Hlynur lofar því að troða í upphituninni 21. ágúst 2012 15:00 „
Já og já," sagði Hlynur Bæringsson landsliðsmaður í körfuknattleik þegar hann var inntur eftir því hvort leikmenn liðsins væri klárir í slaginn gegn Ísrael og hvort Ísland gæti unnið þá í Laugardalshöllinni í kvöld. Liðin eigast við í undankeppni Evrópumótsins en Ísland er með einn sigur eftir tvær umferðir en Ísrael hefur tapað báðum viðureignum sínum í riðlinum. „Við getum unnið þá en þetta er mjög stórt verkefni fyrir okkur. Við höfum ekki mikinn tíma á milli leikja til þess að liggja yfir myndböndum af leikjum Ísraels en þeir eru með sterkt lið. Þar má nefna Omri Casspi hefur leikið með Sacramento og Cleveland í NBA. Það eru margir þeirra að spila með Maccabi Tel Aviv í Ísrael sem er eitt af sterkustu körfuboltaliðum Evrópu. Þeir eru með mikla körfuboltahefð og mjög gott lið. Við erum ekki hátt skrifaðir í Evrópu enda höfum við ekki verið með stórkeppni á undanförnum árum," sagði Hlynur. Hann ætlar ekki að lofa því að hann muni troða boltanum í körfuna líkt og hann gerði gegn Slóvakíu s.l. laugardag. „Ég verð alltaf að geta staðið við loforðin og ég get ekki lofað því, en ég mun reyna ef ég á séns. Allavega í upphituninni," sagði Hlynur Bæringsson. Leikurinn hefst kl. 19.15 og fer hann fram í Laugardalshöll. Staðan í riðlinum eftir tvær umferðir er þessi, gefin eru 2 stig fyrir sigur og 1 fyrir tap: 1. Eistland 4 stig 2. Svartfjallaland 4 stig 3. Serbía 3 stig 4. Ísland 3 stig 5. Ísrael 2 stig 6. Slóvakía 2 stig
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira