Keflavíkurkonur fyrstar inn i átta liða úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2009 14:30 Birna Valgarðsdóttir skoraði 19 stig í dag. Mynd/Stefán
Keflavíkurkonur urðu fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Subwaybikarsins í körfubolta eftir 70-61sigur á Grindavík í Toyota-höllinni í Keflavík í dag. Leikurinn hófst á óvenjulegum tíma eða klukkan 13.00. Keflavíkurkonur voru með frumkvæðið frá byrjun, komst í 12-5 og var 18-10 yfir eftir fyrsta leikhluta. Grindavík minnkaði muninn í þrjú stig, 36-33, en Bryndís Guðmundsdóttir skoraði þriggja stiga körfu í lok hálfleiksins og Keflavík var sex stigum yfir í hálfeik, 39-33. Birna Valgarðsdóttir var í miklu stuði í þriðja leikhlutanum þar sem hún skoraði 10 stig og hjálpaði Keflavíkurliðinu að ná upp góðu forskoti. Keflavík vann leikhlutann 19-11 og var því 14 stigum yfir, 58-44, fyrir lokaleikhlutann. Grindavík náði aðeins að minnka forskotið í fjórða leikhluta en sigur Keflavíkur var aldrei í hættu. Grindavík var fyrir þennan leik búið að vinna báða leiki liðanna í vetur, fyrst 49-39 sigur í Poweradebikarnum í Keflavík og svo 67-63 sigur í Grindavík í Iceland Express deildinni um síðustu helgi. Birna Valgarðsdóttir átti flottan leik og bætti fyrir leikinn um síðustu helgi þar sem hún skoraði aðeins 5 stig og klikkaði á 11 af 13 skotum sínum. Birna var með 19 stig, 10 fráköst og 3 stoðsendingar en Kristi Smith var stigahæst með 20 stig. Bryndís Guðmundsdóttir var með 15 stig en þar af voru 13 þeirra í fyrri hálfleik. Michelle DeVault skoraði 16 stig fyrir Grindavík, Jovana Lilja Stefánsdóttir skoraði 12 stig og Íris Sverrisdóttir var með 10 stig.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Guðmundur Oddsson látinn Golf Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ Íslenski boltinn HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira