EM-draumurinn nánast dáinn eftir fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2013 17:57 Mynd/Daníel
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði stórt fyrir Búlgaríu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2015. Búlgarir unnu 29 stiga heimasigur, 59-88, og stigu með honum risaskref í átt að sigri í riðlinum. Lykilmenn íslenska liðsins lentu í miklu villuvandræðum og íslenska liðið mátti sín mikils á móti stóru mönnum búlgarska liðsins. Íslenska liðið þarf væntanlega að vinna upp þennan 29 stiga mun í heimaleiknum í Laugardalshöllinni til þess að komast í undanúrslitin og því má segja að EM-draumur íslenska liðsins hafi nánast dáið í fyrsta leik. Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur hjá íslenska liðinu með 19 stig. Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig og Hlynur Bæringsson var með 11 stig. Pavel Ermolinskij var með 4 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar. Búlgarir nýttu 62 prósent skota sinna inn í teig og unnu fráköstin 56-22. Íslenska liðið réð hreinlega ekkert við Búlgari undir körfunum og þessar tölur endurspegla þá staðreynd. Haukur Helgi Pálsson, stigahæsti leikmaður íslenska liðsins í báðum sigurleikjunum við Dani á dögunum, spilaði aðeins í 5 mínútur í fyrstu þremur leikhlutunum í kvöld vegna villuvandræða og náði ekki að skora stigin sín fimm fyrr en í lokaleikhlutanum. Íslenska liðið fer næst yfir til Rúmeníu þar sem liðið spilar á miðvikudaginn en síðustu tveir leikir liðsins fara síðan fram í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið þarf að vinna alla þessa þrjá leiki og það dugar ekki nema ef liðið nær að bursta Búlgari í Höllinni. Búlgarir voru 23-13 yfir eftir fyrsta leikhluta og með 16 stiga forskot í hálfleik, 44-28. Leikur íslenska liðsins hrundi síðan endanlega í þriðja leikhlutanum sem tapaðist 12-21 og Búlgarir voru 25 stigum yfir eftir hann, 65-40. Búlgarir komust mest 31 stigi yfir í fjórða leikhlutanum og munurinn var 29 stig í lokin. Íslenska liðið reyndi allt til að minnka muninn meira en tókst ekki.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira