Skoðun

Að drepa eða drepast!? og þar fór það

Bakir Anwar Nassar skrifar

Atvinnuleysið hækkaði um 108% á milli mánaða á tímabilinu ágúst til september. Peningamagnið í umferð hækkaði um 1% innan sama tímabils.

Ástandið í samfélaginu er eins og kanínur á krossgötum; ríkisstjórnin kvaddi; sum sveitarfélög eru við það að rofna og önnur sameinast í tilraun til að ná einhverja hamingju, svona á meðan haldið er í vonina um bjartari framtíð og frekari íbúafjölgun... hins vegar eru opinber störf eins og rennibraut fyrir nokkra... en svo þegar lítið vatn rennur til sjávar að þá eru það biðlaun til fjölda mánaða sem taka við.

Allur svona ofsa riddaraskapur og heimska gerir lífið að himnaríki fyrir þá sem eru nú þegar komnir með lykla að heimaríkinu — eða miða í rennibrautina.

Staðreyndin er sú að verðbólgan er afleiðing peningastefnu ríkisstjórnarinnar og hversu oft hún virkir rafrænan prentarann sinn sem virðist vera geymdur rétt fyrir utan Kalkofnsvegi 1, svona til að getað vökvað rennibrautinni með kókosvatni og lakkrískurli.

Verðbólga myndast ei út frá væntingum hinum og þessum fáfræðingum, spámennsku stórnendum né ráðherrum hér og þar. Höfum það á hreinu.

Á endanum getur þú hugsað um ríkisstjórnina sem fyrirtæki, segjum ehf. fyrirtæki sem reynir að að skila hagnaði árlega... en þegar það mistekst nokkur tímabil í röð að þá taka endalokin við.

Fyrirtæki eru aldrei að fara vaxa í sinni stefnu þegar að andlitið þeirra er óþekkjanlegt erlendis (ISK).

Ég persónulega veit það að þegar það talað er um að fleyga krónunni út - að þá er það Evran sem að flest allir hugsa um... en ég er ekki þar! Talandi nú ekki um þau fyrirtæki hérlendis sem eru í kringum 300, sem fá að gera upp í erlendum gjaldmiðli...

Peninganefndin þar á ferð hefur gjaldfellt € og þar með 400M manns sömuleiðis undanfarin ár. Tölum nú ekki um þegar € féll niður fyrir $ fyrir 2 árum síðan.

Evran, $, DKK, NOK eða hvað sem þessi pappírs gjaldmiðlar heita eru ekki lausn íslenska samfélagsins... heldur er það agi, skynsemi og þekking viðkomandi framtíðar fjármálaráðherrar sem færir okkur næsta skrefið enn nær.

Hins vegar, þarf viðkomandi að skilja leikinn vel þegar fyrirtækið (ríkissjóðurinn) byrjar að skila afgangi og færa það sem allra fyrst í grjótharðan pening sem ómögulegt er að þynna.

Höfundur skipar 12. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×