Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, sendi í dag frá sér ítarlega skýrslu þar sem fjallað eru um stöðu mála í Evrópu, í samhengi við stöðu mála í heiminum, og þá ekki síst G20 hópnum.
Fjögur Evrópuríki
Fjögur ríki í Evrópu eru á meðal G20 ríkjanna, Þýskaland, Frakkland, Bretland og Ítalía. Út frá heildaríbúa fjölda jarðar, ríflega sjö milljörðum, þá eru áhrif Evrópuríkja innan G20 ríkja nokkuð mikil, en í Evrópu búa um 7 prósent af íbúum jarðar, um 500 milljónir. Það er meira en þrisvar sinnum minna en samanlagður íbúafjöldi Indlands (1,25 milljarðar íbúa) og Indónesíu (250,8 milljónir), svo dæmi sé tekið.
Evrópa mikilvæg
Ástæða áhrifanna innan G20 tengist öðru fremur efnahagslegu mikilvægu Evrópu fyrir heiminn allan. Á árinu 2010 nam heildar framleiðsla efnahagskerfis heimsins (World GDP) 46 þúsund og sjö hundruð milljörðum evra, eða sem nemur 7,5 milljörðum milljarða króna. Árleg landsframleiðsla Íslands er 1.620 milljarðar, eða sem nemur um 0,02 prósentum af árlegri heildarframleiðslu heimsins. Evrópa lagði til um 26 prósent af heildarframleiðslunni, eða um 12 þúsund og þrjú hundruð milljörðum evra. Til samanburðar er Bandaríkin með 23 prósent, Kína með um 10 prósent af heildinni og Japan með 9 prósent.
Auk fyrrnefndu Evrópuríkjanna fjögurra, og Kína, Indlands og Indónesíu, mynda Bandaríkin, Brasilía, Kanada, Tyrkland, Rússland, Sádí-Arabía, Suður-Afríka, Suður-Kórea, Japan, Mexíkó, Argentína og Ástralía G20 hópinn. Opinberar skuldir eru mestar í Japan af þessum ríkjum, eða um 240 prósent af árlegri landsframleiðslu. Minnstar eru þær í Sádí-Arabíu, eða um átta prósent.
Indland að verða risi
Samkvæmt mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna og Eurostat fyrir heiminn er því spá að Indland verði langsamlega fjölmennasta ríki heims árið 2060 með 1,7 milljarða íbúa. Það mun jafngilda tæplega 18 prósentum af heildaríbúafjölda heimsins. Íbúum Kína verður hins vegar búið að fækka um ríflega hundrað milljónir frá því nú, samkvæmt fyrrnefndri spá og verða þeir ríflega 1,2 milljarðar. Þar ræður gjörólík aldurssamsetning þjóðanna miklu, og einnig opinber stefna um takmörk á fjölda barna samkvæmt opinberri stefnu í Kína. Samkvæmt spám mun íbúum heimsins fjölga um ríflega 2,6 milljarða íbúa á næstu 38 árum, eða sem nemur 68,4 milljónum á hverju ári.
Fjölgun íbúa í Evrópu verður frekar hæg, miðað við mörg önnur svæði heimsins, fram til 2060, gangi spár eftir. Áætlað er að þá verði íbúar Evrópu 520 milljónir, eða sem nemur 20 milljónum meira en nú. Ítarlegar upplýsingar um mannfjöldaspá fyrir G20 ríkind og Evrópu í heild, má sjá hér að neðan, en þær byggja á spálíkönum Eurostat og Sameinuðu þjóðanna.
Íbúafjöldi í milljónum | % af heildaríbúafjölda | Íbúafjöldi í milljónum (spá) | % af heildaríbúafjölda (spá) | Íbúafjöldi í ferkílómetra | |
2010 | 2060 | 2010 | |||
Evrópa | 501.8 | 7.3 | 516.9 | 5.4 | 116.6 |
Argentína | 40.4 | 0.6 | 51.3 | 0.5 | 14.5 |
Ástralía | 22.3 | 0.3 | 32.7 | 0.3 | 2.9 |
Brasilía | 194.9 | 2.8 | 216.9 | 2.3 | 22.9 |
Kanada | 34.0 | 0.5 | 45.1 | 0.5 | 3.4 |
Kína | 1 341.3 | 19.5 | 1 211.5 | 12.6 | 139.8 |
Indland | 1 224.6 | 17.8 | 1 718.0 | 17.9 | 372.5 |
Indónesía | 239.9 | 3.5 | 290.3 | 3.0 | 125.9 |
Japan | 126.5 | 1.8 | 103.2 | 1.1 | 334.9 |
Mexíkó | 113.4 | 1.6 | 142.8 | 1.5 | 57.9 |
Suður-Kórea | 48.2 | 0.7 | 44.3 | 0.5 | 484.1 |
Rússland | 143.0 | 2.1 | 120.8 | 1.3 | 8.4 |
Sádí-Arabía | 27.4 | 0.4 | 46.3 | 0.5 | 12.8 |
Suður-Afríka | 50.1 | 0.7 | 57.1 | 0.6 | 41.1 |
Tyrkland | 72.8 | 1.1 | 90.8 | 0.9 | 92.8 |
Bandaríkin | 310.4 | 4.5 | 421.0 | 4.4 | 32.2 |
Heimurinn allur | 6 895.9 | 100.0 | 9 615.2 | 100.0 | 50.6 |