Opnaði nýtt móttökuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Atli Ísleifsson skrifar 1. apríl 2015 16:07 Börn af leikskólanum Laugasól litu við en þau voru nýbúin að skoða hreindýr og pöddur þegar þau hittu borgarstjóra og þáðu djús og veitingar. Mynd/Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði nýtt móttökuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í morgun. Garðurinn fagnar 25 ára afmæli í maí. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að nýja húsið hafi þá kosti að hægt er að sinna gestum garðsins við mun betri aðstæður en áður. „Nú verður loksins hægt að hafa þjónustu, eins og miða- og minjagripasölu, símavörslu, vörumóttöku og móttöku hópa innandyra. Húsið er 120 fermetrar að stærð. Með byggingu þess er lokið fyrsta áfanga í nokkurra ára uppbyggingaráætlun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal. Borgarstjóri heilsaði upp á starfsfólk garðsins, hönnuði og verktaka sem unnið hafa að nýja húsinu í morgun. Börn af leikskólanum Laugasól litu við en þau voru nýbúin að skoða hreindýr og pöddur þegar þau hittu borgarstjóra og þáðu djús og veitingar. Móttökuhúsið er fyrsti áfanginn uppbyggingaráætlun garðsins en næstu skref eru opnun nýs vaðleikjasvæðis í fjölskyldugarðinum í maí. Þá mun bygging dýrahúss hefjast í ár sem og hönnun á betri fræðslu- og starfsmannaaðstöðu. Það er vor í lofti í húsdýragarðinum og hægt að heilsa upp á forvitna nautkálfa í fjósinu, nýklakta kjúklinga í smádýrahúsi og kiðlingar eru væntanlegir í geithúsið á næstu dögum en huðnurnar eru alveg komnar að burði,“ segir í frétt borgarinnar.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Innlent Fleiri fréttir Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu „Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Sjá meira