Kirilenko vill fara frá Utah 19. september 2007 18:11 Andrei Kirilenko gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Utah Jazz NordicPhotos/GettyImages
Rússneski landsliðsmaðurinn Andrei Kirilenko hefur farið þes á leit við forráðamenn Utah Jazz að verða skipt frá félaginu. Kirilenko var kjörinn verðmætasti leikmaðurinn á nýafstöðnu Evrópumóti landsliða, en átti vægast sagt ömurlegt tímabil með NBA liðinu síðasta vetur. Kirilenko greindi frá því í viðtali á rússneskri vefsíðu í gær að hann hefði beðið forráðamenn Utah Jazz að skipta sér í burtu frá félaginu fyrir tveimur vikum, en þeir hefðu ekkert látið heyra frá sér og það sé dæmigert fyrir framkomu þeirra í sinn garð. Nokkuð hefur verið skrifað um Kirilenko og hugsanlega för hans frá Utah í sumar, en nú þegar ljóst er að hann hefur beðið um að fara frá félaginu er ljóst að staða forráðamanna liðsins verður erfið þegar kemur að því að losna við hann. Hann er með gríðarlega háan samning og markaðsvirði þessa fjölhæfa leikmanns hefur aldrei verið lægra eftir að hann átti eitt sitt slakasta tímabil á ferlinum með Utah í fyrra. Þar náði dramatíkin hámarki þegar Kirilenko brast í grát eftir leik liðsins í úrslitakeppninni. Hvað sem öðru líður er ljóst að það er fullreynt fyrir Rússann að spila fyrir Jerry Sloan, þar sem leikmaður af hans kalíberi passar einfaldlega ekki inn í hugmyndafræði þjálfarans um fast skipulag og agaðan leik. Smelltu hér til að sjá upplýsingar og tölfræði um Andrei Kirilenko.
NBA Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira