Grindvíkingar geta komist á toppinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2009 17:00 Páll Axel Vilbergsson á ferðinni í fyrri leik Grindavíkur og Breiðabliks í Smáranum. Mynd/Anton
Grindvíkingar geta komist á topp Iceland Express deildar karla í körfubolta í kvöld vinni þeir Breiðablik á heimavelli sínum. Grindavík myndi þá ná KR að stigum en væri ofar þar sem liðið er með betri árangur en KR í innbyrðisviðureignum liðanna. KR-ingar spila síðan ekki sinn leik í umferðinni fyrr en á morgun þegar þeir heimsækja Njarðvík í Ljónagryfjuna. Grindavík er búið að vinna alla níu heimaleiki sína í vetur þar af fimm þá síðustu með meira en tíu stiga mun. Grindavík er einnig búið að vinna alla sex deildarleiki sína síðan að Nick Bradford kom til liðsins í janúar. Grindavíkurliðið gat talist heppið að sleppa með sigur frá Keflavík í síðasta leik þar sem Nick Bradford átti slakan dag og tapaði meðal annars tólf boltum. Hann mun væntanlega ætla að bæta fyrir þann leik strax í kvöld. Breiðablik hefur aldrei unnið úrvalsdeildarleik í Grindavík en Blikar heimsækja Röstina í áttunda sinn í kvöld. Blikar léku þar síðast 4. mars 2004 og töpuðu þá með 23 stiga mun. Blikarnir eru í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina en þeir eru í áttunda sætinu eins og er þrátt fyrir að hafa aðeins náð að vinna einn af síðustu fimm leikjum sínum. Aðrir leikir kvöldsins eru á milli FSu og Snæfells í Iðu á Selfossi annarsvegar og hinsvegar á milli Skallagríms og ÍR í Borgarnesinu. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira