Dele Alli dæmdur í þriggja leikja bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2017 12:45 Dele Alli gengur af velli eftir rauða spjaldið. Vísir/Getty
Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli hjá Tottenham fékk þriggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk á móti Gent 23. febrúar síðastliðinn. Alli var rekinn af velli í seinni leiknum á móti Gent í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Þetta þriggja leikja bann þýðir að Tottenham verður án Dele Alli í fyrstu þremur Evrópuleikjum sínum á næsta tímabili sem verða væntanlega í Meistaradeildinni. Tottenham er eins og er í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni og á mjög góða möguleika á því að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Arsenal fékk einnig fimm þúsund evra sekt vegna þess að stuðningsmenn hlupu inn á völlinn í seinni leiknum á móti Bayern München í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bayern München fékk aftur á móti þrjú þúsund evra sekt þar sem að stuðningsmenn þýska félagsins voru staðnir af því að henda hlutum inn á völlinn í sama leik. Dele Alli hefur skorað 17 mörk og gefið 8 stoðsendingar í 39 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu en hann heldur upp á 21 árs afmælið sitt í næsta mánuði.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira