Skoðun

Lýðræðinu gefið langt nef

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar
Framganga utanríkisráðherra og ríkisstjórnar Íslands í ESB-málinu og síðasta útspilið  með "bréfið" toppar alla þá lýðræðisást sem núverandi valdhafar sýndu gagnvart íslenskum almenningi þegar þeir lofuðu fjálglega þjóðaratkvæði um framhald ESB-viðræðna fyrir síðustu kosningar. Það loforð var bara loft, bara orðin tóm, það stóð aldrei til að efna það. Um er sennilega að ræða mestu pólitísku svik í sögu nútímastjórnmála á Íslandi.

Við Evrópusinnar (ég skammast mín ekkk fyrir að flokka mig sem slíkan, frekar hitt), höfum verið vændir um landráð í sambandi við okkar afstöðu í Evrópumálum. Að vilja færa fullveldið í hendur ESB, sem náttúrlega ekki rétt, því allar þjóðir ESB eru enn frjálsar og fullvalda. Einnig væna andstæðingar ESB um baktjaldamakk í "reykfylltum" herbergjum í Brussel og þar fram eftir götunum. Aðferðafræði okkar Evrópusinna hefur hinsvegar ávallt verið þessi og er enn; að klára aðildarviðræður, fá samning á borðið, kjósa um hann og una niðurstöðunni. Það geta varla talist landráð, að leyfa íslensku þjóðinni að ráða?

Hvernig eru þá vinnubrögðin í sambandi við þetta blessaða "Framsóknarbréf" sem komið var  til Evrópu/ESB af Gunnari Braga utanríkisráðherra, Einari K.Guðfinnssyni, forseta Alþingis og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta lýðveldisins? Var unnið mjög lýðræðislega í því máli? Það var ekki borið undir Alþingi og rætt þar, ekki kynnt utanríkismálanefnd og  rætt þar. Þá var það samið og sent í nefndaviku Aþingis, þegar regluleg fundastarfsemi þess liggur niðri. Ferlið og aðferðafræðin eru með hreinum ólíkindum, manni gjörsamlega misbýður það hvernig haldið hefur verið á málinu.

Valdið kemur frá fólkinu, segir hin klassíska hugmynd um lýðræði. Hér hafa hinsvegar grundvallareglur lýðræðisins verið þverbrotnar og sjálf löggjafarsamkoma Íslands sniðgengiin með mjög grófum hætti. Svo grófum að ég vil hér með lýsa yfir algeru vantrausti á núverandi ríkisstjórn og sérstaklega utanríkisráðherra, sem að mínu mati hefur afhjúpað mjög gróflega vanhæfni sína til þess að sinna því starfi.

Enda er reynsla hans af utanríkismálum nánast engin, þegar starfsferill hans á vefsíðu Alþingis er skoðaður. Áður en Gunnar Bragi var settur í starf utanríkisráðherra hafði hann einungis setið í tvö ár sem fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálaefnd (2011-2013). Það er sú sama nefnd sem hann og ríkisstjórnin sniðganga nú gersamlega, þvert á lög þar að lútandi. Maður er orðlaus.

Já, orðlaus yfir þeirri ömurlegu þróun sem á sér stað; þar sem loforð eru einskis nýtur pappír, lýðræðinu og almenningi er gefið langt nef og baktjaldamakk og pólitískt kjarkleysi ráða för.

Höfundur er stjórnmálafræðingur




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×