Um 200 lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum 22. maí 2011 13:23
Almannavarnir leggja mikla áherslu á að fólk sé ekki á ferli á svæðinu þar sem öskufall er. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. Um tvö 200 lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru nú að störfum á gossvæðinu. Mikill viðbúnaður er hjá almannavörnum vegna gossins og færist hann frekar í aukana en hitt. Aðgerðum er stýrt frá Samhæfingarstöðinni í Reykjavík en einnig frá Hvolsvelli og Höfn í Hornafirði. „Staðan er þannig að þetta er mjög öflugt gos sem hefur lítið eða ekkert dregið úr síðan að það byrjaði í gærkvöldi og það er mjög mikið öskufall í byggð og á svæðinu vestur að Klaustri og að Freysnesi er mjög krítískt ástand að því leytinu til að það er mjög lítið skyggni og hættulegt að vera á ferðinni. Við höldum að flestir haldi kyrru fyrir og það hafa verið okkar leiðbeiningar að fólk haldi kyrru fyrir en þeir sem að þurfa að hreyfa sig vegna starfa verji sjálfa sig með grímu og gleraugunum," segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna Ríkislögreglustjóra. Skyggni á svæðinu er svo slæmt að björgunarsveitir sem hafa verið að störfum hafa þurft frá að hverfa. „Nú erum við komin með bryndreka sem Björgunarsveitin Kári í Öræfum á, sem að er að ná á þá staði sem við höfum ekki náð á áður, hann er sérstaklega útbúinn til að geta keyrt í svona aðstæðum, við erum einnig að senda annan svipaðan bíl á staðinn til þess að hjálpa til." Víðir segir að um 200 manns séu komnir til starfa bæði í Reykjavík og á gossvæðinu. „Auk þess sem að mjög mikið af vinnunni lendir á íbúunum sjálfum og sérstaklega í sveitinni þar sem menn eru að berjast við nýborin lömb í þessum aðstæðum. Þetta er eins og svartasta nótt og eðlilega er fólk órótt og líður ekki vel." „Þegar maður svona er að sjá eitthvað sem maður hefur ekki séð áður þá er maður eðlilega áhyggjufullur en við eigum mjög góða vísindamenn sem eru að spá fyrir um þróun mála en það er erfitt að spá hvað gerist, bara fylgjast með," segir Víðir.
Helstu fréttir Tengdar fréttir Caribou tónleikum aflýst vegna gossins Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri. 22. maí 2011 12:15 Öllu flugi innanlands aflýst Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu. 22. maí 2011 10:14 Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi. 22. maí 2011 10:39 Gosið sást greinilega frá Reykjavík Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. 22. maí 2011 06:38 Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu "Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi. 22. maí 2011 09:58 Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. 22. maí 2011 07:48 Kraftur gossins svipaður "Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi. 22. maí 2011 09:19 Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður. 22. maí 2011 12:23 Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst. 22. maí 2011 13:02 Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús. 22. maí 2011 11:12 Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12 Mest lesið Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Erlent Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Erlent Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Innlent „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Innlent Óbreytt ástand kemur ekki til greina Innlent Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Innlent Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Innlent Fimm keyptu gám sem er ekki til Innlent Neyðarástand hjá Villiköttum sem senda frá sér ákall Innlent Tvær konur sluppu úr brennandi bíl Innlent Fleiri fréttir Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Neyðarástand hjá Villiköttum sem senda frá sér ákall Vita upp á hár hvernig lýðræði virkar eftir krakkakosningar Óbreytt ástand kemur ekki til greina „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Smáskjálftahrina á Reykjanesskaga Viðbúnaður í Djúpinu, böndum komið á áfengissölu og stútfull herbergi af köttum 32 sóttu um stöðu mannauðsstjóra hjá Matvælastofnun Fimm keyptu gám sem er ekki til Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér Framtíðarnefnd lifir og formaðurinn fær tvær milljónir á ári Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Kjarasamningur lyfjafræðinga „illa felldur“ og átján ára bið lengist Tvær konur sluppu úr brennandi bíl „Þetta fór eins vel og kostur var“ Ekki eigi að stunda atvinnu sem valdi dýrum þjáningu Meirihlutinn á Ísafirði fallinn Líkur á eldgosi aukast með haustinu Mikill viðbúnaður vegna sjóslyss við Ísafjarðardjúp „Af einhverjum ástæðum er það ávallt Degi B. Eggertssyni að kenna“ „Í fullkomnum heimi væri best að allir töluðu góða íslensku“ Alma vill efla íslenskukunnáttu erlendra hjúkrunarfræðinga Agnes Johansen er látin Foreldrar hafi ekki haft önnur úrræði en að tilkynna sig til barnaverndar Vilja fá að hafa áhrif á nærumhverfið og segja „ekki fleiri kassa“ Manni bjargað eftir að fiskibátur hans strandaði við grjótgarð Reyna sáttaleið eftir að aðalfundi MÍR var aftur hleypt upp Brúin komin upp við Dugguvog Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Sjá meira
Caribou tónleikum aflýst vegna gossins Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri. 22. maí 2011 12:15
Öllu flugi innanlands aflýst Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu. 22. maí 2011 10:14
Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi. 22. maí 2011 10:39
Gosið sást greinilega frá Reykjavík Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. 22. maí 2011 06:38
Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu "Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi. 22. maí 2011 09:58
Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. 22. maí 2011 07:48
Kraftur gossins svipaður "Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi. 22. maí 2011 09:19
Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður. 22. maí 2011 12:23
Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst. 22. maí 2011 13:02
Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús. 22. maí 2011 11:12
Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12