Viðskiptafréttir ársins 2016: Fleiri ferðamenn, virkari neytendur, stærri vörumerki og sterkari króna Sæunn Gísladóttir skrifar 29. desember 2016 10:30 Innkoma erlendra smásölurisa, ferðamenn, virkir neytendur, Panamaskjöl og tæknigallar einkenndu meðal annars fréttir úr viðskiptalífinu í ár. Vísir
Það sem einkenndi fréttir úr viðskiptalífinu einna helst hjá Íslendingum árið 2016 var aukin vitundarvakning neytenda. Vinsælasta viðskiptafréttin á vef Vísis í ár snerist um erindi framkvæmdastjóra IKEA á Íslandi, sem benti á að útilokað væri að bjóða hér upp á sama verð og í öðrum löndum. Deilur yfir hillum í Söstrene Grene, ósanngjarn verðmunur milli landa og koma erlendra verslunarrisa á markað og áhrif hennar voru áberandi í fréttum. Neytendamálin teygðu anga sína víða og endurspegluðust í miklum áhuga á fregnum af MS og keppinautum þeirra, Örnu í Bolungarvík og KÚ. Brúneggjahneykslið var einnig fyrirferðarmikið nú á síðari hluta ársins.Fjórir bandarískir sjóðir, eigendur samtals um 230 milljarða króna, tóku ekki tilboði ríkisins og hófu í kjölfarið kostaða herferð þar sem þeir reyndu að bera Ísland saman við Argentínu.Vísir/GVALosun hafta Ein stærsta frétt ársins var lausn aflandskrónuvandans sem er einn mikilvægasti áfanginn í afnámi gjaldeyrishafta. Lög sem Alþingi samþykkti í júní gerðu stjórnvöldum kleift að kaupa aflandskrónur á tilteknu gengi ella myndu eigendur aflandskrónanna sæta því að krónueignirnar yrðu læstar á vaxtalausum reikningum.Sjá einnig:Buchheit: Tíminn vinnur með stjórnvöldum Fjórir bandarískir sjóðir, eigendur samtals um 230 milljarða króna, tóku ekki tilboði ríkisins og hófu í kjölfarið kostaða herferð þar sem þeir reyndu að bera Ísland saman við Argentínu. Máflutningur þeirra var hrakinn í erlendum fjölmiðlum eins og Wall Street Journal og Financial Times og Eftirlitstofnun EFTA gaf út álit í nóvember svo hljóðandi að íslenska ríkið hefði ekki brotið neina EES-löggjöf með aflandskrónufrumvarpinu.Krónan styrktist Mikill uppgangur var í íslenska hagkerfinu á árinu. Krónan hélt áfram að styrkjast, atvinnuleysi var lítið og kaupmáttur jókst verulega í kjölfar launahækkana. Hrein staða við útlönd var jákvæð í lok síðasta ársfjórðungs, í fyrsta skipti frá því mælingar hófust eftir síðari heimsstyrjöld. Íslendingar eru ekki lengur í hópi skuldara og eiga núna 60 milljörðum króna meira en þeir skulda í útlöndum. Viðskiptaafgangur á þriðja ársfjórðungi var jákvæður um 100 milljarða – það mesta í sögunni á einum ársfjórðungi og þetta var í fyrsta skipti sem hann rýfur 100 milljarða markið innan fjórðungs.Viðskipti með hlutabréf Skeljungs hf. á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust í desember. Skeljungur er annað félagið sem tekið er til viðskipta á Nasdaq Iceland árið 2016, en það fyrsta á aðalmarkaði. Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs, og Hendrik Egholm, forstjóri Magn í Færeyjum, hringdu inn fyrstu viðskipti. Skeljungur er með starfsemi á Íslandi og í Færeyjum og rekur félagið samtals 76 bensínstöðvar og sex birgðastöðvar.Vísir/GVADauft í kauphöllinni Viðskiptalífið var þrátt fyrir þetta viðburðalítið á árinu. Einungis ein skráning fór fram á First North markaði Kauphallarinnar þegar Iceland Seafood var skráð í mars og ein skráning var á aðallista þegar viðskipti hófust með bréf í Skeljungi í byrjun desember. Auk þess lækkuðu hlutabréf í Kauphöllinni töluvert, samanborið við miklar hækkanir árið 2015.Sjá einnig:Salan á Nova valin viðskipti ársins 2016 Tvær sölur voru áberandi á árinu, annars vegar sala Björgólfs Thors Björgólfssonar á fjarskiptafyrirtækinu Nova og hins vegar salan á lyfjafyrirtækinu Invent Farma. Fleiri ferðamenn Ferðamönnum hélt áfram að fjölga og nálguðust tvær milljónir yfir árið. Ferðaþjónustan hélt því áfram að þróast sem einn mikilvægasti atvinnuvegur landsins. Tölur Hagstofunnar á árinu sýndu að launþegar í ferðaþjónustu voru 26.200 í júlí og hafði fjölgað um 15 prósent milli ára. Fréttir fóru að berast af gæðastaðlinum í greininni en margir eru farnir að óttast að ferðamenn séu orðnir of margir og rekstraraðilar séu ef til