Litla Ísland er búið að loka Evrópuhringnum í körfuboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2016 12:00
Íslenska tuttugu ára landsliðið í körfubolta tryggði sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins 2017 með sigri á Grikklandi í undanúrslitum B-deildar EM 20 ára liða. Íslenska liðið hafði betur á móti heimamönnum sem voru dyggilega studdir af sínu fólki en áttu ekki svör við sigurvilja strákanna okkar. Með því að tryggja 20 ára landsliðinu sæti í A-deildinni hafa þessi stórefnilegu körfuboltastrákar lokað Evrópuhringnum. Ísland hefur þar með átt sæti í A-deild í öllum flokkum, allt frá A-landsliðinu í Berlín í fyrra niður í 18 og 16 ára liðin sem voru í A-deildinni fyrir um áratug. Ingi Þór Steinþórsson, einn af þjálfurum sem hafa komið íslensku landsliðinu upp í A-deild, vakti athygli á þessum frábæra árangri íslenskra körfuboltalandsliða á fésbókinni. KR-ingarnir Ingi Þór Steinþórsson, Benedikt Guðmundsson og Finnur Freyr Stefánsson hafa þar með allir komið íslensku landsliði upp í A-deild en því hefur Kanadamaðurinn Craig Pedersen einnig náð með A-landsliðið. Ísland mætir Svartfjallalandi í úrslitaleiknum í kvöld en Svartfellingar eru búnir að vinna alla sex leiki sína á mótinu til þessa. Íslensku strákarnir kannast vel við það að enda sigurgöngu liða á þessu móti en Ísland var fyrst liða til að vinna Rússland, Pólland og Grikkland á EM í ár. Öll voru taplaus þegar kom að leiknum við Ísland.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Sjá meira