Hljóðið var mjög gott í þeim leikmönnum sem við töluðum við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2009 10:27 Hannes Jónsson og landsliðskonan Margrét Kara Sturludóttir. Mynd/E.Stefán
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ var ánægður með að ver kominn með nýjan A-landsliðsþjálfara kvenna í körfubolta en KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennings Henningssonar í starfið. „Það var mjög gott hvað þetta gekk vel. Við erum mjög glöð með að þetta hafi endað svona," segir Hannes en Henning var ekki sá eini sem var upp á borðinu. „Við vorum með tvo til þrjá kosti upp á borðinu og þetta var það sem við kláruðum í fyrstu atrennu," sagði Hannes. Henning var ráðinn fram á haust en Hannes segir að það sé alveg eins líkur á því að hann verði síðan áfram með liðið. „Við vildum ráða mann sem fyrst þannig að við ákváðum að gera ekki langtímasamning. Við vildum frekar gera bara samning fram á haustið en ef allir aðilar eru sáttir þá er fyrsti kostur að ganga til viðræðna við Henning," sagði Hannes. Hannes fór strax í það að tala við A-landsliðsleikmenn og var hann sáttur með hvernig viðbrögð hann fékk. „Það er búið að hafa samband við langflesta leikmenn en það var gert í gærdag og í gærkvöldi. Hljóðið var mjög gott í þeim leikmönnum sem við töluðum við í gær. Ég á eftir að heyra í þeim leikmönnum sem eru erlendis og mun gera það í dag," segir Hannes. Hannes segir að nú sé þetta erfiða mál að baki og hann og kvennalandsliðsnefndin geti nú farið að einbeita sér að því að ná árangri inn á vellinum. „Ég er mjög feginn að þetta sé orðið klárt og nú er hægt að fara að snúa sér að næstu verkefnum hjá okkur," segir Hannes en fyrsta verkefni Hennings verða Smáþjóðaleikarnir á Kýpur í byrjun júní.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira