Drogba missti allt álit á Benitez Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. apríl 2008 11:47 Didier Drogba, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Didier Drogba segir að Rafael Benitez sé ekki frábær knattspyrnustjóri og að álit sitt á honum hafi hrapað. Benitez sagði um helgina að hann hefði tekið saman myndband af Drogba úr öllum viðureignum Chelsea og Liverpool síðan hann tók við síðarnefnda liðinu. Benitez telur að Drogba sé of iðinn við að næla sér í aukaspyrnur með því að láta sig falla of auðveldlega í grasið. Chelsea tekur á móti Liverpool í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Drogba verður væntanlega í eldlínunni með Chelsea í kvöld og ætlar að hefna sín inn á vellinum. „Ég bar mikla virðingu fyrir Benitez, þar til nú. Mér fannst hann hafa mikla hæfileika til starfsins og hefur hann valdið mér miklum vonbrigðum. Frábær knattspyrnustjóri myndi aldrei leggjast svo lágt. Hann ætti frekar að einbeita sér að sínu liði. Ef hann vill ekki að ég leggist í grasið ætti hann að segja þeim (Jamie) Carragher og (Martin) Skrtel að hætta að sparka í mig." Avram Grant, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur komið Drogba til varnar. „Ég tel ekki að Drogba sé með mikinn leikaraskap á vellinum. Ég held að Rafa sé að reyna að hafa áhrif á dómara leiksins."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira