Veðurstofan sagði að rólegra væri undir Eyjafjallajökli Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2010 14:23 Fimmvörðuháls. Mynd/ Anton.
Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis fékk þær upplýsingar frá Veðurstofunni laust fyrir klukkan fimm á gosdaginn, þann 20. mars, að heldur rólegra væri undir Eyjafjallajökli en hefði þá verið undanfarna daga. Ekkert benti til þess að gos væri framundan, en unnið væri eftir áætlunum um óvissustig á svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Hins vegar var greint var frá því í hádegisfréttum Bylgjunnar og á Vísi í dag að Veðurstofan hafi tilkynnt Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki hafi verið talin ástæða til sérstakra viðbragða enda hafi þá þegar verið búið að lýsa yfir óvissustigi. Eldgosið hófst laust fyrir miðnætti laugardagskvöldið 20. mars og það vakti athygli að hvorki Veðurstofan né Almannavarnir virtust hafa hugmynd um hvað væri að gerast fyrr en íbúi í Múlakoti í Fljótshlíð tilkynnti um eldbjarma yfir Eyjafjallajökli. Þá er talið að gosið hafi verið búið að standa yfir í um hálftíma. Veðurstofan virðist þó hafa haft enhverjar meiri vísbendingar um aðdraganda gossins því að í greinagerð, sem hefur verið birt á heimasíðu Veðurstofunnar, er upplýst að þá um morguninn, um hálfum sólarhring fyrir upphafi gossins, hafi Veðurstofan tilkynnt Almannavörnum um verulega grynnri skjáfltavirkni. Víðir Reynisson, hjá Ríkislögreglustjóra, sagði í hádegisfréttum að ekki hafi verið talin ástæða til að bregðast við.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Tengdar fréttir Veðurstofan varaði Almannavarnir við hálfum degi fyrir upphaf goss Veðurstofan tilkynnti Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki var talin ástæða til sérstakra viðbragða enda var þá þegar búið að lýsa yfir óvissustigi. 30. mars 2010 12:03 Rólegra undir Eyjafjallajökli í dag Rólegra hefur verið undir Eyjafjallajökli í dag en undanfarna daga. Skjálftarnir mældust allt upp í 1400 á sólarhring fyrr í vikunni á mælum hjá 20. mars 2010 17:13 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Veðurstofan varaði Almannavarnir við hálfum degi fyrir upphaf goss Veðurstofan tilkynnti Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki var talin ástæða til sérstakra viðbragða enda var þá þegar búið að lýsa yfir óvissustigi. 30. mars 2010 12:03
Rólegra undir Eyjafjallajökli í dag Rólegra hefur verið undir Eyjafjallajökli í dag en undanfarna daga. Skjálftarnir mældust allt upp í 1400 á sólarhring fyrr í vikunni á mælum hjá 20. mars 2010 17:13