vill farnir að rukka of mikið fyrir það sem býðst. Reykjavík var í haust orðin dýrust miðað við aðrar höfuðborgir þegar litið var til hótelgistingar, matar og áfengis. Viðtal við ferðamenn sem blöskraði verðlagið var afar vinsælt í árslok.Sjá einnig:Fannst þau eins og á valdi fjárkúgara í langþráðri brúðkaupsferð á ÍslandiSteinþór Pálsson reyndi að róa mótmælendur í höfuðstöðvum Landsbankans í janúar. Þeim blöskraði framganga bankans í tengslum við sölu hlutar hans í Borgun.Vísir/StefánBorgunarmálið Eitt heitasta málið innanlands í ár var Borgunarmálið svokallaða sem sneri að sölu Landsbankans á greiðslufyrirtækinu Borgun. Málinu lauk með afsögn Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, í lok nóvember í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar um málið. Viðskiptabankarnir þrír áttu almennt erfitt uppdráttar í ár. Hagnaður þeirra dróst verulega saman milli ára sem endurspeglaði áhrif einskiptisliða árið áður. Tilkynnt var um hópuppsögn hjá Arion banka í september. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, sagði í samtali við Markaðinn að nú blasti við hin raunverulega staða bankakerfisins og bætti við að mikilvægt væri að gera umhverfi íslensku bankanna samkeppnishæfara gagnvart erlendum bönkum.Sjá einnig:Telur Íslandsbanka tilbúinn til söluÞorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla.Vísir/VilhelmPlain Vanilla sagði öllum upp Bæði jákvæðar og neikvæðar fregnir bárust af viðskiptaævintýrum Íslendinga erlendis. Blaðamaður BuzzFeed hraunaði yfir leyndan kostnað WOW Air og Plain Vanilla ævintýrinu lauk eftir að NBC hætti við framleiðslu á QuizUp-þáttum.Sjá einnig:Ris og fall Plain Vanilla Íslenskur bjór naut aftur á móti góðs gengis erlendis, sem og svefndúkkan Lulu frá RóRó sem seldist upp nánast samstundis. CCP ákvað að opna skrifstofur í London þar sem GAMMA fékk starfsleyfi á árinu. Einnig tilkynnti fjárfestingafyrirtækið um að það hygðist færa út kvíarnar vestan hafs, í New York.Sigmundur Davíð við Bessastaði í apríl síðastliðnum.Vísir/AntonMikill áhugi ef það hefur áhrif á Ísland Sé litið til erlendra viðskiptafrétta ársins voru mest áberandi málin sem höfðu áhrif á Íslandi. Þó að hlutabréfahrun hafi átt sér stað víða erlendis í byrjun árs og olíuverð sveiflaðist gífurlega yfir árið voru það ekki málin sem snertu Íslendinga mest. Þeir höfðu meiri áhuga á þýðingu útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, svokölluðu Brexit, fyrir íslenskt hagkerfi: nú var orðið ódýrara að versla á ASOS-netversluninni en á sama tíma voru þetta slæmar fréttir fyrir íslenskan sjávarútveg. Það erlenda mál sem snerti Íslendinga einna helst var afhjúpun Panamaskjalanna í vor. Frægir Íslendingar voru á listanum en ef til vill vakti enginn þeirra meiri athygli en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, sem sagði af sér embætti í kjölfar lekans.Þrjú af þeim þekktu vörumerkjum sem hófu starfsemi á þessu ári og því næsta; Hard Rock, H&M og spænska fatamerkið Cortefiel.VísirErlend fyrirtæki sýna mikinn áhuga Á árinu var tilkynnt um komu H&M og Krispy Kreme til landsins og átti Costco að opna dyr sínar á árinu þótt því hafi síðan verið frestað. Einnig var Hard Rock Café opnað í lok október. Íslendingar voru mjög spenntir yfir komu þessara risa og bentu hagsmunagæsluaðilar neytenda á að koma þeirra, sér í lagi H&M og Costco, myndi hafa veruleg áhrif á smásölumarkaðinn.Sjá einnig:Verslunarrisar mættir til leiks Um áramótin féllu tollar af fötum og skóm niður og var það gagnrýnt verulega að sú breyting hefði ekki skilað sér að fullu í vasa neytenda. Talið er að koma H&M á þrjá staði á næstu tveimur árum muni þrýsta á frekari fataverðslækkun. Ekki eru þó allir risar á leiðinni til landsins. Forsvarsmenn McDonald’s staðfestu í ár að Íslandi yrði áfram McDonald’s-laust.Tæknirisar í vandræðum Erlend vörumerki voru einnig í deiglunni í tæknimálum. Íslendingar nutu þess að spila Pokémon GO, snjallsímaleik Nintendo, eins og heimsbyggðin öll. Hlutabréf í japanska leikjaframleiðandanum ruku upp eftir nokkra lægð í kjölfar útgáfu leiksins í júlí. Bréfin náðu hæstu