Markahæsti leikmaður Fjarðabyggðar undanfarin tvö ár búinn að semja við Þrótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. desember 2015 13:37 Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, og Brynjar Jónasson. mynd/þróttur
Framherjinn Brynjar Jónasson er genginn í raðir Þróttar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Brynjar, sem er 21 árs, kemur til Þróttar frá Fjarðabyggð þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Þróttur endaði í 2. sæti 1. deildar í fyrra og leikur því í Pepsi-deildinni á næsta ári, í fyrsta sinn síðan 2009. Brynjar skoraði níu mörk í 21 leik í 1. deildinni í sumar og 19 í 22 leikjum í 2. deildinni í fyrra. Hann hefur alls gert 30 mörk í 48 leikjum í deild og bikar hér á landi. Brynjar þekkir vel til aðstoðarþjálfara Þróttar, Brynjars Gestssonar, en hann þjálfaði hann hjá Fjarðabyggð 2014 og 2015. Þeir eru nú sameinaðir á ný í Laugardalnum. Brynjar, sem er uppalinn hjá FH, er annar framherjinn sem Þróttur fær til sín í vetur en áður hafði Emil Atlason gert samning við félagið.Sjá einnig: Ryder þjálfar Þrótt til ársins 2017 Þá hafa tveir ungir og efnilegir leikmenn skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt; Júlíus Óskar Ólafsson og Aron Dagur Heiðarsson. Sá síðarnefndi er sonur Heiðars Helgusonar, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanns.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið CrossFit-kona fær fjögurra ára bann fyrir að breyta myndbandi Sport Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Enski boltinn „Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar“ Fótbolti Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Enski boltinn „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Handbolti Íþróttakona dæmd í tíu ára bann Sport „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ Handbolti Elsti sonur Ronaldo æfir með Real Madrid Fótbolti Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir Handbolti Dagskráin: Lokaumferðin í Bónusdeildinni og Heimir í HM-umspili Sport Fleiri fréttir KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Sjá meira