Sjö stig í viðbót og þá jafnar Jón Arnór stigametið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2014 07:00 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Andri Marinó
Jón Arnór Stefánsson getur ekki aðeins hjálpað íslenska körfuboltalandsliðinu inn á EM í fyrsta sinn í Laugardalshöllinni í kvöld því hann getur einnig bætt stigamet Guðmundar Bragasonar í leiknum á móti Bosníu. Jón Arnór verður stigahæsti leikmaður Íslands frá upphafi í leikjum í Evrópukeppni takist honum að skora sjö stig eða fleiri í leiknum. Guðmundur Bragason skoraði 576 stig í 45 Evrópuleikjum á sínum tíma en Jón Arnór er kominn með 569 stig eftir 23 stiga leikinn sinn á móti Bretum í síðustu viku. Guðmundur skoraði 13,1 stig að meðaltali í sínum leikjum en Jón Arnór er með 14,6 stig að meðaltali í 39 Evrópuleikjum sínum. Jón Arnór náði einnig sögulegum áfanga þegar hann sneri til baka á móti Bretum í London en hann varð þá fyrstur íslenskra körfuboltamanna til að skora 20 stig eða meira í tíu Evrópuleikjum.Flest stig fyrir Ísland í Evrópukeppni: Guðmundur Bragason 576 (13,1 stig í leik) Jón Arnór Stefánsson 569 (14,6) Herbert Arnarson 500 (10,6) Teitur Örlygsson 461 (12,8) Logi Gunnarsson 437 (9,7) Valur Ingimundarson 360 (11,2) Helgi Jónas Guðfinnsson 345 (11,5) Jakob Örn Sigurðarson 320 (11,0)Flestir tuttugu stiga leikir í Evrópukeppni: 10 - Jón Arnór Stefánsson 6 - Pétur Guðmundsson 6 - Guðmundur Bragason 6 - Teitur Örlygsson 5 - Pálmar Sigurðsson 5 - Valur Ingimundarson 4 - Logi Gunnarsson 4 - Helgi Jónas Guðfinnsson
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira