davíðsson lét af störfum í byrjun desember eftir sjö ára starf. Björn hefur starfað hjá Húrra frá árinu 2015.

Forsendur undanþágu fyrir tónleika gildi einnig um veitingahúsin
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það skjóta skökku við að heilbrigðisyfirvöld hafi veitt tónleikahöldurum undanþágu frá sóttvarnaraðgerðum þar sem samtökin hafi ítrekað óskað eftir undanþágum án árangurs. Forsendur þess að undanþágur voru veittar fyrir tónleikahaldi geti einnig átt við um veitingarekstur.