hæðum 19. júlí og hafa eitthvað lækkað síðan en eru þó mun hærri en í byrjun árs. Eitt uppáhaldsmerki landsmanna, Apple, kom víða fram í fréttunum í ár vegna niðursveiflu hjá félaginu. Sala iPhone dróst saman milli ára hjá fyrirtækinu í fyrsta sinn í sögunni og gerðist þetta á öllum fjórðungum ársins.Sjá einnig:Hvað er að gerast hjá Apple? Svo virtist sem helsti keppinautur Apple, Samsung, væri að fara að taka yfir markaðinn, en það gekk þó ekki eftir. Í haust bárust fregnir af galla í batteríum í Samsung sem olli sprengingum í Galaxy S7 Note, nýjasta snjallsíma fyrirtækisins. Í kjölfarið forðuðust neytendur vöruna. Batterí virtust vera til vandræða allt árið en í haust viðurkenndu forsvarsmenn Apple að rafhlöðugalli hefði verið í takmörkuðu magni af iPhone 6S sem olli því að símarnir slökktu á sér með næga hleðslu og kom í ljós að sá galli hafði gert vart við sig á Íslandi. Óljóst er hvað árið 2017 mun bera í skauti sér fyrir viðskiptalífið. Koma H&M og Costco mun líklega bera með sér einhverjar fréttir sem og áframhaldandi áhrif af losun hafta. Óvissuþættir eru margir, til að mynda hvort krónan haldi áfram að styrkjast, hvort ferðamenn haldi áfram að koma og hvaða áhrif ný ríkisstjórn muni hafa á efnahagsstefnu landsins. Hér að ofan höfum við dregið saman þau mál sem einkenndu viðskiptaárið. Hér fyrir neðan er síðan listi yfir þær einstöku fréttir sem flestir lesendur lásu í viðskiptunum á Vísi á árinu. Topp 10 mest lesnu viðskiptafréttir ársins á Vísi 1. Útilokað að bjóða upp á sama verð og í öðrum löndum2. Lá við slagsmálum vegna nýrra vegghillna í Söstrene Grene3. Árni Harðarson skattakóngur ársins 20154. Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund króna5. Hálfrar milljónar króna sófasett entist í tvö ár6. Fjárfestar, popparar, fjölmiðla-, útgáfu- og fjarskiptafyrirtæki í Panamaskjölunum7. Guðmundur í Jör segir fjárfesta hafa brugðist8. Lánið hækkað um 11 milljónir. „Ég vildi fara öruggu leiðina“9. Mikil reiði hjá starfsmönnum Arion eftir hópuppsögnina10. Costco mun umturna íslenskum markaði
Brexit Ferðamennska á Íslandi Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Fréttir ársins 2016 Íslenskur bjór WOW Air Tengdar fréttir Salan á Nova valin viðskipti ársins 2016 Söluverð félagsins er samkvæmt heimildum rúmlega 16 milljarðar króna. Uppbygging Nova á níu árum nam um fjórum milljörðum króna. 28. desember 2016 09:45 Yahoo, Samsung og Deutsche: Fyrirtækin sem áttu hræðilegt ár Gengi hlutabréfa hrundi í mörgum fyrirtækjum á árinu og hagnaður dróst verulega saman. 28. desember 2016 09:00 Salan á Borgun verstu viðskipti ársins Viðskiptin sjálf áttu sér stað 2014 en eftirmál þeirra litu dagsins ljós á þessu ári sem endaði með skýrslu frá Ríkisendurskoðun. 28. desember 2016 09:45 Skúli valinn viðskiptamaður ársins: Íhugar starfsstöð utan Íslands Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, er viðskiptamaður ársins 2016. Fyrirtæki hans hefur vaxið gríðarlega undanfarið. Á árinu hafa farþegar félagsins verið 1,6 milljónir, þoturnar 12 og áfangastaðirnir yfir 30. 28. desember 2016 10:30 Mest lesið Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Fleiri fréttir Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Sjá meira
Salan á Nova valin viðskipti ársins 2016 Söluverð félagsins er samkvæmt heimildum rúmlega 16 milljarðar króna. Uppbygging Nova á níu árum nam um fjórum milljörðum króna. 28. desember 2016 09:45
Yahoo, Samsung og Deutsche: Fyrirtækin sem áttu hræðilegt ár Gengi hlutabréfa hrundi í mörgum fyrirtækjum á árinu og hagnaður dróst verulega saman. 28. desember 2016 09:00
Salan á Borgun verstu viðskipti ársins Viðskiptin sjálf áttu sér stað 2014 en eftirmál þeirra litu dagsins ljós á þessu ári sem endaði með skýrslu frá Ríkisendurskoðun. 28. desember 2016 09:45
Skúli valinn viðskiptamaður ársins: Íhugar starfsstöð utan Íslands Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, er viðskiptamaður ársins 2016. Fyrirtæki hans hefur vaxið gríðarlega undanfarið. Á árinu hafa farþegar félagsins verið 1,6 milljónir, þoturnar 12 og áfangastaðirnir yfir 30. 28. desember 2016 10:30