Helena valin í lið ársins í Mountain West deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2009 16:58 Veggspjald Helenu á heimasíðu TCU-skólans: Mynd/Heimasíða TCU
Helena Sverrisdóttir var í gær valin í lið ársins í Mountain West deildinni í bandaríska háskólaboltanum. Auk Helenu eru tveir leikmenn frá Utah og San Diego í liði ársins. Helena varð aðeins þriðji leikmaður TCU-skólans frá upphafi sem kemst í fimm manna úrvalslið ársins frá því að liðið fór að keppa í Mountain West deildinni. Í fyrra var Helena valin nýliði ársins í deildinni sem og að vera í hópi þeirra leikmanna sem komust næst því að vera í fyrsta eða öðru úrvalsliði deildarinnar. Í vetur var Helena meðal sjö hæstu í fjórum tölfræðiþáttum. Hún var 2. í stoðsendingum (4,7 í leik), 3. í stigaskorun (16,0) og sjöunda í bæði fráköstum (7,2) og stolnum boltum (1,69). TCU átti mjög góðan endasprett í deildinni en liðið vann 7 af 8 síðustu leikjunum sínum og þar á meðal bæði efstu liðin San Diego State og Utah. Þetta var ekki eina viðurkenningin sem Helena fékk í vikunni því hún var valin besti leikmaður vikunnar í þriðja sinn á tímabilinu. Helena var einnig kosin leikmaður vikunnar 8. desember og 9. febrúar. Helena hefur nú fimm sinnum hlotið þessa viðurkenningu í Mountain West deildinni. Helena og félagar leika sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni þegar liðið mætir UNLV-skólanum. Sigurvegari leiksins mætir San Diego State í undanúrslitum á föstudaginn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira